Erlent
Hvetja almenning til að hjálpa hungruðum Bandaríkjastjórn hvetur almenning í landinu til að koma náunga sínum til hjálpar og aðstoða bágstadda með því að gefa þeim mat og aðrar nauðsynjar en um 15 prósent bandarískra heimila voru orðin þannig stödd í fyrra að ekki voru til peningar fyrir matvælum til að draga fram lífið. Erlent 25.11.2009 07:37
Átján uppreisnarmenn drepnir í Pakistan Pakistanskir hermenn drápu 18 uppreisnarmenn í Khyber-héraðinu í Norðvestur-Pakistan í gær. Uppreisnarmennirnir tilheyrðu Lashkar-e-islam-hryðjuverkasamtökunum en hermennirnir gerðu árás á búðir þeirra og tóku auk þess sex manns höndum. Erlent 25.11.2009 07:20
Stálu yfir 1.000 minkum Lögregla á Norður-Jótlandi rannsakar nú umfangsmesta loðdýraþjófnað í sögu Danmerkur en aðfaranótt þriðjudags stálu óþekktir og óprúttnir aðilar 1.023 lifandi minkum úr minkabúi nálægt Dybvad. Erlent 25.11.2009 07:18
Hægir á útbreiðslu HIV Um 25 milljónir manna hafa látist af völdum alnæmis í öllum heiminum og allt í allt hafa 60 milljónir smitast af HIV-veirunni síðan hún kom fyrst fram. Erlent 25.11.2009 07:17
Liðsmenn ungliðahreyfingar Baska handteknir Lögregla á Spáni handtók í gær 36 félaga í æskulýðsarmi ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska, en armurinn var bannaður árið 2007 vegna tengsla sinna við samtökin. Erlent 25.11.2009 07:12
Börn eiga að fá að vera skítug Það á að leyfa börnum að vera svolítið skítug endrum og eins. Í grein sem birtist í vísindaritinu Nature Medicine kemur fram að of mikið hreinlæti geti komið í veg fyrir að sár grói eðlilega. Erlent 25.11.2009 06:00
Alnæmisfaraldur leggur færri að velli Undanfarin tvö ár hefur fjöldi HIV-smitaðra í heiminum staðið nokkurn veginn í stað, í rúmum 33 milljónum. Dauðsföllum af völdum alnæmisveirunnar hefur fækkað um tíu prósent undanfarin fimm ár. Erlent 25.11.2009 04:15
Walesa í mál við Kaczinsky Lech Walesa, fyrrverandi forseti Póllands, er kominn í mál við Lech Kaczynski, núverandi forseta. Walesa krefst afsökunarbeiðni frá Kaczynski eða skaðabóta ella. Erlent 25.11.2009 02:00
Veittu 12.600 milljarða leynilán Seðlabanki Englands veitti tveimur bönkum 62 milljarða punda leynilegt lán þegar bankakreppan skall á haustið 2008. Þetta kom fram í máli Mervins King seðlabankastjóra sem í gær sat fyrir svörum breskrar þingnefndar. Erlent 25.11.2009 01:00
Tveir yfirmenn voru líflátnir Tveir menn voru líflátnir í Kína í gær vegna framleiðslu og sölu á eitruðu mjólkurdufti, sem kostaði að minnsta kosti sex börn lífið síðastliðið vor. Talið er að meira en 300 þúsund manns hafi veikst eftir að hafa neytt mjólkurduftsins. Í duftinu var efni sem getur valdið nýrnabilun og nýrnasteinum. Efninu var bætt út í til þess að leyna því að mjólkin hafði verið útþynnt með vatni. Erlent 25.11.2009 00:30
Sýknaður af morðákæru Tæplega sextugur Breti, Brian Thomas að nafni, var fyrir helgi sýknaður af morðákæru vegna dauða eiginkonu hans, þrátt fyrir að hafa orðið henni að bana í júlí 2008. Erlent 25.11.2009 00:15
Sérsveitarmenn ákærðir fyrir að slá hryðjuverkamann Þrír þrautþjálfaðir sérsveitarmenn hjá Bandaríkjaher hafa verið ákærðir fyrir að slá meintan hryðjuverkamann sem þeir handsömuðu á dögunum í leynilegri aðgerð. Erlent 24.11.2009 23:33
Drengur með Asperger eyddi ellefu dögum í neðanjarðarlest Þrettán ára piltur með Asperger heilkennin fannst í neðanjarðarlest í New York eftir ellefu daga leit yfirvalda samkvæmt AP fréttastofunni. Móðir drengsins, Marisela Garcia, gagnrýnir lögregluna harkalega fyrir að hafa ekki brugðist nógu hratt við þegar tilkynnt var um hvarfið. Erlent 24.11.2009 21:55
Borgarís stefnir á Nýja Sjáland Hundruð risastórra borgarískaja frá Suðurskautinu stefna nú hraðbyri að Nýja Sjálandi. Erlent 24.11.2009 15:40
Loksins fann hann pabba Matthew Roberts eyddi mörgum árum í að hafa upp á blóðföður sínum en hann var ættleiddur árið 1968. Roberts er nú fjörutíu og eins árs gamall og starfar sem plötusnúður í Los Angeles. Erlent 24.11.2009 15:19
