Innlent

Styrkurinn jákvæður fyrir krónuna

Mynd/Vísir
Ætla má að styrkur bandarísku smitsjúkdóma- og ónæmisfræðistofnunarinnar til Decode Genetics fyrir helgi hafi jákvæð áhrif á gengi krónunnar. Morgunkorn Íslandsbanka greinir frá þessu. Komið hefur fram að 80% af styrknum verði varið hérlendis en það eru um 270 milljónir á ári næstu fimm ár. Kári Stefánsson, forstjóri hefur sagst ætla að bæta við starfsfólki hér á landi í framhaldi af þessu. Styrkurinn á að fjármagna rannsóknir á erfðafræði smitsjúkdóma og svörunar við bólusetningu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×