Trúnaðurinn er aðalmálið 12. nóvember 2004 00:01
Af hverju hvílir öll þessi leynd yfir styrkjum til flokkanna? Umræðan um styrki til flokkanna er ekki ný af nálinni. Hún hefur viðgengist áratugum saman og komið reglulega upp í fjölmiðlum síðustu áratugi. Þessi umræða hefur orðið sterkari eftir því sem sjálfstæði fjölmiðlanna hefur vaxið og þeim tekist að slíta sig frá stjórnmálaflokkunum. Flokkarnir voru stofnaðir í upphafi síðustu aldar og mótaðist flokksstarfið lengi framan af öldinni af fórnfúsu starfi einstaklinga. Margir muna þá tíð þegar fjölskyldur tóku á sig fjárskuldbindingar fyrir flokkana og sama gerður fyrirtæki fyrirtæki sem voru - formlega eða óformlega - bundin flokkunum. Starfsemi Framsóknarflokksins var t.d. alla tíð samofin kaupfélögunum, Sambandi íslenskra samvinnufélaga, SÍS, og fleiri félögum. Í þeim hópi er Olíufélagið. Fjármál eru alltaf viðkvæm, hvort sem um einstaklinga, fyrirtæki eða félög ræðir. Spurningin um styrki frá fyrirtækjum virðist þó sérlega viðkvæm enda getur verið um óheppilega tengingu að ræða, t.d. hagsmunaárekstrar. Fátt hefur verið upplýst um styrki fyrirtækja til stjórnmálaflokka. Stjórnmálamenn og stjórnendur fyrirtækjanna hafa borið fyrir sig að um trúnaðarmál sé að ræða. Óskað hafi verið eftir og samið um styrkina í trúnaði. Líklegt má þó telja að þar hafi verið um þegjandi samkomulag að ræða. Þær raddir hafa farið vaxandi á síðustu árum að flokkarnir opni bókhald sitt, ekki síst gagnvart olíufélögunum sem hafa gerst brotleg gagnvart samkeppnislögum. Það er þó mjög mismunandi og töluverður tvískinnungur í upplýsingagjöf flokkanna. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru t.d. gallharðir á því að gefa engar upplýsingar en Vinstri hreyfingin grænt framboð leggur ekki í að ganga alla leið og gefur bara upplýsingar um styrki innan við 300 þúsund krónur í kosningabaráttunni 2003. Ekki er gefið nánar upp um það. Sjálfstæðisflokkurinn fræðir ekki um styrki Sjálfstæðisflokkurinn neitar að gefa upplýsingar um styrktaraðila sína eða einstaka styrki til flokksins. Fréttablaðið óskaði eftir upplýsingum um styrki olíufélaganna til Sjálfstæðisflokksins í tölvupósti nýlega og barst þá þetta svar. Í svarinu kom einnig fram að flokkurinn hefði um langt skeið fylgt sömu reglu og aðrir stjórnmálaflokkar á Íslandi í þessum efnum.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira