Syrgja starfsmann sem lést í slysi Fjölskyldufaðirinn sem lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudag var starfsmaður Kraftbíla á Akureyri. Fyrirtækið segir í færslu á samfélagsmiðlum að andlátið hafi skilið eftir sig stórt skarð í hjarta fyrirtækisins. Innlent 18.10.2026 14:43
Maðurinn sem lést var Íslendingur Maðurinn sem lést í slysi norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var fjölskyldufaðir búsettur á Norðurlandi. Innlent 18.10.2026 13:26
Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa. Innlent 17.10.2026 17:40
Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við vasaþjófum á þekktum ferðamannastöðum í sínu umdæmi. Innlent 14. ágúst 2026 10:50
Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á Norðausturlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna ferðamanns sem hafði hrasað við göngu við Hafragilsfoss. Á nánast sama tíma barst tilkynning um annan ferðamann sem hafði ökklabrotnað í Hrútagili í Skaftafelli og var þyrlunni fyrst beint þangað. Innlent 10. ágúst 2026 22:16
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið á miðhálendinu. Innlent 9. ágúst 2026 11:05
Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna mótorhjólaslyss nærri Fosshóli í Þingeyjasveit. Ökumaðurinn ók fram af fjögurra metra hengju. Innlent 5. ágúst 2026 12:44
Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik Búið er að opna Jarðböðin við Mývatn á ný eftir umfangsmiklar framkvæmdir á svæðinu. Tekin hefur verið í notkun ný aðstaða. Innlent 10. júlí 2026 10:44
Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. Viðskipti innlent 9. júlí 2026 08:37
Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum Katrín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Þetta er í þriðja skipti sem Katrín tekur við stöðu sveitarstjóra en hún hefur áður starfað hjá Dalvíkurbyggð og Norðurþingi. Innlent 7. júlí 2026 11:16
Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel „Ég fylgdi af því ég fæ gott að borða,“ segir Þóra Kolbrá Sigurðardóttir en eiginmaður hennar er listakokkurinn Völli Snær, fullu nafni Völundur Snær Völundarson. Þau hjónin hafa byggt upp ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra ásamt því að standa í fjölmörgum öðrum verkefnum. Lífið 26. júní 2026 11:41
Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við. Innlent 10. júní 2026 10:03
Ábyrgð náði hreinum meirihluta Á-listi Ábyrgðar náði fjórum mönnum kjörnum í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í dag. Listinn náði fjórum mönnum inn og þar með hreinum meirihluta. Innlent 17. maí 2026 02:23
„Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fráfarandi oddviti Viðreisnar í Reykjavík, hefur samþykkt að vera sveitarstjóraefni L-lista framfara í Þingeyjarsveit. Innlent 19. apríl 2026 10:10
Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Erlendur ferðamaður sem sagður var alvarlega slasaður eftir umferðarslys við Mývatn fyrir viku er útskrifaður af sjúkrahúsi og betur fór en á horfðist. Bifreið sem hann var ekið út af hringveginum í erfiðum aðstæðum, lenti á þvervegi og tókst á loft. Innlent 14. apríl 2026 12:09
Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Sjúkrahúsið á Akureyri í kjölfar umferðarslyss á Hringvegi við Neslönd í Mývatnssveit klukkan 12.45 í dag. Innlent 7. apríl 2026 15:58
Krúttlegir heimilishundar verða að sleðahundum við Mývatn Vetrarhátíð stendur yfir við Mývatn en á hátíðinni eru stundaðar fjölbreyttar vetraríþróttir úti í náttúrunni, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Meðal annars er keppt í hundasleðakeppni og hægt að keyra Gokart bíla á ís. Innlent 7. mars 2026 15:01
Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Björgunarsveitarfólk á Austurlandi hafði í nægu að snúast í hvassviðri og kófi í gærkvöldi. Fjórtán manns í smárútu sem lenti utan vegar í Fagradal var komið til aðstoðar og ferðafólki í nokkrum bílum á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Innlent 25. febrúar 2026 08:08
Framhlaup hafið í Dyngjujökli Samkvæmt GPS-hraðamælingum Jarðvísindastofnunar Háskólans er framhlaup hafið í Dyngjujökli. Dyngjujökull er þekktur framhlaupsjökull og um 20 til 30 ár líða að jafnaði á milli framhlaupa. Hann hljóp síðast fram á árunum 1998 til 2000. Veðurstofan varar við ferðum á jöklinum. Innlent 19. nóvember 2025 14:17
Leita til UNESCO vegna Vonarskarðs og kæra kynjahalla Nokkur náttúruverndarsamtök hafa lýst yfir þungum áhyggjum og vonbrigðum vegna opnunar Vonarskarðs fyrir bílaumferð. Þau segja stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs ábótavant og ætla að leita til UNESCO vegna málsins. Innlent 30. október 2025 11:47
Heimilar umferð um Vonarskarð Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest breytingartillögu svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að heimila vélknúna umferð og hjólreiðar um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært. Innlent 24. október 2025 11:07
Færa Jarðböðin í nýtt hús og nýjan búning Jarðböðunum verður lokað í þrjá mánuði um áramótin á meðan framkvæmdir standa yfir við byggingu nýs hús. Jarðböðin munu taka upp erlenda heitið Earth Lagoon Mývatn en halda um leið íslenska nafninu Jarðböðin. Viðskipti innlent 8. október 2025 10:24
Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Gerður Sigtryggsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Fyrrverandi sveitarstjóri, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, hefur þegar lokið störfum og Gerður tekin við. Innlent 26. september 2025 18:53
Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hyggst ráðast tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem drónar verða notaðir og sendir á vettvang á stöðum í umdæminu þar sem löggæsla er ekki mönnuð allan sólarhringinn. Innlent 21. september 2025 07:03