Gegn þjónustuskerðingu Landspítala 17. júní 2004 00:01 "
Ég er að athuga hvort við getum ekki stýrt málum án þess að lækka þjónustustig spítalans frekar en orðið er," sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra um stöðu Landspítala - háskólasjúkrahúss í fjárlagagerð fyrir næsta ár. Spurður kvaðst hann ekki vilja tjá sig um hvort til þyrfti tilslakanir á þeim ramma sem stjórnvöld hefðu sett um rekstur LSH, en verið væri að fara í gegnum með hvaða hætti væri hægt að meðhöndla fjármál spítalans. "Það verður alltaf að hafa ýmiss konar aðhald í svo umfangsmiklum rekstri sem þetta er," sagði ráðherra. "Því hefur verið haldið fram að lækka þurfi þjónustustig spítalans frekar en orðið er. Ég hef viljað leita allra ráða til að þurfa ekki að fara þá leið." Spurður hvort hann væri beinlíns mótfallinn því að lækka þjónustustigið á LSH svaraði ráðherra: "Þess vegna hef ég verið að skoða það, að sjálfsögðu. En við erum með okkar markmið í ríkisfjármálum og ég er hluti af því dæmi." Stjórnvöld hafa gert Landspítala - háskólasjúkrahúsi að spara 700 milljónir á ári í tvö ár. "Menn hafa verið í aðgerðum þar í upphafi ársins, sem eru nú að skila sér og munu væntanlega skila sér á næsta ári." Spurður um niðurstöður Jónínunefndarinnar svokölluðu, sem er ráðherraskipuð, kvaðst ráðherra hafa átt von á áfangaskýrslu frá henni á vordögum. "En vorið líður hratt," sagði hann. Umrædd nefnd vinnur að því að marka spítalanum skýrari stöðu í heilbrigðisþjónustunni en verið hefur. Ráðherra sagði að ekki væri þar með sagt að það héngi allt á því nefndarstarfi, en hann hefði lagt áherslu á að því yrði flýtt. "Við vinnum að málefnum spítalans þótt nefndin sé í gangi," sagði hann. "En það er búið að leggja í þetta heilmikla vinnu og margir aðilar hafa lagt þarna saman krafta sína, þannig að það væri gott og gagnlegt fyrir mig að fá skýrslu frá nefndinni, þótt það skipti ekki sköpum um málefni dagsins."
Fréttir Innlent Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira