Erlent

Romney vann stórsigur í Flórída

Mitt Romney vann stórsigur í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Flórída. Þegar nær öll atkvæði höfðu verið talin í nótt var Romney með 47% atkvæða en Newt Gingrich með 32%. Rick Santorum endaði í þriðja sæti með 13% atkvæða og Ron Paul hlaut 7%.

Erlent

Tók dótturina með í klettaklifur

Einstæð móðir í Bretlandi hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að fara í klettaklifur með tveggja ára dóttur sína á bakinu. Hún gefur lítið fyrir gagnrýnina og segir að klifrið veiti dóttur sinni innblástur.

Erlent

Nýbirtar upptökur frá deginum sem Kennedy dó

Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna birti nýlega upptökur úr forsetaflugvél Bandaríkjanna, Air Force One, frá deginum þegar John F Kennedy var myrtur. Upptakan er 42 mínútna löng. Áður höfðu verið birtar upptökur úr vélinni en þessi 42 mínútna kafli var ekki inni í þeirri upptöku.

Erlent

Söfnuðu 40 milljónum vegna framboðsins

Stuðningsmenn Baracks Obama söfnuðu 40 milljónum bandaríkjadala á fjórða ársfjórðungi síðasta árs vegna væntanlegs framboðs hans til endurkjörs á þessu ári. Upphæðin sem safnað var nemur nærri fimm milljörðum íslenskra króna. Eignir framboðsins í lok ársins námu þá 82 milljónum dollara og skuldirnar námu þremur milljónum dollara. Þetta kemur fram í gögnum sem framboð hans skilaði til landskjörstjórnar í Bandaríkjunum í dag.

Erlent

Ótrúlegt "base-jump" í Singapúr

Ótrúlegt myndband sem sýnir ofurhuga stökkva af spilavíti í Singapúr hefur vakið gríðarlega athygli. Byggingin hentar afar vel fyrir „base-jump" en á þaki þess er gríðarstór sundlaug.

Erlent

Dularfullt skipsflak á botni Eystrasaltsins

Sænskir fjársjóðsleitarmenn hafa fundið dularfullan hlut á botni Eystrasaltsins. Hluturinn er disklaga og er á stærð við Boeing 747 farþegaþotu. Ævintýramennirnir leita nú leiða til að fjármagna frekari rannsóknir.

Erlent

Fyrrverandi forstjóri RBS sviptur aðalstign

Fred Goodwin, fyrrverandi bankastjóri Royal Bank of Scotland, hefur verið sviptur aðalstign. Sky fréttastofan greinir frá þessu í dag. Það hefur verið gríðarlegur þrýstingur á að hann yrði sviptur titlinum eftir að bankinn hrundi í miðri lausafjárkrísunni sem skók allan heiminn árið 2008.

Erlent

Áföllum fækkað um helming

Dauðsföllum af völdum hjartaáfalla hefur fækkað um ríflega helming í Englandi frá árinu 2002 ef marka má rannsóknir frá Oxford.

Erlent

Ekki náðist samstaða í Brussel

Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins (ESB) hittust í Brussel í gær til að klára viðræður um nýjar reglur sem tryggja eiga aga við ríkisfjármálastjórn í evrulöndunum. Með reglunum vilja leiðtogarnir koma í veg fyrir að evruríki geti safnað óhóflegum skuldum á ný.

Erlent

Sjö ráðherrar utan þjóðkirkju

Sjö ráðherrar af 23 í Danmörku eru ekki meðlimir í þjóðkirkjunni þar í landi, að því er fram kemur í Ekstra Bladet. Þetta heyrir til nokkurra tíðinda í sögulegu samhengi. Í síðustu ríkisstjórn, til dæmis settist enginn sem var utan við þjóðkirkjuna í ráðherrastól. Á meðal ráðherranna sjö eru varnarmálaráðherrann Nick Hækkerup og fjármálaráðherrann Bjarne Corydon, sem segist bera fulla virðingu fyrir þjóðkirkjunni. „En ég er ekki trúaður og þess vegna finnst mér eðlilegt að ég sé ekki meðlimur í þjóðkirkjunni,“ sagði hann.- þj

Erlent

Segjast bjartsýn á viðræður

Írönsk stjórnvöld hafa boðið sendifulltrúum Kjarnorkustofnunar Sameinuðu þjóðanna að vera lengur í landinu en þrjá daga, eins og upphaflega stóð til. Þetta er fyrsta heimsókn fulltrúa Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar til Írans frá því stofnunin sendi frá sér skýrslu í nóvember, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að sumar kjarnorkutilraunir Írana geti vart haft annan tilgang en þann, að gera framleiðslu kjarnorkuvopna mögulega.

Erlent

Suður-Afríkubúi er Tarzan endurborinn

Suður-Afríkubúinn DeWet Du Toit stefnir að því að verða raunverulegur Tarzan. Toit eyðir tíma sínum í frumskóginum þar sem hann felur sig fyrir hlébörðum og étur skordýr.

Erlent

Fjöldi fólks hefur fyrirfarið sér við að framleiða Apple vörur

Apple, fyrirtækið sem færir okkur iPhone, iPad og öll hin undratækin hagnaðist um 46 milljarða bandaríkjadali á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Upphæðin nemur um 5700 milljörðum króna. Fólkið sem vinnur við að setja hlutina saman, sem þessi tæki samanstanda af, þrælar aftur á móti tímunum saman á smánarlaunum við vinnu sína. Um þetta er fjallað í fréttaskýringu sem fréttastofan CBS sjónvarpsstöðvarinnar sýndi og er birtur á vef þeirra.

Erlent

Julian Assange leikur í The Simpsons

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verður í gestahlutverki í The Simpsons í febrúar. Assange er í stofufangelsi í Bretlandi og voru línur hans teknar upp símleiðis.

Erlent

Yfir 100 slösuðust í jarðskjálfta

Að minnsta kosti 112 manns slösuðust í Perú þegar að jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter skók strönd landsins um sjöleytið að íslenskum tíma í gærkvöld. Skjálftinn varð nærri borginni Ica í Perú. AP fréttastofan segir að 16 íbúðir hafi skemmst í skjálftanum. Hús í höfuðborg Perú, Lima, skulfu í skjálftanum þótt borgin sé í meira en 200 kílómetra fjarlægð.

Erlent

Kuldinn herjar á Evrópu - átján látnir í Úkraínu

Kuldatíð er nú í Evrópu og að minnsta kosti átján hafa látist úr kulda og vosbúð í Úkraínu, þar sem mikið hefur snjóað. Í Póllandi er staðfest að tíu séu látnir og andlát af völdum kuldans hafa einnig verið staðfest í Serbíu og Búlgaríu.

Erlent

Sjö ára fangelsi fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk

Tveir menn voru í dag dæmdir til sjö ára fangelsisvistar í Osló fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverkaárás í Danmörku. Þriðji maðurinn var sýknaður í málinu en hann fékk þó fjögurra mánaða dóm fyrir að kaupa efni sem nota má til sprengjugerðar. Mennirnir þrír eru allir innflytjendur með landvistarleyfi í Noregi. Skotmarkið í Danmörku voru ritstjórnarskrifstofur Jótlandspóstsins sem á sínum tíma birti skopmyndir af spámanni Múslima, Múhameð.

Erlent