6 handteknir í stóru fíkniefnamáli 23. september 2004 00:01
Sex manns haf verið handteknir og þar af fjórir úrskurðaðir í gærluvarðhald vegna rannsóknar á einhverju stærsta fíkniefnamáli hér á landi til þessa. Fjöldahandtökur hófust í kjölfar þess að stór sending af ofskynjunarlyfinu LSD fannst í póstsendingu til Vestmannaeyja nýverið. Í tengslum við það var maður handtekinn í Vestmannaeyjum og annar í Rotterdam, sem síðan leiddi til handtöku fimm manna til viðbótar, en einum var sleppt aftur. Hinir fjórir hafa verið úrskurðaðir í gærluvarðhald. Málið má rekja aftur til þess að þrjú kíló af amfetamíni og talsvert af Kókaíni fundust í vörusendingu í Dettifossi í mars. Að sögn Ásgeirs Karlssonar yfirmanns fíkiniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík fanst sú sending í gámi um borð í skipinu. Engin var þá handtekinn. Síðan fundust aftur fíkniefni í vörusendingu í gámi úr sama skipi í júlí þegar lögregla og tollgæslumenn leituðu í vörusendingu í gámi, sem var kominn í land, og enn var engin handtekinn. Ásgeir segir að þá hafi fundist verulegt magn af Kókaíni og anfetamíni, en vill ekki tilgreina það nánar. Óstaðfestar fréttir herma að það hafi jafnvel verið meira en fannst í mars. Loks fundust svo þrjú þúsund skammtar í póstsendingu til Vestmannaeyja fyrir tíu dögum og hófust þá handtökurnar. Við húsleit hjá tveimur íslendingum ytra, sem íslenskur lögreglumaður tók þátt í með hollensku lögreglunni, fannst um það bil eitt kíló af kókaíni og talsvert af kannabisplöntum í ræktun. Annar íslendinganna er búsettur í Hollandi, en hinn hefur dvalið ytra um skeið. Þeir eru báðir í vörslu hollensku lgöreglunnar. Verði þeir úrskurðaðir í gærluvarðhald ytra, verður óskað eftir framsali á þeim hingað til lands. Ein kona er meðal hinna handteknu. Fólkið er á þrítugsaldri og hafa flestir eða allir komið við sögu vegna fíkniefnaborta áður, og sumir tengst stórum fíkniefnamálum. Kókaín og amfetamín í svo stórum skömmtum sem hér um ræðir, er undantekningalaust flutt inn til landsins óblandað, þannig að efnið fjórfaldast yfirleitt í þunga, áður en það fer í smásölu. Þótt endanlegt magn sé ekki gefið upp, er því nú þegar ljóst að söluandvirði efnanna hér á landi nemur tugum milljóna króna. Eimskip, sem gerir Dettifoss út, sendi frá sér yfirlýsignu í morgun þar sem segir meðal annars að félagið starfi í nánu sambandi við lögreglu- og tollayfirvöld í öllum höfnum, sem skip félagsins hafa viðkomu í, með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir smygl á fíkniefnum og öðrum ólöglegum varningi með skipum félagsins. Að örðu leiti ætlar félagið ekki að tjá sig á meðan á rannsókn stendur.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira