Úr bakherberginu 29. október 2004 00:01
Kurr í Hafnarfjarðar-krötum Hugmyndir framtíðarhóps Samfylkingarinnar um einkavæðingu í skólum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum flokksmönnum. Guðmundur Árni Stefánsson og Lúðvík Geirsson leiðtogar flokksins í Hafnarfirði eru þannig ekki ánægðir með að opnað sé á Áslands-skóla-ástand eins og einn flokksmaður orðaði það. Sama máli gildir um fleiri þingmenn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur hins vegar bent á að hugmyndir hópsins séu síður en svo endanleg stefna en erfiðlega hefur gengið að sannfæra jafnt flokksmenn sem fjölmiðla um það. Ef vel er að gáð eru hugmyndirnar meira eins og matseðill sem flokksþingið velur sér rétti á. Engu að síður þykir sumum Samfylkingarmönnum skjóta skökku við að einn ötulasti verkmaður þess hóps sem samdi tillögur þar sem opnað var á einkavæðingu er Sigfús Johnsen, kenndur við Nýsi sem hefur einmitt tekið að sér "einkavædd" verkefni sem hafa verið á könnu hins opinbera. Úr Vimma-vinafélaginu í hvíta húsið Vakið hefur nokkra undrun meðal lögfróðra manna að Bolli Þór Bollason skuli hafa verið skipaður ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins en ekki settur, eins og raunin var um Ólaf forvera hans Davíðsson fyrsta kastið. Ekki síður hefur röksemdafærslan þar sem vitnað er til ákvæðis um tilflutning ríkisstarfsmanna á milli starfa. Sérfróðir lögfræðingar segja hins vegar nánast fordæmislaust að þessi regla sé notuð til að hækka mann í tign, þótt henni sé oft beitt til að flytja menn til í svipuð störf. En er Halldór Ásgrímsson að hygla flokksbróður? Ekki ef miðað er við síðustu afskipti Bolla Þórs af stjórnmálum en þá var hann í framboði fyrir Bandalag jafnaðarmanna eða Vimma-vinafélaginu eins og gárungarnir kölluðu það. En framsóknarmenn leynast á óvæntustu stöðum eins og kunnugt er og þarf ekki að leita út fyrir veggi "hvíta hússins" við Lækjargötu. Þannig varð Björn Ingi Hrafnsson fyrrverandi blaðamaður á Eintaki og Morgunblaðinu sannkristinn framsóknarmaður með undra skjótum hætti. Best varðveitta leyndarmálið Starfsmönnum Alþingis er trúandi fyrir leyndarmálum. En hvort 10 ára afmælishátið EES samningsins fyrir viku átti að vera leyndarmál er ekki vitað. Auglýsing var um fundinn á vefsíðu Alþingis kvöldið fyrir fund og er þar hvorki getið til um stað né stund! Kannski engin furða að afmælishátíðin fór að mestu fram í kyrrþey... Líta upp til blaðamanna á ný Meira um Alþingi því ákvörðun um að koma þingfréttariturum fyrir í glugglausum kytrum í kjallara Alþingis hefur nú verið breytt. Halldór Blöndal, forseti Alþingis og Guðmundur Árni Stefánsson, varaforseti brugðust hart við og hafa endurreist bolabás. Kannski rann þeim blóð til skyldunnar enda var Halldór um árabil blaðamaður Morgunblaðsins og Guðmundur Árni Stefánsson ritstjóri Alþýðublaðsins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira