Innlent

Vont ef tæki til eftirlits vantar

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir mjög óheppilegt ef ekki séu tæki á Keflavíkurflugvelli til að halda uppi nauðsynlegu eftirliti á varnarsvæðinu. Hann segir að vera rússnesku herskipanna við Ísland sýni að rússneski flotinn sé greinilega að sækja í sig veðrið, en lítur þó ekki á málið sem ögrun á neinn hátt. Björn segir að Landhelgisgæslan muni fylgjast með rússnesku skipunum eins og fært sé meðan þau halda sig við Ísland. Hann telur þó ekki að Rússar séu að senda nein pólitísk skilaboð með þessari uppákomu heldur sé þetta einungis æfing. Hann segir ekkert ögrandi við aðgerðir Rússana, en þetta minni menn á að rússneski flotinn sé enn til staðar og að hans öflugustu bækistöðvar séu á Kólaskaganum, eins og sovéska flotans forðum. Flotinn sé greinilega að sækja í sig veðrið og það sé Íslendingum áminning um að landslagið hafi ekkert breyst og herskip fari enn um N-Atlantshafið. Í fréttum Stöðvar 2 um helgina kom fram að Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hefði ekki getað sinnt eftirliti með rússnesku skipunum þar sem Orion-vélar, sem sinntu eftirliti, væru ekki lengur til staðar í landinu. Björn Bjarnason segir mjög óheppilegt ef ekki séu til staðar tækjabúnaður á Íslandi til halda uppi nauðsynlegu eftirliti. Orion vélar séu til í Noregi og Bretlandi, sem geti fylgst með því sem hér gerist og hægt sé að kalla á þær ef nauðsyn krefji. Björn segir það hins vegar skoðun sína að á meðan varnarsamningurinn sé í gildi eigi að vera hér fullnægjandi tækjabúnaður til þess að vita hvað sé að gerast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×