Ísraelum gert að rífa múrinn 21. júlí 2004 00:01
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um að Ísraelum beri að rífa niður múrinn sem þeir eru að reisa við Vesturbakkann. Stjórnvöld í Ísrael mótmæla ályktuninni og ætla að halda áfram að reisa múrinn. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að Ísrael bæri að rífa niður múrinn sem ísraelski herinn hefur verið að byggja síðustu mánuði. Ályktunin er í samræmi við niðurstöður alþjóðadómstóla. Ályktunin er ekki lagalega bindandi, né heldur úrskurður Alþjóðadómstólsins, en hvort tveggja hefur táknrænt gildi. Samstaða á þinginu náðist eftir að Evrópusambandið og Arababandalagið náðu samkomulagi um texta ályktunarinnar. Í henni kemur fram að múrinn sé ólöglegur því hann fari inn á land sem tilheyrir Palestínu. 150 greiddu með, sex gegn og tíu sátu hjá. Bandaríkin, Ísrael, Ástralía og Kanada voru meðal þeirra sem voru á móti. Sendiherra Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum segir ályktunina svívirðilega og ráðgjafi Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, sagði að bygging múrsins myndi halda áfram. Múrinn væri hluti af sjálfsvörnum Ísraela og væri eina leiðin til að stemma stigu við sjálfsmorðsárásum. Ísraelsmenn hafa sömuleiðis neitað að viðurkenna úrskurð alþjóðadómstóla en dómstólar í Ísrael komust reyndar að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum bæri að breyta legu múrsins þar sem hann bryti á mannréttindum Palestínumanna. Margir Palestínumenn eru krógaðir af vegna múrsins og komast ekki til vinnu sinnar eða í ræktunarlönd sín. Palestínumenn fögnuðu niðurstöðunni og sendiherra þeirra þakkaði meðlimum þingsins fyrir að styðja við friðarferlið í Miðausturlöndum. Hann hvatti meðlimi þingsins til þess að íhuga viðskiptabann á Ísrael. Múrinn liggur á landi Palestínu sem samkvæmt Óslóarsamkomlaginu tilheyrir Palestínumönnum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir Loftárásir hrista í stoðum vopnahlés Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Sjá meira