Erlent

Frakkar styðja ályktun

Frakkar hafa ákveðið að styðja nýja ályktun Breta og Bandaríkjamanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, um valdaframsal til Íraka. Frakkar eru enn ekki fullkomlega sáttir við tillöguna, en Barnier utanríkisráðherra segir að þeir muni engu að síður greiða henni atkvæði sitt í öryggisráðinu í dag. Það hafi verið tekið tillit til helstu breytingatillagna þeirra. Samkvæmt nýju ályktuninni mun ný bráðabirgðaríkisstjórn Íraks fá yfirstjórn yfir helstu hernaðaraðgerðum í landinu. Búist er við að ályktunin verði samþykkt einróma í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×