Nýtt 23 þúsund manna sveitarfélag 30. september 2004 00:01
Viðræður um nýtt 23 þúsund manna sveitarfélag í Eyjafirði hafa tekið nýja stefnu. Sveitarfélög á svæðinu frá Grenivík til Siglufjarðar hafa samið við Háskólann á Akureyri um að gera hagkvæmnisathugun á sameiningu sveitarfélaganna. Einnig hefur háskólanum verið gert að gera skoðanakönnun á meðal íbúa svæðisins. Háskólinn skilar niðurstöðum úr sinni athugun í desember. Viðræður um sameiningu sveitarfélga á Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið í gangi allt síðan árið 1993 þegar sérstakt sameiningarátak sveitarfélaga var í gangi á vegum stjórnvalda. Kostirnir við sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð eru margir. Ákveðið hagræði felst í því að koma svæðinu undir eina sameiginlega sveitarstjórn. Með því er hægt að minnka yfirbygginguna og samræma þjónustu og verkefni sveitarstjórnarstigsins. Þá er ekki síður mikilvægt að yfir svæðinu sé ein stjórn sem setji svæðinu sameiginleg markmið sem styrki það sem einingu. Verði sveitarfélögin við Eyjafjörð sameinuð verður til 23 þúsund manna sveitarfélag sem yrði þriðja stærsta sveitarfélag landsins á eftir Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ. Ólafur Kárason, formaður bæjarráðs Siglufjarðar, er bjartsýnn á að sveitarfélögin sameinist innan tíðar. Hvenær nákvæmlega vill hann ekki segja. "Ég sé fyrir mér að innan fárra ára verði til nýtt sveitarfélag - sveitarfélagið Eyjafjörður," segir Ólafur. "Það eru flestir mjög jákvæðir fyrir þessu. Reyndar eru einhverjar efasemdaraddir í Hörgárbyggð og Grímsey en ég útiloka samt ekki að þau sveitarfélög verði líka með í þessu." Ólafur segir að forsenda sameiningar Siglufjarðar við sveitarfélögin við Eyjafjörð sé að Héðinsfjarðargöng verði byggð. Í dag taki til dæmis um tvo tíma að aka frá Siglufirði til Akureyrar en eftir að göngin verði klár taki það um 45 mínútur. "Það er hreinlega lífsspursmál fyrir okkur að þessi göng verði gerð. Það var mikið bakslag fyrir okkur í fyrra þegar framkvæmdunum var frestað um eitt ár. Nú erum við með undirritað skjal frá ríkisstjórn Íslands um að verkið verði boðið út á næsta ári og framkvæmdir hefjist árið 2006. Samkvæmt nýrri áætlun á að ljúka framkvæmdunum árið 2009." Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, segir að vissulega sé það ákveðið skref í rétta átt að hafa falið Háskólanum á Akureyri að gera úttekt á sameiningunni. Hins vegar sé biðstaða í málinu núna eða allt þar til háskólinn skili niðurstöðum. "Það ætti síðan að geta orðið góð umræða um málið þegar þær niðurstöður verða komnar í hús," segir Kristján Þór. "Þá verðum við með ýmsa útreikninga sem við getum haft til hliðsjónar í viðræðunum. Bæjarstjórn Akureyrar og bæjarfulltrúarnir allir hafa verið einhuga í þeirri í afstöðu sinni að það beri að sameina sveitarfélög við Eyjafjörðinn. Það eru síðan skiptari skoðanir um það meðal annarra sveitarfélaga. Reyndar held ég að heilt yfir sé meiri samhljómur á meðal íbúa en sveitarstjórnarmanna að fara út í sameiningu." Bæði Kristján Þór og Ólafur Kárason segja að á meðal sveitarfélaga sem hafi haft efasemdir um sameininguna séu Hörgárbyggð og Grímseyjarhreppur. Helgi Bjarni Steinsson, oddviti Hörgárbyggðar, segir að sveitarstjórnin sé mótfallin sameiningu og hafi ekki tekið þátt í viðræðum um sameiningu. "Við teljum að íbúar hér vilji einfaldlega ekki sameiningu," segir Helgi Bjarni. "Við munum samt fylgjast með framvindu mála. Það er náttúrlega ekkert útilokað að við skoðum þetta í framtíðinni en eins og staðan er núna er ekki vilji til að taka þátt í þessu." Sveitarfélögin sem rætt er um að sameina:Sveitarfélag:Fjöldi íbúa Akureyri16.048 Dalvík2.025 Siglufjörður 1.438 Ólafsfjörður994 Eyjafjarðarsveit958 Grýtubakkahreppur396 Svalbarðsströnd376 Hörgárbyggð371 Arnarneshreppur188 Grímseyjarhreppur93 Alls:22.887
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira