Reikningsskil ráðherra ruglingsleg 15. september 2004 00:01
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir reikningsskil iðnaðarráðherra vegna losunar gróðurhúsalofttegunda samkvæmt Kyoto-bókuninni ruglingsleg. Skipulagsstofnun hefur bent á að með rafskautaverksmiðju í Hvalfirði verði heimildir Íslands til að losa gróðurhúsalofttegundir samkvæmt bókuninni nærri fullnýttar en losun koltvísýrings frá verksmiðjunni eru áætluð um 125 þúsund tonn á ári. Í fréttum stöðvar 2 í gærkvöld hélt iðnaðarráðherra því hins vegar fram að það kæmi ekki í veg fyrir álver á Norðulandi þar sem mengun af rafskautaverksmiðju reiknist ekki sem stóriðjukvóti og færi því á annan reikning. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir þann reikning, eða almennan kvóta, einnig nær fullnýttan. Hann segir iðnaðarráðherra ekki hafa haft rétta tölu fyrir framan sig því miðað við núverandi stóriðjuáform sé ekki neitt svigrúm til að bæta við álveri á Norðurlandi. Ísland fékk undanþágu fyrir 1600 þúsund tonn af koltvísýringi árlega og nú er aðeins 61 þúsund tonn eftir að sögn Árna. Hann segir að nema ráðherra ætli að fara á svig við Kyoto-bókunina og hafa hana að engu þá er ekki svigrúm fyrir álver fyrir norðan. Aðspurður um þá tvo reikninga sem iðnaðarráðherra talar um segir Árna það út af fyrir sig rétt vegna undanþágunnar en hún sé nánast uppurin. Því sé svolítið óljóst um hvað ráðherrann sé að tala og virðist að hún viti hreinlega ekki um hvað sé að ræða segir Árni. Hægt er að hlusta á viðtal við Árna úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Erlent Fleiri fréttir Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Neita öll sök í Reykholtsmálinu Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Óveðrinu slotar í bili og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Sjá meira