Sport

Var það samsæri?

Mattias Jonson reyndist hetja Svía þegar hann skoraði annað mark liðsins á síðustu mínútu leiksins gegn Dönum í gærkvöld og jafnaði leikinní 2-2. Þýddu þau úrslit að báðir frændur okkar Íslendinga af Norðurlöndunum komast áfram, hvernig sem leikur Ítala og Búlgara færi. Ítalir urðu æfir, sökuðu þjóðirnar um samsæri og að úrslitin hefðu verið ákveðin fyrirfram. Það liggur enginn vafi á því að bæði lið stefndu á jafntefli í leiknum. Það sést einfaldlega á því hvernig leikurinn þróaðist. En óhagganleg sönnunargögn fyrir því er erfitt að finna," sagði Franco Carraro, forseti ítalska knattspyrnusambandsins, í leikslok. Carraro var fokreiður og sakaði nágrannaþjóðirnar um samsæri. Morten Olsen, þjálfari Dana, vísaði ásökunum Carraro algjörlega á bug. "Það er jafn fáránlegt og það er barnalegt að halda það," sagði Olsen. "Allir sem sáu þennan leik vita að bæði lið léku til sigurs". Eins og áður segir bauð gærkvöldið upp á dramatík eins og hún gerist best, því hefði Jonson ekki náð að jafna metin hefðu Svíar setið eftir á kostnað Ítala, sem tryggðu sér sigur gegn Búlgörum - einnig með marki á síðustu mínútunni. Það voru því bæði liðin á vellinum sem fögnuðu í leikslok enda búin að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum EM. Úrslitin þýða jafnframt að Svíar hafna í efsta sæti riðilsins og mæta annaðhvort Þýskalandi eða Hollandi í 8-liða úrslitum, en hvor það verður kemur í ljós í kvöld. Dönum bíður hinsvegar gríðarlega erfiður leikur gegn Tékkum í 8-liða úrslitunum, en þeir hafa þegar tryggt sér efsta sætið í D-riðlinum. Viðureignin í gær var nokkuð fjörug á köflum og voru það Danir sem byrjuðu mun betur. Jon Dahl Tomasson náði verðskuldað forystunni með glæsilegu marki um miðjan fyrri hálfleik, en Henrik Larsson jafnaði úr vítaspyrnu í upphafi þess síðari. Gegn gangi leiksins bætti Tomasson við sínu öðru marki á 66. mínútu en eftir þunga pressu náði áðurnefndur Jonson loks að jafna metin á elleftu stundu. Henrik Larsson var hamingjan uppmáluð í leikslok. "Yndislegt, yndislegt, yndislegt. Það að vera komin áfram fylgir tilfinning sem er ekki hægt að lýsa. Við erum mjög glaðir," sagði Larson. Þjálfari Dana var heldur rólegri, sagði ánægjulegt að vera kominn áfram en að sínir menn hefðu oft leikið betur. "Við þurfum að taka okkur á fyrir leikinn gegn Tékkum í 8-liða úrslitunum. Nokkrir leikmenn virtust þreyttir og voru ekki upp á sitt besta. Það þarf að laga," sagði Morten Olsen.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×