Við skulum geyma tengdó yfir jólin Holiday Inn hótelkeðjan í Bretlandi býður fjölskyldum sérstakan afslátt fyrir tengdamæður yfir jól og áramót, til þess að fjölskyldumeðlimir geti fengið smá frí hver frá öðrum. Erlent 24.11.2009 14:53
Langamma setur met í heróínsmygli Sjötíu og tveggja ára gömul þýsk kona hefur verið ákærð fyrir að reyna að smygla ellefu kílóum af heróíni til Noregs. Erlent 24.11.2009 14:30
Passið ykkur á Obama Óteljandi vopnaðir lögreglumenn og öryggisverðir munu gæta Baracks Obama forseta Bandaríkjanna þegar hann kemur til Oslóar í desember til þess að taka við friðarverðlaunum Nóbels. Erlent 24.11.2009 11:22
Þrjúhundruð þúsund dýrum slátrað á trúarhátíð Dýravinir og samtök hafa fordæmt fórnarhátíð í Nepal þar sem yfir 300 þúsund dýrum verður slátrað til dýrðar gyðjunni Gadhimai. Erlent 24.11.2009 10:05
Helmingurinn myndi stela viðskiptagögnum á vinnustað Næstum helmingur starfsmanna fjármálafyrirtækja í London og New York segjast myndu hafa á brott með sér viðkvæmar viðskiptaupplýsingar af vinnustað sínum yrðu þeir reknir. Erlent 24.11.2009 08:51
Eintak af bók Lewis Carroll boðið upp Eintak af bók breska rithöfundarins Lewis Carroll, Gegnum spegilinn, sem var framhaldið af bók hans um Lísu í Undralandi, verður seld á uppboði í Los Angeles í desember. Erlent 24.11.2009 08:21
Indverjar skutu eldflaug í tilraunaskyni Indverjar hafa skotið á loft meðaldrægri kjarnorkueldflaug í tilraunaskyni en flaugin getur borið kjarnavopn. Erlent 24.11.2009 07:14
Bjóða Ísraelsmönnum F-35 á hebresku Bandaríkjamenn hafa boðið Ísraelsher til sölu glænýjar F-35 orrustuþotur sem tilbúnar verði til afhendingar árið 2015, meira að segja með öllum kerfum og stjórntækjum á hebresku. Erlent 24.11.2009 07:09
Bresk lögregla beitir gömlum hegningarlögum Bresk lögregla beitir nú fyrir sig 300 ára gamalli löggjöf um samverknað til að koma lögum yfir og ákæra félaga í glæpaklíkum sem eru viðstaddir þegar alvarleg ofbeldisverk eru framin án þess að taka beinan þátt í þeim. Erlent 24.11.2009 07:07
Lögreglumaður dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir morð Tæplega þrítugur breskur lögreglumaður hefur verið dæmdur til 18 ára fangelsisvistar fyrir að myrða unnustu sína sem einnig var í lögreglunni. Erlent 24.11.2009 07:03
Morfín sagt örva krabbavöxt Æ fleiri vísbendingar eru um að morfín, sem krabbameinssjúklingum er gefið til að lina verki, geti örvað vöxt og útbreiðslu krabbameinsfrumna. Erlent 24.11.2009 05:15
Bandaríkin og Kína sögð hindra lausnir Evrópusambandið hvetur ráðamenn í Bandaríkjunum og Kína til þess að taka af skarið og setja sér markmið í loftslagsmálum, svo loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn verði ekki árangurslaus. Erlent 24.11.2009 00:45
Þúsundir nýrra dýrategunda Í djúpum Atlantshafsins er að finna fjöldann allan af áður óþekktum dýrategundum, sem sumar hverjar þykja harla undarlegar: Erlent 24.11.2009 00:15
Barnavernd í Bretlandi: Vistuðu barn hjá blindri konu á níræðisaldri Sama barnaverndarnefnd og sá um umdeilt mál Baby P., fóstraði tveggja ára gamalt barn hjá blindri konu á níræðisaldri samkvæmt The Daily Mail. Þar segir að nefndin sé sökuð um alvarlega vanrækslu eftir að þau skildu barnið eftir í umsjón konunnar sem var 82 ára gömul. Á meðan hún fóstraði tveggja ára gamlan dreng féll hún niður stiga. Nokkru síðar lést hún á spítala. Erlent 23.11.2009 23:30
Yngsti villingur Bretlands: Rekinn úr leikskóla vegna agabrota Yngsti villingur Bretlands, fjögurra á gamall snáði, hefur verið rekinn úr kaþólska leikskólanum sínum í bænum Preston, fyrir ýmis agabrot. Meðal þess sem litli villingurinn á að hafa gert af sér var að kalla fóstru sína öllum illum nöfnum eftir að hún fjarlægði hann frá ljósrofa sem hann kveikti og slökkti ítrekað á. Þá sparkaði hann í sköflunginn á einni fóstrunni eftir að hann lenti í harðvítugum deilum við samnemanda sinn vegna púsluspils. Erlent 23.11.2009 21:16