Erlent
SAS hættir notkun á Dash-vélum Stjórn SAS flugfélagsins hefur ákveðið að hætta alfarið allri notkun á Dash 8/Q400 vélum í sinni eigu. Þessi ákvörðun var kynnt á fréttamannafundi SAS sem var að ljúka í þessu. Erlent 28.10.2007 14:26
Arnold lofar að hafa hendur í hári brennuvarga Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu hefur heitið því að hafa hendur í hári þeirra sem grunaðir eru um að hafa verið valdir að skógareldum þeim sem geysað hafa í ríkinu undanfarna daga. A.m.k. tveir af eldunum hófust með íkveikju og grunur leikur á íkveikju í tveimur tilvikum í viðbót. Erlent 28.10.2007 14:17
Talibanar felldir í átökum í Afganistan Áttatíu skæruliðar talibana lágu í valnum eftir sex klukkustunda bardaga í suðurhluta Afganistans, að sögn talsmanns bandaríska hersins í morgun. Erlent 28.10.2007 13:15
Þýskir veitingahúsaeigendur mótmæla reykingabanni Veitingahúsaeigendur í Neðra Saxlandi í Þýskalandi mótmæla harðlega reykingabanni sem tók gildi fyrsta október. Þeir stóðu á aðaltorgi gamla bæjarins í Frankfurt í gær og sögðu að reykingabannið hefði haft veruleg áhrif á krár og minni veitingahús. Erlent 28.10.2007 13:14
Átök í norðvesturhluta Pakistans Spenna magnast nú í norðvesturhéruðum Pakistans. Þar hafa talibanar verið að hreiðra um sig og láta stöðugt meira til sín taka. Erlent 28.10.2007 13:12
Presturinn, ástkona hans og fasteignasalinn Ítalir ræða fátt annað þessa dagana en fréttir frá þorpinu Monterosso þar sem presti staðarins hefur verið vikið úr starfi fyrir að eiga ástkonu í þorpinu. Sjálfur segir presturinn, Don Sante Sguotti, að fasteignasali sem falast hefur eftir landi í eigu kirkjunnar hafi komið af stað orðrómi um að hann ætti barn með ástkonu sinni. Erlent 28.10.2007 12:11
Madeleine rænt eftir pöntun Valinn hópur einkaspæjara sem nú leitar að Madeleine McCann telur að ránið á henni hafi verið eftir pöntun. Erlent 28.10.2007 10:44
SAS aflýsir grimmt eftir Dash-óhapp Frá því að einni af Dash-vélum SAS flugfélagsins hlekktist á í lendingu á Kastrup-flugvelli í gærdag hefur SAS aflýst 57 flugferðum sínum með Dash8/Q400 vélum . Danska flugmálastjórnin setti flugbann á allar vélar sínar af þessari tegund eftir óhappið en annað hjólastellið gaf sig í lendingu Dash-vélarinnar. Erlent 28.10.2007 09:42
Mexíkanar fórust í skógareldunum í Kaliforníu Nú er komið í ljós að ólöglegir innflytjendur frá Mexíkó hafa látist í skógareldunum sem geysað hafa í Kaliforníu. Fjögur skaðbrunnin lík hafa fundist við landamærin að Mexíkó sem talin eru af innflytjendum. Nú er vitað að a.m.k. 14 manns hafa farist í þessum eldsvorðum. Erlent 27.10.2007 20:15
Bhutto heimsækir heimasveitina Benazir Bhutto lét líflátshótanir ekki aftra sér frá því að heimsækja gröf föður síns í heimasveit sinni í Pakistan í dag. Um fjögur þúsund stuðningsmenn Benazir Bhutto tóku á móti henni við komuna til Sindh, þar sem hennar pólitíska bakland er. Erlent 27.10.2007 18:55
Dash átta vél hlekkist á - enn einu sinni Enn einni Dash átta flugvélinni hlekktist á í dag, í þetta sinn SAS flugvél sem var að lenda á Kaupmannahafnarflugvelli. Hjólabúnaður vélarinnar gaf sig þegar hún lenti á flugbrautinni, með 44 farþega innanborðs. Erlent 27.10.2007 18:51
Höfuðpaurinn í árásinni á USS Cole látinn laus Stjórnvöld í Jemen hafa leyst úr haldi Jamal al-Badawi höfuðpaurinn í hryðjuverkaárásinni á bandaríska herskipið USS Cole. Jamal hefur setið í fangelsi síðan 2003 en hefur tvisvar náð að flýja úr vistinni, síðast í fyrra. Erlent 27.10.2007 18:15
Undirbúnir fyrir árás uppvakninga Lögreglustjórinn í bænum Lansing í Michigan, Bruce Ferguson, segir að hann og menn sínir séu vel undirbúnir ef uppvakningar (zombies) gera árás á bæinn. Hefur hann m.a. fyllt lögreglustöð sína af vélsögum vegna þessa. Erlent 27.10.2007 13:51
Viðræður Íraka og Tyrkja fara út um þúfur Viðræður milli stjórnvalda í Írak og Tyrklandi um leiðir til að koma í veg fyrir árásir kúrdískra skæruliða hafa farið út um þúfur. Tyrkneskar herflugvélar sjást nú á stöðugum eftirlitsferðum um landamærin við Írak. Erlent 27.10.2007 13:19
Bhutto fagnað við komu í heimaþorp sitt Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans heimsótti heimaþorp sitt í dag, í fyrsta sinn eftir komuna til Pakistans. Um fjögur þúsund stuðningsmenn hennar tóku á móti henni. Erlent 27.10.2007 13:16
Litvinenko var breskur njósnari Breska blaðið Daily Mail greinir frá því að Rússinn Alexander Litvinenko hafi verið breskur njósnari og þegið 2.000 pund í laun á mánuði frá MI6. Litvinenko var myrtur í London í fyrra með geislavirka efninu polonium 210 og er talið að fyrrverandi meðlimir rússnesku öryggisþjónustunnar hafi verið þar að verki. Erlent 27.10.2007 13:08
Mynd Elton John er ekki klám Ríkissaksóknari Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að mynd af tveimur nöktum stúlkum í eigu Sir Elton John sé ekki klám. Myndin sem tekin var af bandaríska ljósmyndaranum Nan Goldin var gerð upptæk á sýningu í listamiðstöðinni í Gateshead í síðasta mánuði. Erlent 27.10.2007 12:07
Mistök að aðskilja ríki og kirkju, segir Person Göran Person fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar segir að það hafi verið söguleg mistök að skilja að ríki og kirkju í Svíþjóð eins og gert var árið 2000. Þetta kemur fram í ævisögu Person "Min vej, mine valg", sem kom út nú fyrir helgina. Erlent 27.10.2007 11:03
Er þetta ræningi Maddie? McCann fjölskyldan hefur sent frá sér teikningu listamanns af hugsanlegum mannræningja dóttur þeirra Madeleine. Teikningin er byggð á frásögn Jane Tanner, vini þeirra Jerry og Kate McCann, en hún snæddi kvöldverð með þeim hjónum á þeim tíma sem Madeleine var rænt í Portúgal. Erlent 27.10.2007 09:36
Skyndibitaraðþjófar handteknir í Kanada Lögreglan í Toronto í Kanada handtók í dag tvo karlmenn og eina konu fyrir rúmlega 200 innbrot í skyndibitastaði í borginni. Fólkið var búið að stunda iðju sína í langan tíma áður en það náðist fyrir tilviljun. Erlent 26.10.2007 20:50
Boða hertari aðgerðir gegn reykingum Stjórnarandstaðan í Danmörku boðar hertari aðgerðir gegn reykingum nái hún að fella ríkisstjórnina í komandi kosningum. Segir hún núverandi reykingalög ekki nógu góð í að vernda fólk fyrir óbeinum reykingum. Erlent 26.10.2007 20:22
Vilja banna þýska þjóðernisflokkinn Þýski jafnaðarmannaflokkurinn, SPD, vill láta banna starfsemi þýska þjóðernisflokksins, NPD. Ályktun þessa efnis var samþykkt á flokksþingi þýskra jafnaðarmanna í Hamborg í dag. Erlent 26.10.2007 19:46
Grunur um gin- og klaufaveikismit á Kýpur Yfirvöld á Kýpur rannsaka nú hvort búfénaður á búgarði í suðausturhluta eyjarinnar hafi sýkst af gin- og klaufaveiki. Varnarsvæðið hefur verið afmarkað í kringum býlið á meðan vísindamenn rannsaka sýni sem tekin voru úr búfénaðinum. Erlent 26.10.2007 19:22
Hryðjuverkamaður dæmdur í ævilangt fangelsi Alsírbúinn Rachid Ramda var í Frakklandi í dag dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir þátt sinn í sprengjuárásunum á neðanjarðarlestarkerfið í París árið 1995. Átta manns létust í árásunum og 200 særðust. Erlent 26.10.2007 18:55
Hárlokkur af Che Guevara seldur á 6,5 milljónir Hárlokkur af byltingarmanninum Che Guevara var seldur á uppboði í Bandaríkjunum í dag fyrir um 6,5 milljónir króna. Kaupandinn er sjötugur bóksali í Texas en seljandinn er fyrrum leyniþjónustumaður hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA. Erlent 26.10.2007 18:45
Fagna refsiaðgerðum en vilja ekki árás á Íran Hópur útlægra Írana fagnaði í dag auknum refsiaðgerðum sem Bandaríkjastjórn kynnti í gær gagnvart Íran. Á sama tíma ágerast stöðugt vangaveltur um að í Washington sé verið að ráðgera árás á Íran. Erlent 26.10.2007 18:32
Vilja banna andlitsslæður í kjörklefa Banna á múslimskum konum að vera með slæðu fyrir andlitið þegar þær ganga inn í kjörklefa í Kanada samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir kanadíska þingið. Með þessu á að tryggja að auðvelt verði fyrir starfsmenn kjörstjórnar að bera kennsl á viðkomandi. Erlent 26.10.2007 18:31
Íslensk fjölskylda á um sárt að binda eftir eldana Meðal þeirra sem urðu illilega fyrir barðinu á eldunum í Kaliforníu var fjölskylda Maríu Berglindar Jónsdóttur. Dóttir hennar missti húsið sitt og ætlar að flytja til öruggari svæða með manni sínum og þremur börnum. Þau gista nú hjá Maríu. Erlent 26.10.2007 18:29
Lofar að láta smyglara gjalda fyrir sinn glæp Idriss Deby, forseti Afríkuríkisins Chad, hét því í dag að Frakkarnir níu sem voru handteknir fyrir að reyna smygla 103 börnum úr landi fengju að gjalda fyrir glæp sinn. Hann sagðist ætla gera allt í sínu valdi til að svo megi verða. Erlent 26.10.2007 18:13
Grunsamlegur búnaður finnst í ræðismannabústað Mexíkó í New York Lögreglan í New York í Bandaríkjunum rannsakar nú grunsamlegan búnað sem fannst við bústað ræðismanns Mexíkó þar í borg. Svæðið í kringum bústaðinn hefur verið girt af en óttast er að um sprengju sé að ræða. Erlent 26.10.2007 18:00