Ítalir sátu eftir 22. júní 2004 00:01
Ítalir gerðu allt sem í valdi þeirra stóð til að komast áfram í 8-liða úrslit Evrópukeppninnar og sigruðu Búlgara 2-1. Þeim til mikillar gremju fór leikur Dana og Svía á þann eina veg sem þýddi að Ítalir kæmust ekki áfram, eða 2-2 jafntefli. Þrátt fyrir sín fimm stig og að hafa ekki tapað leik í keppninni sitja Ítalir eftir með sárt ennið. Áfallið er mikið fyrir ítölsku þjóðina sem og ítalska knattspyrnu og kom það ekki á óvart þegar tár sáust falla á meðal ítölsku leikmannanna að leik loknum. "Við berum höfuðið hátt þótt við séum á leið heim því við áttum sigurinn skilið í leiknum gegn Svíum," sagði Giovanni Trapattoni, þjálfari Ítala, eftir leikinn, en búast má við því að hann verði harðlega gagnrýndur á næstu dögum fyrir slaka frammistöðu Ítala í keppninni. Sigurinn hjá Ítölum var ekki auðfenginn, því þótt Búlgarar hafi fyrirfram ekki átt neina möguleika á að komast áfram var eingöngu spilað upp á heiðurinn og börðust þeir grimmilega gegn nokkuð breyttu liði Ítala. Mjög óvænt náðu þeir forystu með marki Martin Petrov úr vítaspyrnu á síðustu mínútu fyrri hálfleiks, en það voru ekki nema þrjár mínútur liðnar af seinni hálfleik þegar Simone Perrotta jafnaði leikinn eftir þunga sókn. Síðan var blásið til stórsóknar af hálfu Ítala, enda kom ekkert nema sigur til greina hjá þeim ef þeir ætluðu sér áfram. Eftir því sem á leið jókst sóknarþunginn en lítið gekk. Þar að auki var dómarinn ekki hliðhollur Ítölum og var augljósri vítaspyrnu sleppt þegar skammt var eftir. Það var síðan ekki fyrr en eftir hefðbundinn leiktíma sem Antonio Cassano tryggði Ítölum sigurinn, Ítalir réðu sér vart af kæti og allt vitlaust á vellinum. Í miðjum fagnaðarlátunum fengu þeir síðan fregnir af því að Svíar hefðu jafnað gegn Dönum og var þá gleðin ekki lengi að breytast í martröð. Ítalir áttu engan möguleika á að komast áfram þar sem innbyrðis markatala Svía og Dana yrði ávallt betri en þeirra.
Íslenski boltinn Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn Sló heimsmetið í fjórtánda sinn Sport Beit andstæðing á HM Sport „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Enski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: ÍA - Afturelding | Botnliðin eigast við Verður væntanlega ráðinn 89 dögum eftir að hann var rekinn City rak barþjón sem mætti í United-treyju í vinnuna Sló heimsmetið í fjórtánda sinn „United er að keppa við hina Ferrari-bílana en með Skoda-vél“ Krísa í Kansas Sigur færir Eyjamönnum sæti í efri hlutanum Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Beit andstæðing á HM „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Sjáðu mörkin úr mettapi KR Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ „Arteta hefur aldrei verið með jafn góðan hóp og núna“ Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Dagskráin í dag: Mikilvægir leikir í lokaumferðinni Skoraði hundraðasta markið eftir 637 daga fjarveru Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Uppgjör: Valur - Stjarnan 1-2 | Stjarnan mætt af fullum þunga í titilbaráttuna Glódís langbest Íslendinga í nýja leiknum Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn „Hrikalega sáttur með þetta“ „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Börsungar fóru illa með Valencia Hildur lagði upp í Madrídarslagnum „Búnir að æfa það að setja Sigurjón upp í senterinn“ Daníel Tristan skoraði tvö og benti á Guðjohnsen-nafnið Uppgjörið: KA - Vestri 4-1 | Frábær sigur dugði ekki til Sjá meira