Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2026 08:45 Giannis Antetokounmpo treður boltanum í körfuna með tilþrifum í leik með Milwaukee Bucks. Getty/Patrick McDermott/ NBA-körfuboltafélagið Milwaukee Bucks hefur samþykkt að skipta goðsögninni Giannis Antetokounmpo til Miami Heat en þetta eru ein stærstu leikmannaskiptin í sögu deildarinnar.
Giannis er til Heat ásamt Bobby Portis fyrir Tyler Herro, Kel'el Ware, Jaime Jaquez Jr. og Kasparas Jakucionis, þrjá valrétti í fyrstu umferð (þar á meðal 13. valrétt í nýliðavali NBA í kvöld), einn skiptirétt á valrétti og einn valrétt í annarri umferð, að því er heimildarmenn ESPN herma. Heat sendi til Milwaukee óvarða valrétti í fyrstu umferð árin 2031 og 2033 ásamt 13. valréttinum, skiptirétti á valrétti árið 2030 og valrétti í annarri umferð árið 2033, samkvæmt sömu heimildum. Breaking: The Milwaukee Bucks are trading Giannis Antetokounmpo and Bobby Portis to the Miami Heat for Tyler Herro, Kel'el Ware, Jaime Jaquez Jr., Kasparas Jakucionis, 3 first-round picks (including No. 13), 1 pick swap and 1 second-rounder, sources tell @ShamsCharania. pic.twitter.com/nrzpBO4FhM— ESPN (@espn) June 23, 2026 Skiptin ná ekki til neinna annarra liða en bæði Heat og Bucks munu ganga frá samningnum 6. júlí, sem gefur svigrúm til að kanna hvort tækifæri gefist til að stækka hann með samningum við önnur félög. Í júní síðastliðnum samþykktu Phoenix Suns og Houston Rockets samning sem á endanum varð að sögulegum sjö liða skiptum. Forseti Heat, Pat Riley, landar nú langþráðri risastjörnu, en Antetokounmpo bætist í hóp úrvalsleikmanna sem Miami hefur fengið til sín á síðustu 30 árum, á borð við LeBron James, Shaquille O'Neal, Chris Bosh, Alonzo Mourning og Jimmy Butler. Riley mun para saman tvöfaldan verðmætasta leikmann NBA-deildarinnar og verðmætasta leikmann úrslitakeppninnar 2021 við Bam Adebayo til að leiða baráttuna í Austurdeildinni. Antetokounmpo var í þrettán keppnistímabil í Milwaukee, þar sem hann þróaðist úr því að vera hár og renglulegur nýliði sem fáir þekktu í að safna að sér viðurkenningum. Hann var valinn tíu sinnum í stjörnuliðið, tvisvar sinnum verðmætasti leikmaðurinn og varnarmaður ársins árið 2020. Giannis leiddi Milwaukee til fyrsta meistaratitils liðsins í fimmtíu ár þegar Bucks vann titilinn 2021. Þá var hann valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar með 35,2 stig, 13,2 fráköst, 5,0 stoðsendingar, 1,2 stolna bolta og 1,8 varin skot að meðaltali í leik í úrslitaeinvíginu. Með því afreki varð hann eini leikmaðurinn í sögu NBA til að hafa verið valinn fimm sinnum í stjörnuliðið, fimm sinnum í úrvalslið deildarinnar, tvisvar sinnum verðmætasti leikmaðurinn, verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar og varnarmaður ársins fyrir 27 ára afmælisdaginn sinn. Two-time NBA MVP Giannis Antetokounmpo is getting traded to the Miami Heat, source says. https://t.co/5Obub995aJ pic.twitter.com/gwcyb8JzSm— CNN (@CNN) June 23, 2026
NBA Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Ísland á heimavelli og leikur meistara meistaranna Sport „Það er ekkert högg, það er bara að rísa“ Sport ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira