Erlent
Skrúfað fyrir gas til Úkraínu Rússneka orkufyrirtækið Gazprom skrúfaði í morgun fyrir gas til Úkraínu. Það var gert vegna deilna um ógreidda reikninga og verð á gasi fyrir árið 2009. Evrópubúar óttast gasskort því Gazprom er með fjóðurngs markaðshlutdeild á Evrópusambandssvæðinu og gas flutt í gegnum leiðslur sem liggja um Úkraínu. Erlent 1.1.2009 13:52
Obama álíka vinsæll og Reagan Þrír fjórðu Bandaríkjamanna telja Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseta, sterkan og einarðan leiðtoga. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar. Forseti Bandaríkjanna hefur ekki fengið jafn góða útkomu hvað þetta varðar í nærri þrjá áratugi. Erlent 1.1.2009 13:39
59 létu lífið á áramótafögnuði í Bangkok 59 manns létu lífið á næturklúbbi í borginni Bangkoka á Tælandi í gærkvöldi og að minnsta kosti 180 eru slasaðir eftir að eldur kom upp á næturklúbbnum. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá flugeldum. Erlent 1.1.2009 10:49
Hernaði verður haldið áfram á Gaza Núverandi ástand býður ekki upp á vopnahlé á Gaza. Þetta sagði Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels við blaðamenn að loknum fundi með öryggisráði landsins í dag. Erlent 31.12.2008 13:29
Obama á móti arftakanum Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, hvetur demókrata á Bandaríkjaþingi til að hafna arftaka sínum sem ríkisstjórinn í Illinois, hefur valið. Erlent 31.12.2008 12:09
Frakkar miðla málum á Gaza Frakkar reyna nú að miðla málum milli Ísraela og Hamas-samtakanna á Gaza. Sarkozy Frakklandsforseti íhugar að halda til Ísraels til fundar við leiðtoga þar. Ísraelar segja hugmyndir frakka um tveggja sólahringa vopnahlé til að hjálpa særðum óraunhæfar. Erlent 31.12.2008 12:01
Ísraelar búa sig undir umfangsmikinn stríðsrekstur Ísraelar hafa undirbúið umfangsmikið stríð gegn Hamas-samtökunum á Gaza og loftárásir síðustu daga aðeins fyrsta skrefið. Ísraelskir miðlar hafa þetta eftir forsætisráðherra Ísraels og segja hann gera ráð fyrir hernaði næstu vikurnar. Erlent 30.12.2008 12:00
Svefnleysi getur leitt til vænisýki Svefnleysi getur leitt til vænisýki og almenns óyndis segja breskir vísindamenn eftir ítarlega rannsóknarvinnu. Erlent 30.12.2008 08:10
Efni sem líkist kalki fannst á Mars - tákn um líf? Bandaríska geimferðastofnunin NASA stendur nú á því eins og hundur á roði að steinefni sem líkist mjög hinu jarðneska kalki og leysist upp á örskotsstundu í sýrubaði finnist á rauða risanum Mars og sé hvorki meira né minna en órækt sönnunargagn um að á Mars hafi líf þrifist í fyrndinni - og er þá átt við fyrir milljörðum ára. Erlent 30.12.2008 07:57
Minnst sjö látnir eftir snjóflóð í Kanada Að minnsta kosti sjö manns eru látnir eftir að hafa orðið fyrir snjóflóði í Klettafjöllunum í Kanada í gærkvöldi. Sjömenningarnir voru í hópi að minnsta kosti átta manns sem voru á snjósleðaferðalagi í þeim hluta fjallgarðsins sem liggur um Bresku-Kólumbíu. Erlent 30.12.2008 07:42
Kólerufaraldurinn í Simbabve hvergi í rénun Kólerufaraldurinn í Simbabve hefur nú lagt tæplega 1.600 manns að velli auk þess sem 30.000 sýkingartilfelli hafa verið tilkynnt, að sögn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Erlent 30.12.2008 07:39
Bretar stórherða reglur um ökuleyfi Breskir ökumenn munu í framtíðinni þurfa að gangast undir stífa læknisrannsókn á tíu ára fresti til að halda ökuskírteininu nái ný reglugerð bresku umferðarstofunnar fram að ganga. Erlent 30.12.2008 07:36
Árásum á Gaza mótmælt víða Árásir Ísraelshers á Hamas-liða á Gaza-svæðinu hafa leitt til mótmæla um allan heim. Eftir að fregnist bárust af því í gær að árásirnar hefðu orðið meira en 300 manns að bana safnaðist fólk saman í London, Berlín, París, Kaupmannahöfn og meira að segja í Caracas, höfuðborg Venesúela, til að mótmæla stríði Ísraels- og Palestínumanna. Erlent 30.12.2008 07:32
Pakistanar bera klæði á vopnin Pakistanski hershöfðinginn Asfaq Parvez Kayani stígur nú fram og ávarpar indversk stjórnvöld með beiðni um að draga úr þeirri spennu sem myndast hefur milli ríkjanna í kjölfar árása pakistanskra hryðjuverkasamtaka á indversku borgina Mumbai í lok nóvember. Erlent 30.12.2008 07:29
Þýsk stjórnvöld skera upp herör gegn nýnasistum Þýsk stjórnvöld hyggjast grípa til aðgerða gegn nýnasistum og yfirgangi þeirra gagnvart minnihlutahópum en slíkum uppákomum hefur fjölgað um 30 prósent á árinu sem er að líða. Erlent 30.12.2008 07:26
Elsti maður Bandaríkjanna lést í dag Elsti maður Bandaríkjanna er látinn. Hinn 112 ára gamli George Rene Francis lést í Kaliforníu í dag samkvæmt Sacramento Bee dagblaðinu. George sem var elsti maður landsins lést úr hjartaáfalli á sjúkrahúsi. Erlent 29.12.2008 23:30
Búist við nýrri ríkisstjórn í Belgíu á morgun Búist er við því að að stjórnmálaflokkar í Belgíu nái að mynda nýja ríkisstjórn í landinu á morgun. Það er Herman Van Rompuy sem fenginn var til þess að koma saman nýrri stjórn sem heldur þessu fram. Erlent 29.12.2008 22:20
Ísraelsk kona lést í eldflaugaárás palestínumanna Ísraelsk kona lét lífið í suðurhluta borgarinna Ashdod nú í kvöld eftir að Palestínskir hermenn skutu eldflaug á borgina. Þetta er annað dauðsfallið með þessum hætti á innan við klukkutíma samkvæmt ísraelskum miðlum. Erlent 29.12.2008 21:18
Stólpagrín gert að Íslendingum Stólpagrín er gert að Íslendingum á vef norska blaðsins Aftenbladet í dag. Þar er saga þjóðarinnar rakin allt frá dögum Leifs heppna fram til dagsins í dag. Farið er háðuglega um íslenska útrásarvíkinga og efnahagshrunið hér á landi. Erlent 29.12.2008 16:24
Facebook bannar myndir af brjóstagjöf Þúsundir kvenna hafa mótmælt fyrir utan höfuðstöðvar tengslasíðunnar Facebook undanfarna daga, eftir að myndir af mæðrum að gefa börnum sínum brjóst voru fjarlægðar af vefnum. Erlent 29.12.2008 15:39
Ofalin tígrisdýr sett í megrun Tígrisdýrin í dýragarðinum í Kathmandu í Nepal eru komin í megrun. Bengaltígrarnir þrír hafa undanfarið fengið að gæða sér á buffalókjöti að vild og nú er svo komið að hinn yngsti er orðið 220 kíló að þyngd, og hefur þyngst um heil fjörtíu kíló undanfarna átta mánuði. Erlent 29.12.2008 13:51
Stefnuræðu frestað í Tælandi Ekkert varð af stefnuræðu Vejjajiva, nýs forsætisráðherra Taílands í morgun. Henni var frestað þar til síðar í dag vegna mótmæla fyrir utan þinghúsið í höfuðborginni Bangkok. Þar voru saman komnir stuðningsmenn fyrri stjórnarflokksins sem hrökklaðist nýlega frá völdum vegna kosningasvika. Erlent 29.12.2008 12:21
Fékk sjónvarpstæki ofan á sig og lést Fjögurra ára gömul stúlka í Norður-Wales lést eftir að sjónvarpstæki féll ofan á hana á heimili hennar á aðfangadagskvöld. Lögregla rannsakaði málið og komst að þeirri niðurstöðu að um hörmulegt slys hefði verið að ræða en þetta er í annað skiptið á árinu sem barn deyr í Wales eftir að verða undir sjónvarpi. Erlent 29.12.2008 07:37
Köld áramót í Bretlandi Bretar eiga að búa sig undir köld áramót og allt að 13 stiga frost fyrstu daga nýja ársins. Þetta segja veðurfréttamenn þar í landi og benda máli sínu til stuðnings á ískalt loft frá Síberíu sem væntanlegt sé til Bretlands á næstunni. Erlent 29.12.2008 07:32
Danska lögreglan vill gögn um rúmenska svikahrappa Danska lögreglan hyggst nú koma sér upp ítarlegum gagnagrunni yfir rúmenska þjófa og svikahrappa sem hún á í höggi við og hefur farið fram á það við rúmensk lögregluyfirvöld að fá sendar bakgrunnsupplýsingar um tæplega 700 Rúmena sem búsettir eru í Danmörku. Erlent 29.12.2008 07:28
Óánægður viðskiptavinur stakk eiganda pizzastaðar Tveir unglingar eru í haldi lögreglunnar í Sønderborg í Danmörku og tveggja annarra er leitað eftir árás á pizzastað í gærkvöldi þar sem eigandi staðarins var stunginn tvisvar sinnum í handlegginn. Erlent 29.12.2008 07:27
Jarðskjálfti upp á 5,8 stig í Afganistan Jarðskjálfti að styrkleika 5,8 stig á Richter skók Norðaustur-Afganistan snemma í morgun, að sögn Jarðfræðistofnunar Bandaríkjanna. Erlent 29.12.2008 07:21
Loftárásir halda áfram á Gaza Ísraelsmenn gefa engin grið í árásum sínum á Gaza-svæðið og vörpuðu ísraleskar þotur sprengjum á svæðið í morgun. Segja Ísraelsmenn árásirnar vera vörn gegn ítrekuðum eldflaugaskotum liðsmanna Hamas-samtakanna frá Gaza og inn í suðurhluta Ísraels. Erlent 29.12.2008 07:13
Lag ýfir kynþáttaáhyggjur Geisladiskur, sem Chip Saltsman, repúblikani frá Tennessee, sendi félögum sínum í landsnefnd Repúblikanaflokksins um jólin ætlar að draga dilk á eftir sér. Á disknum var að finna lag grínistans Paul Shanklin, sem þykir heldur íhaldssamur, Barack, the Magic Negro. Í laginu, sem sungið er við gamla hippaslagarann Puff, the Magic Dragon, er kynþáttauppruni Obama dreginn í efa. Erlent 29.12.2008 06:00
Fyrstu göngin undir Yangtze Fyrstu vegagöngin undir Yangtze-ána í Kína voru opnuð í gær. Vinna við göngin hefur tekið rúmlega fjögur ár og þau eru um þrír og hálfur kílómetri á lengd. Erlent 29.12.2008 05:00