Segir Kristin hafa fengið viðvörun 29. september 2004 00:01 "
Kristinn er ekki rekinn úr flokknum. Þetta er viðvörun. Félagar hans í þingflokknum sætta sig ekki við framgöngu hans og telja að hann geti ekki gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn," segir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Þingflokkur Framsóknarflokksins ákvað á þriðjudag að útiloka Kristin H. Gunnarsson þingmann úr öllum fastanefndum þingsins. "Kristinn rekst ekki í flokknum og hefur tapað því sem hann hefur fengið. Hann átti mikil tækifæri innan Framsóknarflokksins, varð formaður þingflokksins og formaður stjórnar Byggðastofnunar, hvort tveggja ráðherraígildi. Þessu hefur hann tapað niður. Þótt hann beri kannski ekki alla ábyrgð á þessu verður hann sjálfur að líta í eigin barm hvernig þetta hefur þróast," segir Guðni. Mikil óánægja er meðal framsóknarmanna víðs vegar um landið um ákvörðun þingflokksins. Sigrún Magnúsdóttir, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur suður, segir að athæfi þingflokksins sé refsivert. "Ég hef aldrei séð jafn gróft einelti sem á sér stað fyrir framan alþjóð að auki," segir hún. "Kristinn hefur verið í andstöðu við flokksforustuna í að minnsta kosti tveimur málum, en ekki er þar með sagt að hann hafi verið í andstöðu við flokksmenn," segir hún. "Í stað Kristins eru komnir tveir unglingar með ábyrgðarmikil störf í þingnefndum. Börnin eru að taka yfir. Þau hlýða þó," segir Sigrún. "Það er aðeins einn sannleikur í Framsókn," segir Sigrún. Albertína Elíasdóttir, formaður Félags ungra framsóknarmanna á norðanverðum Vestfjörðum, segir aðgerðir þingflokksins verulega harkalegar og lóð á vogarskálar þeirra sem gagnrýnt hafa Framsóknarflokkinn fyrir að leyfa ekki fleiri en einni skoðun að heyrast.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira