Fuglar

Reyna að vekja dódó-fuglinn til lífsins
Vísindamenn við Háskólann í Kaliforníu vilja vekja hinn útdauða dódó-fugl aftur til lífs en tegundin dó út á 17. öld. Með nýjum aðferðum við raðgreiningu erfðaefnis og nýjungum í genabreytingartækni telja vísindamennirnir að hægt sé að koma aftur upp stofni af dódó-fuglum.

Ríki lýsir yfir stríði gegn smáfuglum
Stjórnvöld í Kenía hafa lýst yfir stríði við lítinn 12 sentímetra smáfugl og ætla sér að drepa sex milljónir þeirra á næstunni. Dýrafræðingar hafa miklar áhyggjur og segja aðgerðirnar ógna mörgum öðrum dýrategundum.

Lögregla aðstoðaði í fjölskyldudeilum um sígarettueign
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í dag kölluð til vegna ósættis milli tveggja skyldra aðila í hverfi 108. Deilumálið var eign á sígarettum.

Lýsa yfir stríði á hendur blóðnefsvefurum
Miklir þurrkar í Kenía á síðustu misserum hafa torveldað grasvöxt í landinu og hefur ein afleiðing þess verið að algengar fuglategundir hafa leitað annarra leiða til að slá á hungrið.

Á löggustöð í úlpu með frosinn gogg
Lögreglan á Suðurnesjum fann gæs með frosinn gogg á vappi í gær og bauð henni að hlýja sér í úlpu á lögreglustöðinni.

Fjórar hænur drápust í eldsvoða
Eldur kom upp í hænsnakofa á Sauðárkróki rétt eftir miðnætti í nótt. Átta hænur voru í kofanum og drápust fjórar þeirra. Vegfarendur komu í veg fyrir að tjónið varð ekki meira.

Segja fuglaflensuna hafa borist til Bandaríkjanna um Ísland og Grænland
Talið er víst að fuglaflensan hafi borist frá Norður-Evrópu til Norður-Ameríku um Ísland. Þetta kemur fram í grein sem birtist í vísindatímaritinu Emerging Infectious Diseases en höfundar hennar eru vísindamenn á Íslandi og í Þýskalandi.

Tveir ernir drepist úr fuglaflensu
Tveir ungir ernir hafa drepist úr fuglaflensu hér á landi. Annar þeirra drapst síðasta haust en hinn á þessu ári.

Skæð fuglaflensa gengur enn
Skæð fuglaflensa gengur og greinist enn í villtum fuglum hér á landi. Meira en hálft ár er liðið síðan flensan fór að greinast í villtum fuglum hér á Íslandi en Matvælastofnun telur ekki tímabært að aflétta sóttvarnaaðgerðum sem eru í gildi vegna flensunnar.

Álftir éta og éta upp kornakra bænda
Álftir eru verulegt vandamál þegar kornrækt er annars vegar því fuglarnir éta upp heilu hektarana frá bændum á örskotsstund. Kornbóndi á Suðurlandi segir að þó að þær séu reknar upp af ökrunum koma þær jafn harðan aftur, það verði að fækka fuglinum en í dag eru álftir friðaðar.

Segir sjálfstæðismenn lýsa yfir stríði við máva
Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Líf Magneudóttir gagnrýnir framgang Sjálfstæðisflokksins hvað máva í Reykjavík varðar en hún segir flokkinn hafa lýst yfir stríði við fuglinn. Hún hvetur kjörna fulltrúa til þess að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins sem vilji drepa unga mávana.

Fuglaflensusmit viðvarandi í villtum fuglum
Matvælastofnun (MAST) segir fuglaflensusmit enn vera viðvarandi í villtum fuglum og enn sé hætta á að smit berist yfir í alifugla. Dregið hefur úr tilkynningum um smit síðustu mánuði sem er þó ekki merki um að fuglaflensan sé að hverfa.

Dagur fetar ekki í fótspor Garðbæinga
Eru mávar hatursefni? Samfélagið skiptist í fylkingar yfir þessu eins og borgarstjóri Reykjavíkur bendir á og sitt sýnist hverjum. Ólíkt öðrum sveitarfélögum, kemur þó ekki til greina í Reykjavík að fara að skjóta máva eða stinga á egg þeirra.

Ekkert bendi til þess að mávar séu árásargjarnari nú en áður
Engin breyting er á hegðun máva og ekkert sem bendir til þess að þeir séu árásargjarnari nú en áður. Fuglafræðingur segir að ef bæjarfélög vilji hafa græn svæði í byggð verði þeir að lifa með mávnum.

Vill fá að stinga á egg máva sem trufli svefnfrið og ráðist á Garðbæinga
Garðabær mun fara markvisst í aðgerðir til þess að halda mávastofninum í skefjum. Bæjarstjórinn vill fá leyfi til þess að stinga á mávaegg á friðlýstum svæðum en svefnvana íbúar kvarta undan stanslausu áreiti frá fuglunum.

„Það sem er mikilvægt er að þetta má ekki gleymast“
Súgfirðingar gengu í gær til minningar þeirra fjölmörgu æðarfugla sem þurfi að aflífa eftir olíuslys í þorpinu fyrr á árinu. Skipuleggjandi segir mikilvægt að atvikið gleymist ekki og að lærdómur verði dreginn af því.

Dauðir fuglar eins og hráviði á vegum úti
Þeir sem fara um þjóðvegi landsins komast ekki hjá því að taka eftir fuglum sem liggja steindauðir víðsvegar við vegi landsins. Árlega drepst óhemju mikið af fuglum eftir að á þá hefur verið keyrt, ekki síst á þessum tíma ársins.

Heiðra minningu æðarfugla sem drápust í olíuslysi
Á laugardaginn munu Súgfirðingar ganga minningargöngu til heiðurs minningar fjölmargra æðarfugla sem þurfti að aflífa eftir olíuslys á Suðureyri í mars síðastliðnum.

Ótrúlegur páfagaukur í Breiðholti getur ekki hætt að tala
Fyrir um ári síðan byrjaði lítill en óvenjulegur páfagaukur í Breiðholti að tala, eiganda sínum að óvörum. Fuglinn býr nú yfir fjölbreyttum orðaforða, eins og sjá má í meðfylgjandi frétt.

Sléttuúlfar átu páfugla Martha Stewart
Sléttuúlfar brutu sér leið inn að búgarði sjónvarpskonunnar Martha Stewart í dag og átu þar sex af páfuglum hennar. Atvikið átti sér stað um hábjartan dag.