Heimsbikarinn í íshokkíi í kvöld 13. september 2004 00:01
Úrslitaleikur heimsbikarsins í íshokkíi fer fram í Toronto í kvöld en þar mætast Finnar og Kanadamenn. Þeir fyrrnefndu gerðu sér lítið fyrir og slógu út Bandaríkjamenn, 2-1, í spennandi slag í St. Paul í Bandaríkjunum. Nú bíður þeirra ekki síður erfitt verkefni, að vinna Kanadamenn á útivelli, en kanadíska liðið hefur verið sérlega heppið og ávallt hreppt heimavöllinn á úrslitastundu. "Ég vona að þetta sé í síðasta sinn sem heimavöllurinn fellur þeirra megin," sagði Raimo Summanen, þjálfari finnska landsliðsins, og hló. "Við verðum að spila sem einn maður og það eru vissir hlutir sem þurfa að vera á hreinu." Hið baráttuglaða lið Finna skoraði tvö mörk í lokaþriðjunginum gegn Bandaríkjamönnum á föstudaginn var og setti bandaríska liðið út í kuldann. En ætli Finnarnir séu sáttir við það eitt að vera komnir í úrslit? "Ég spurði sjálfan mig að því í gær," sagði Summanen. "Við verðum að mæta hungraðir í þennan leik og við höfum reynt að koma því hugarfari að hjá leikmönnunum," bætti þjálfarinn við. Kanadamenn unnu Tékka í undanúrslitum, 4-3, og mæta vígreifir til leiks þó að einhver meiðsli hrjái leikmenn þar á bæ. Þeirra aðalmarkvörður, Martin Brodeur, er meiddur á úlnlið. "Ég mætti ekki á æfingu í gær en þetta er allt að koma. Ég býst við að verða á ísnum í kvöld," sagði Brodeur. Leikurinn fer fram í Air Canada Centre, heimavelli Toronto Maple Leafs.
Íþróttir Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Fleiri fréttir Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Sjá meira