Innlent

Rannsaka vinnuferli við sprengingu

"Við förum í gegnum þetta, bæði með okkar eftirliti og með verktökunum sem eru þarna að störfum," segir Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri um rannsókn stofnunar sinnar á því hvers vegna sjö menn lentu í hættu þegar síðasta haftið í Almannaskarðsgöngum var sprengt þrettán mínútum of snemma á föstudag. "Við förum í gegnum ferilinn," segir Jón um rannsóknina og tekur fram að Vinnueftirlitið og lögreglan séu þegar búin að skoða atburðina. Vegagerðin eigi svo eftir að draga saman hvað gerðist. Hann kveðst þó ekkert geta sagt til um hversu langan tíma það taki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×