Sport

Boehly selur og kveður Chelsea

Bandaríkjamennirnir Todd Boehly og Mark Walter hafa selt hluta sinn í enska knattspyrnufélaginu Chelsea til fjárfestingafélagsins Clearlake Capital og lokið störfum hjá félaginu.

Enski boltinn

Mun saga Arons endur­taka sig?

Íslendingurinn William Cole Campbell hefur valið að spila frekar fyrir bandaríska landsliðið frekar en það íslenska. Hann hefur spilað með yngri landsliðum Íslands en hefur nú gert það í síðasta skipti.

Fótbolti

Ó­fært frá Eyjum og leiknum frestað

Lægð yfir suðvesturhorninu gerir að verkum að ófært er til og frá Vestmannaeyjum. Leik Fram og ÍBV í Olís-deild karla í handbolta sem átti að fara fram í kvöld hefur því verið frestað.

Handbolti

Birta upp­töku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael

Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson þurfti að heyra kynþáttaníð og hinseginhatur í leik í dönsku úrvalsdeildinni. Framkvæmdastjóri Silkeborgar leyfði sér að efast um að Mikael segði satt frá en nú hafa sönnunargögn verið birt.

Fótbolti

„Þá mun ég reka mig sjálfur“

Arnar Gunnlaugsson segist ekki hafa rými til þess að fara í miklar tilraunir með unga leikmenn í varnarlínu Íslands í komandi keppnisleikjum. Fámenn varnarlína hefur verið hausverkur síðustu misseri.

Fótbolti

„Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“

Eitt af óvæntari nöfnunum í nýjasta landsliðshópi Íslands í fótbolta er Ísak Snær Þorvaldsson. Þessi sterkbyggði framherji gerði landsliðsþjálfaranum Arnari Gunnlaugssyni oft óleik þegar Arnar stýrði Víkingi, þá sem leikmaður Breiðabliks.

Fótbolti

„Hinna klúbbanna á Ís­landi að elta þá“

„Þetta er það besta sem ég hef séð til þeirra í dálítið langan tíma,“ sagði Bjarni Guðjónsson um 4-1 sigur Víkings á Keflavík í Bestu deild karla. Víkingur stefnir hraðbyri að Íslandsmeistaratitlinum og félagið fær mikið hrós vegna umgjarðar.

Íslenski boltinn

Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að

LIV-mótaröðin í golfi stendur á barmi gjaldþrots og óvíst um framtíð mótaraðarinnar eftir að Sádar drógu fjárframlög til hennar til baka. Óvissa er um framtíð kylfinga innan LIV sökum þessa.

Golf