Enn á ný flakkar Souness 6. september 2004 00:01
Graeme Souness var ráðinn knattspyrnustjóri hjá Newcastle United í gær. Viku fyrr hafði Bobby Robson verið látinn taka pokann sinn eftir slaka byrjun Newcastle-liðsins, sem er í 17. sæti í ensku úrvalsdeildinni. Souness, sem hefur verið á mála hjá Blackburn Rovers síðustu fjögur árin, sagði starfi sínu lausu eftir fyrstu fimm leiki tímabilsins í haust. Forráðamenn Newcastle sögðu Skotann vera mikinn feng fyrir liðið. „Hann er með gríðarlega reynslu í farteskinu og við hlökkum til að fylgjast með honum halda áfram með þá uppbyggingu sem hér hefur verið undanfarin ár“ sagði Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle United. Graeme Souness á langan feril að baki, bæði sem þjálfari og leikmaður. Hann hóf ferilinn hjá Tottenham, Middlesbrough og Liverpool nutu einnig krafta hans og eftir stopp hjá Sampdoria kláraði hann ferilinn hjá Glasgow Rangers sem spilandi þjálfari. Souness lék að auki 54 landsleiki fyrir Skotland. Árið 1991 tók hann við af fyrrum samherja sínum, Kenny Dalglish, sem knattspyrnustjóri Liverpool og hélt út tvö tímabil með félagið. Á þessum tíma átti Souness við alvarleg veikindi að stríða og fór í hjáveituaðgerð 1992. Hann sagði skilið við Liverpool eftir tímabilið 1992-1993, sem var það versta í 30 ár hjá félaginu. Töluvert flakk hefur einkennt feril Souness fram að árinu 2004. Tyrkneska liðið Galatasaray, Torino á Ítalíu og Benfica í Portúgal höfðu hann í sínum röðum áður en hann gekk til liðs við Blackburn. „Ég kveð Blackburn með miklum söknuði,“ sagði Souness í gær. „Ég er búinn að eiga fjögur góð ár með félaginu en taldi tímabært að róa á ný mið. Newcastle er stórt félag og ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni“.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Fótbolti Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Neitar að róa með Normönnum Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Fótbolti Fleiri fréttir „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ Trump mætir á úrslitaleikinn og afhendir bikarinn Varnarmúr Gana hélt gegn Englandi Guðni: Ekki á vísan að róa ef nýtingin er svona slök Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Víkingur 1-1 | Jafnt suður með sjó Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Kominn með nýtt starf eftir að hafa mistekist að koma Ítalíu á HM Missti móður sína og stýrir Frakklandi ekki gegn Noregi Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Ipswich ræður gamla stjóra Úlfanna PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Neitar að róa með Normönnum Ganga hús úr húsi til að safna pening til að bjarga félaginu sínu Tennisstjarna eftir þunga refsingu: „Ég hef ekki notað ólögleg lyf“ Hörð barátta um Gullskóinn Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Alvarez segir að hann vilji fara frá Atletico „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára „Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Menn dagsins á HM: Stefnir í rosalegt kapphlaup um Gullskóinn á HM UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sjá meira