Sprunginn meirihluti í Eyjum 12. nóvember 2004 00:01
Meirihlutasamstarfi Vestmannaeyjalistans og Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Vestmannaeyja var slitið á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gærkvöld. Í bæjarstjórn eru þrír fulltrúar V-lista, þrír frá Sjálfstæðisflokki og einn frá Framsóknarflokki. Í bókun Lúðvíks Bergvinssonar, oddvita V-listans, kemur fram að samstarfinu hafi verið slitið í kjölfar trúnaðarbrests sem upp kom. Er þar vísað til viljayfirlýsingar sem Andrés Sigmundsson, fulltrúi Framsóknarflokks, undirritaði um kaup Vestmannaeyjabæjar á Fiskiðjuhúsinu í Vestmannaeyjum. "Þetta er pólitískt áfall sem kemur algjörlega í bakið á mér. Ég áskil mér allan rétt til að fjalla um málið síðar," sagði Andrés eftir fundinn. Viðræður um nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Vestmannaeyjalista hófust þegar í gærkvöld. Arnar Sigmundsson, oddviti sjálfstæðismanna, sagði að ekki væri farið að ræða mögulega skiptingu embætta, en lagði hins vegar áherslu á hversu mikilvægt væri að þessi tvö stóru framboð sem væru með sex af sjö bæjarfulltrúum næðu saman um stjórn bæjarfélagsins. Lúðvík Bergvinsson sagðist gera ráð fyrir að menn næðu fljótt saman um nýjan meirihluta. "Enda er mikil krafa um það eftir síðustu uppákomu að stóru öflin í bænum slíðri sverðin og taki höndum saman með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi," sagði hann.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira