Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024. Innlent 15.4.2026 09:12
Sjálfkjörið á Vopnafirði Einungis einn framboðslisti barst yfirstjórn Vopnafjarðarhrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og telst hann því sjálfkjörinn. Um er að ræða nýjan framboðslista sem kallar sig Sterk stoð, en Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, leiðir listann. Innlent 15.4.2026 08:05
Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Fulltrúar þýska félagsins Bremenports eru enn áhugasamir um uppbyggingu alþjóðahafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes og segja aðstæður þar ákjósanlegar. Þetta kom fram á íbúafundi á Þórshöfn í síðustu viku en Þjóðverjarnir nýttu einnig Íslandsheimsóknina til að funda með fulltrúum forsætisráðuneytis. Innlent 7.4.2026 21:21
Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Innlent 11.2.2026 22:31
Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar. Innlent 2. febrúar 2026 21:31
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 21:31
Bálhvasst á Austfjörðum og óvissustig vegna snjóflóðahættu Bálhvasst er á Austfjörðum og hefur talsverður snjór safnast undir Grænafelli á Fagradal. Hefur óvissustigi því verið lýst yfir á Fagradal vegna snjóflóðahættu við Grænafell. Innlent 12. janúar 2026 10:36
Brunaði austur til að finna litla frænda Móðursystir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði tók sjálf þátt í leitinni að honum, og segist ekki hafa getað setið aðgerðalaus eftir að frændi hennar féll í sjóinn. Hún safnar nú fé fyrir hönd foreldranna. Þeir hafa þurft að standa sjálfir straum af dýru dómsmáli sem tapaðist. Innlent 23. október 2025 19:48
„Það er aldrei hægt að kaupa barnið manns til baka“ Móðir ungs manns sem drukknaði í Vopnafirði í sínum fyrsta túr á sjó segir erfitt að hugsa til þess að skjótari viðbrögð skipverja á bátnum hefðu getað bjargað lífi hans. Hún og barnsfaðir hennar hafa tapað máli gegn útgerðinni á tveimur dómstigum, en ætla sér alla leið með málið hvað sem það kostar. Innlent 20. október 2025 19:43
Ár frá morðtilrauninni: „Reyndi að drepa mig og það var eins og að drekka vatn fyrir hann“ „Ár…. Í dag er ár síðan ég fékk að lifa. Atvik sem virkar svo þokukennt, óraunverulegt. Blákaldi veruleikinn er hins vegar sá að þetta gerðist. Barnsfaðir minn og fyrrum maki reyndi að drepa mig og það var eins og að drekka vatn fyrir hann.“ Innlent 17. október 2025 12:17
Gögn sem fyrst voru ekki til brunnu síðar Lögmaður foreldra sem hafa árangurslaust reynt að sækja bætur til Brims hf. og TM trygginga eftir að sonur þeirra drukknaði á sjó vorið 2020 segir óvíst hvort leitað verði til Hæstaréttar vegna málsins. Hann segir sönnunarstöðu foreldranna í málinu einstaklega erfiða. Brim og TM voru sýknuð af kröfum foreldranna í Landsrétti í vikunni. Innlent 11. október 2025 11:02
Tókst ekki að sanna að Brim bæri ábyrgð á dauða sonar þeirra Landsréttur hefur sýknað Brim hf. og TM tryggingar hf. af skaðabótakröfu foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Dómurinn féllst ekki á að með því að vanrækja öryggis- og eftirlitsskyldu sína gagnvart skipverjanum hafi útgerðin bakað sér skaðabótaskyldu á hendur foreldrunum. Innlent 9. október 2025 22:00
Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Hæstráðendur hjá Manchester United hafa fundað í veiðihúsi Jim Ratcliffe undanfarna vikuna og tóku þar ákvörðun um að festa kaup á Bryan Mbuemo frá Brentford. Milli funda hafa stjórnarmennirnir skellt sér í veiði og kíkt á kránna í Vopnafirði. Enski boltinn 18. júlí 2025 14:15
Var lengi hikandi að selja Ratcliffe laxveiðijarðirnar Cargolux-flugstjórinn fyrrverandi, sem safnaði laxveiðijörðum í Vopnafirði, segist hafa selt þær breska auðkýfingnum Jim Ratcliffe eftir að hafa sannfærst um að þar færi einlægur náttúruverndarsinni sem vildi vernda laxastofninn. Innlent 12. júní 2025 10:20
Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Jón Þór Dagbjartsson hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir grófa árás á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði í október í fyrra. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands í dag. Innlent 4. júní 2025 14:22
Elsta svæði Vopnafjarðar staðfest sem verndarsvæði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest Plássið í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns sem verndarsvæði í byggð að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps Innlent 4. júní 2025 07:36
Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Geðlæknar sem komu fyrir dóm í máli héraðssaksóknara gegn Jóni Þór Dagbjartssyni eru á einu máli um að hann sé sakhæfur. Hann hafi ekki verið í geðrofi heldur einfaldlega misst stjórn á skapi sínu þegar hann greip til járnkarls og veittist að fyrrverandi sambýliskonu sinni. Geðlæknir telur refsingu geta borið árangur. Innlent 8. maí 2025 14:13
Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Vinkona Hafdísar Báru Óskarsdóttur segist aldrei hafa búist við því að Jón Þór Dagbjartsson myndi ganga svo langt að reyna að drepa Hafdísi. Hún viðurkennir þó að hafa verið að bíða eftir því að eitthvað myndi gerast. Vinkona Hafdísar gaf skýrslu fyrir dómi en hún dvaldi hjá Hafdísi fyrir árásina og kom að Hafdísi eftir hana. Innlent 8. maí 2025 08:32
„Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Hafdís Bára Óskarsdóttir segir Jón Þór Dagbjartsson hafa verið mjög yfirvegaðan þegar hann greip til járnkarls og réðst á hana. Hann hafi verið með glott á andlitinu og látið eins og hún skipti engu máli. Sambandi þeirra hafi lokið hálfu ári fyrr en hún látið undan kynlífsbeiðnum hans með öryggi sitt og barnanna í huga. Innlent 7. maí 2025 16:43
Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Jón Þór Dagbjartsson, sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði, segist ekki muna eftir því að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína með járnkarli í október í fyrra. Hann muni að konan hafi hótað að svipta hann forræði af syni hans og við það „snappað“. Hann hafi aldrei ætlað að bana konunni. Innlent 7. maí 2025 14:09
Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps segir að ákvörðun Póstsins um lokun pósthússins í bænum sé með öllu óásættanleg. Pósthúsinu í bænum var lokað síðasta dag nýliðins aprílmánaðar og krefst sveitarstjórn að ákvörðunin verði endurskoðuð. Sveitarstjórn óttast að lokunin muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa. Innlent 2. maí 2025 08:31
Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði „Þetta er örugglega Íslandsmet hjá okkur hjónum en alveg yndislegt og skemmtilegt“, segir Halldóra S. Árnadóttir, eða Dóra eins og hún er alltaf kölluð á Vopnafirði en hún og maður hennar, Bárður Jónasson eiga sex barnabörn í leikskólanum Brekkubæ á Vopnafirði en 36 börn eru í skólanum. Lífið 9. apríl 2025 20:05
Gerandinn ákærður fyrir manndrápstilraun á Vopnafirði Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, steig í pontu í Alþingi í dag og lýsti áralöngu heimilisofbeldi sem hún sætti. Hún segir meðvirknina eina af grunnstoðum ofbeldis. Gerandinn er sá sami og er ákærður er fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði. Innlent 25. mars 2025 18:41
Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Hafrannsóknastofnun og útgerðir loðnuskipa hafa ákveðið að efna til nýrrar loðnuleitar, þeirrar fjórðu frá áramótum. Þetta er sérstök aukaleit í von um að finna meiri loðnu og verður lagt af stað á tveimur skipum frá Austfjarðahöfnum strax í kvöld. Viðskipti innlent 24. febrúar 2025 11:39
Vegabætur taldar auka straum ferðafólks um Norðausturland Þáttaskil eru framundan í vegamálum Norðausturlands. Vegagerðin bauð í dag út stórt verk sem felur í sér að síðasti malarkaflinn á norðausturhringnum fær bundið slitlag. Vegabæturnar eru taldar geta aukið straum ferðamanna um byggðir norðausturhornsins. Innlent 18. febrúar 2025 21:32