Innlent

Flugfreyjur kanna rétt sinn

Flugfreyjufélag Íslands er nú að kanna lögmæti þess að flugfélagið Iceland Express hefur sagt öllum flugfreyjum félagsins upp, eins og við greindum frá í kvöldfréttum, og hyggst framvegis nýta starfskrafta flugfreyja frá flugrekandanum Astreus sem leggur félaginu til flugmenn. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar vinna erlendu flugfreyjurnar á lægri launum en þær íslensku en félagið hefur bent íslensku flugfreyjunum á að ráða sig hjá erlenda rekstrarfélaginu, ef þær vilja vinna áfram hjá Iceland Express. Þykir flugfreyjum það skjóta skökku við að þurfa að ráða sig í útlöndum til að vinna á Íslandiog munu meðal annars leita álits Alþýðusambands Íslands á því. Um það bil 40 íslenskar flugfreyjur starfa hjá félaginu og hafa þær þriggja mánaða uppsagnarfrest, þannig að þær hætta allar um áramót að óbreyttu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×