Hunda leitað 11. október 2004 00:01
Hundaeftirlit Reykjavíkurborgar leitar tveggja hunda sem rifu í sig heimiliskött í Seljahverfi fyrir helgi. Fólk í hverfinu hefur ítrekað kvartað yfir því að hundarnir gangi lausir. Ævi heimiliskattarins Pjakks fékk snöggan endi þegar hundarnir eltu hann milli garða í Steinaseli. Hann var stór og feitur og svo virðist sem hann hafi ekki náð að smeygja sér yfir girðingu í skjól. Steinn Sigurðsson, eigandi kattarins segir afar sárt að missa á eftir kettinum sínum, sem hafi verið hvers manns hugljúfi. Vissulega eru til dæmi um að hundar hafi banað köttum, jafnvel hundar í taumi. Litlir kærleikar eru milli hunda og katta og oft óljóst hvor tegundin á upptökin að átökum. Hundarnir í Seljahverfi munu þó oftsinnis hafa gengið um lausir og vakið ótta meðal íbúa. Um er að ræða hunda af Rottweiler og Doberman kyni. Hvorugur er skráður eða tryggður. Vegna kvartana hefur hundaeftirlitsmaður rætt við eiganda annars þeirra og farið fram á úrbætur en hann er enn óskráður og gekk laus þegar hann náði í skottið á Pjakki. Steinn segist ekkert hafa á móti hundum, en þessir hundar séu einfaldlega ekki gæludýr, þeir séu mjög hættulegir. Að sögn Guðmundar Friðrikssonar, deildarstjóra Dýraeftirlits í borginni voru hundarnir teknir frá eigendum sínum í dag. Hann segist efast um að málinu ljúki með því að þeir fái skráningu. Samkvæmt samþykktum um hundahald í Reykjavík mun dýralæknir eða hundaþjálfari meta hvort þeir eru hættulegir. Teljist þeir vera það, verður þeim lógað.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Sjá meira