Húnaþing vestra

Húnaþing vestra

Mannfjöldi: 1.203 (2025). Flatarmál: 3.023 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Hvammstangi, Laugarbakki.


Fréttamynd

Koma langt að til að sjá hvar Agnes var háls­höggvin

Staðurinn þar sem þau Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin árið 1830, Þrístapar í Vatnsdalshólum, er orðinn áningarstaður ferðamanna, jafnt Íslendinga sem útlendinga. En svo er einnig um aðra sögustaði síðustu aftöku á Íslandi.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum

Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið.

Innlent
Fréttamynd

Núll sem heldur

Við í Húnaþingi vestra stöndum vörð um okkar íbúa og hækkum hvorki gjaldskrár né fasteignagjöld á næsta ári. Leikskólagjöld standa í stað. Hitaveitan. Tónlistarskólinn. Allt.

Skoðun
Fréttamynd

Annar á­rekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkra­bíl

Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Harður á­rekstur á Norð­vestur­landi til­kominn vegna framúraksturs

Verulega harður árekstur þriggja bíla varð á sjötta tímanum í dag þegar ökumaður ætlaði sér að taka fram úr bílaröð á Hringveginum skammt frá Þrístöpum á Norðvesturlandi. Miklar bílaraðir hafa myndast á vegkaflanum en mikil umferð hefur verið á svæðinu í dag. Enginn er alvarlega slasaður en tveir af þremur bílum eru óökufærir að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Búið að opna Holta­vörðu­heiði aftur

Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði.

Innlent
Fréttamynd

Að­sóknar­met slegið á brúðulistahátíð á Hvamms­tanga

Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi.

Menning
Fréttamynd

Agnes var meira en bara morðingi

Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja.

Innlent
Fréttamynd

Hyggjast stór­bæta að­stöðu ferða­manna við Hvít­serk

Undirbúningur er hafinn að því að stórbæta aðstöðu ferðamanna við klettinn Hvítserk, helsta aðdráttarafl Húnaþings. Reisa á þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur og verða bílastæðagjöld meðal annars nýtt til að standa undir kostnaði.

Innlent
Fréttamynd

Holtavörðuheiðin opin á ný

Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði.  Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum.

Veður
Fréttamynd

„Ég var skelfingu lostinn“

Franskur maður óttaðist um líf sitt í gær þegar að lítið snjóflóð hafnaði á ökutæki hans. Hann missti stjórn á ökutækinu og segir mikla lukku að ekki hafi farið verr. Búið er að opna Holtavörðuheiði aftur en flytja þurfti 25 manns þaðan í gær og skilja ökutæki eftir. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Reykjaskóla vegna þessa.

Innlent