Handbolti

HSÍ syrgir ein­stakan stuðnings­mann

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Freyr Arnarsson naut stuðnings afa síns úr stúkunni á mörgum stórmótum, ekki bara með A-landsliðinu heldur einnig með yngri landsliðum.
Arnar Freyr Arnarsson naut stuðnings afa síns úr stúkunni á mörgum stórmótum, ekki bara með A-landsliðinu heldur einnig með yngri landsliðum. vísir/Vilhelm

Handknattleikssamband Íslands minnist Sævars Þórs Sigurgeirssonar á miðlum sínum en þessi gallharði stuðningsmaður strákanna okkar lést þann 12. október síðastliðinn.

Sævar var afi Arnars Freys Arnarssonar og studdi því sérstaklega við línumanninn öfluga en einnig við alla strákana okkar.

„Það er skarð fyrir skildi í stúkunni. Frá árinu 2015 fylgdi Sævar Þór Sigurgeirsson íslensku landsliðunum í handbolta á stórmót, bæði yngri landsliðunum og A-landsliðinu. Hann var löngu orðinn fastur og kær hluti af þeim hópi sem fylgir liðunum okkar út í heim,“ segir í kveðju á Facebook-síðu HSÍ þar sem Sævars er minnst.

Þar segir að Sævar, sem var frá Skeggjastöðum í Miðfirði, hafi byrjað á að fylgja Arnari á mót með yngri landsliðum og haldið því áfram þegar Arnar var kominn í A-landsliðið.

„Fáir hafa fylgt ferli eins leikmanns jafn dyggilega og Sævar fylgdi ferli Arnars. Stoltið leyndi sér aldrei, en stuðningur hans náði til alls liðsins.“

Útför Sævars fer fram frá Háteigskirkju á morgun, fimmtudag, klukkan 13.

„Handboltahreyfingin á Íslandi þakkar Sævari tryggðina og stuðninginn í gegnum árin. Við sendum Arnari Frey og allri fjölskyldu Sævars innilegar samúðarkveðjur,“ segir í kveðju HSÍ.

Næsta stórmót strákanna okkar er heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar næstkomandi. Þar byrjar Ísland á leik við Barein 15. janúar í Magdeburg og mætir svo Japan og Norður-Makedóníu áður en keppni í milliriðlum tekur við í Hannover.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×