Sport

Fá leyfi til að leika sér í fríinu

Pep Guardiola hefur gefið leikmönnum sínum þriggja daga frí eftir sigur á Southampton í undanúrslitum enska bikarsins um helgina. Þeir fái leyfi til að gera hvað sem þeim sýnist í fríinu áður en undirbúningur fyrir lokakafla tímabilsins hefst.

Enski boltinn

Hné­skel Franks Arons brotnaði

Tímabili Frank Arons Booker, leikmanns Vals í körfubolta, er lokið. Hann hnéskeljarbrotnaði í 79-72 sigri Vals á Grindavík í undanúrslitum Bónus deildar karla á Hlíðarenda í gærkvöld.

Körfubolti

Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld?

Stórleikur kvöldsins í Bestu-deild karla er viðureign Stjörnunnar og Vals á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðin hafa bæði unnið tvo leiki og tapað einum og eru með sex stig í deildinni. Jökull Ingason Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist vera spenntur fyrir kvöldinu og vonar að Samúel Kári Friðjónsson spili leikinn. Samúel var keyptur frá Stjörnunni til Vals á dögunum. En hans þátttaka í leiknum gæti kostað Val.

Íslenski boltinn

Mikil­vægt að endur­ræsa myndlykilinn

Breytingar hafa orðið á dagskrárniðurröðun á leikjum í Bestu deild karla í fótbolta á rásum Sýnar Sport í kvöld. Mikilvægt er fyrir þá sem eru með íslenska pakkann hjá Sýn að endurræsa myndlykla til að fá aðgang að leikjum KR við FH og Fram við ÍBV.

Íslenski boltinn

Fékk sér te­bolla með Ratcliffe

Michael Carrick, þjálfari Manchester United, átti óformlegan fund með Sir Jim Ratcliffe, meðeiganda þess, á æfingasvæði liðsins í síðustu viku. United leitar framtíðarstjóra.

Enski boltinn

Hall­grímur Jónas­son: „Staðan er bara al­var­leg“

„Ég er virkilega vonsvikinn með lélega frammistöðu, Keflavík átti bara skilið að vinna þennan leik. Þetta er bara langt frá því sem við viljum standa fyrir í KA, ég er bara virkilega ósáttur.“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 1-2 tap á móti Keflavík á heimavelli í dag. 

Íslenski boltinn

Elías Rafn hélt hreinu í toppslagnum

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Elías Rafn Ólafsson, hélt marki sínu hreinu þegar að hans lið, Midtjylland, gerði markalaust jafntefli við AGF í toppslag dönsku úrvalsdeildarinnar. Aðeins markatala skilur liðin að.

Fótbolti

Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“

Körfuboltadómarinn Davíð Tómas Tómasson hefur skipt um skoðun varðandi sigurkörfu Hilmars Smára Henningssonar í leik Stjörnunnar og Tindastóls í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Öfugt við það sem hann sagði í gær telur hann að dæma hefði átt skref á Hilmar Smára.

Körfubolti