Innlent

Útiloka ekki sölu

Framkvæmdastjóri Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, útilokar ekki að ritstjórnarhúsnæði blaðsins við Kringluna verði selt og starfsemin flutt á svæði nýrrar prentsmiðju blaðsins við Rauðavatn. Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskólinn eru meðal þeirra sem hafa áhuga á að kaupa Morgunblaðshúsið. Þegar ný prentsmiðja Morgunblaðsins var tekin í notkun í haust fór blaðið að leita hófanna með hvernig hægt væri að nýta húsnæði gömlu prentsmiðjunnar við Kringluna og byggingarétt, norðan við húsnæðið, sem fylgir með. Að sögn Hallgríms Geirssonar, framkvæmdastjóra Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, hefur félagið átt í viðræðum við þrjú fasteignafélög vegna sölunnar á húsnæðinu og í þeim viðræðum hafa komið upp fyrirspurnir um sölu á húsnæðinu sem hýsir ritstjórnarskrifstofur blaðsins. Hallgrímur segir stefnt að því að ljúka við sölu á gömlu prentsmiðjunni fyrir lok ársins. Hann útlokar ekki að ritstjórnarskriftofurnar verði einnig seldar, ef viðunandi kjör náist, og að starfsemin verði í framtíðinni á sama stað og nýja prentsmiðja Morgunblaðsins við Rauðavatn. Hallgrímur undirstrikar þó að stjórn Árvakurs, hafi enn enga ákvörðun tekið í þessum efnum. Meðal þeirra sem lýst hafa áhuga á að kaupa Morgunblaðshúsið við Kringluna er sameinaður háskóli Háskólans í Reykjavík og Tækniháskólans, og verður unnið í málinu á næstu misserum. Háskóli Reykjavíkur er þegar á Kringlusvæðinu, en það er talið fýsilegt til frekari uppbygginar háskólanna. Skólarnir eru að kanna og skoða svæði við Vatnsmýrina og við Keldnaholt. Sameining skólanna, með samtals um 2500 nemendur, tekur að fullu gildi næsta haust og er markmiðið að þeir verði komnir undir eitt þak, ekki síðar en haustið 2007.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×