Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Snekkja í eigu skattsvikara og fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi sigldi inn Eyjafjörðinn nú í morgun. Ekki liggur fyrir hvort eigandinn sé um borð. Lífið 21.3.2026 14:16
Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Franski sjóherinn stöðvaði olíuflutningaskip sem talið er hluti af svonefndum skuggaflota Rússa á Miðjarðarhafi í dag. Þetta er annað olíuflutningaskipið sem Frakkar stöðva á þessum forsendum á þessu ári. Erlent 20.3.2026 15:29
Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Tveir af stjórnendum norðlenska sjávarútvegstæknifyrirtækisins Vélfags hafa stofnað nýtt fyrirtæki sem býður upp á sambærilega þjónustu. Annar þeirra segir nýja fyrirtækið ekki byggja á grunni Vélfags. Viðskipti innlent 19.3.2026 14:41
Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt Indlandi 30 daga undanþágu til að kaupa olíu frá Rússlandi, vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum. Erlent 6. mars 2026 06:57
Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ráðamenn í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum hafa leitað ráða hjá Úkraínumönnum um hvernig best sé að stöðva íranska sjálfsprengidróna. Íranar hafa notað gífurlegan fjölda slíkra dróna til árása á nágranna sína síðustu daga sem hafa notað mjög dýr flugskeyti til að stöðva þá. Erlent 5. mars 2026 16:41
Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu. Erlent 5. mars 2026 13:30
Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Sænsk stjórnvöld telja að dróni sem sást á sveimi á Eyrarsundi þegar franskt flugmóðurskip lá við festar í Malmö í vikunni hafi verið rússneskur. Sænski herinn truflaði drónann áður en hann hvarf sjónum. Erlent 27. febrúar 2026 14:42
Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Úkraínski drónaframleiðandinn Ukrspecsystems hefur opnað verksmiðju í í Mildenhall í Suffolk á Englandi. Verksmiðjan mun framleiða dróna til notkuna á vígvellinum í Úkraínu. Erlent 26. febrúar 2026 12:40
Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Fyrirtæki í Rússlandi hafa notað bresk aflandssvæði til þess að komast í kringum þvingunaraðgerðir. Alþjóðleg samtök gegn spillingu telja að viðskipti fyrir allt að átta milljarða dollara hafi farið þessa leið frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 25. febrúar 2026 10:34
Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn. Viðskipti innlent 24. febrúar 2026 13:56
Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 24. febrúar 2026 11:09
Verjast fregna af viðræðum dagsins Þríhliða viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu lauk í dag án eiginlegrar niðurstöðu. Viðræðurnar stóðu yfir í tvo daga í Genf í Sviss, en fundurinn í dag stóð yfir í aðeins tvær klukkustundir. Erlent 18. febrúar 2026 16:36
Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum. Erlent 17. febrúar 2026 10:54
Það sem Marco Rubio virðist ekki skilja Samstaða meðal einræðisríkja er djúpstæðasta ógnin sem Bandaríkin og bandamenn þeirra, bæði í Evrópu og á Indó-Kyrrahafssvæðinu, standa frammi fyrir. Engu að síður var hvorki minnst einu orði á Rússland né Kína í ræðu Rubio. Umræðan 16. febrúar 2026 13:00
„Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Vólódímir Selenskí, forseti Úkraínu, segir að mörg mistök hafi verið gerð þegar kemur að samskiptum ríkja Evrópu og Rússlands á undanförnum árum. Það séu mikil mistök að verðlauna árásaraðila. Með þessu virðist forsetinn vera að ítreka að ekki komi til greina fyrir Úkraínumenn að hörfa frá því landsvæði sem þeir halda enn í Dónetsk-héraði. Erlent 16. febrúar 2026 10:10
Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Skoðun 16. febrúar 2026 08:00
Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Manntjón á meðal almennra borgara í Úkraínu jókst um heil 26% á síðasta ári ef marka má nýja skýrslu frá samtökunum AOAV, sem einbeita sér að því að fylgjast með og skrásetja manntjón úr röðum almennra borgara um heim allan. Erlent 16. febrúar 2026 06:48
Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Djúpt inni í fjallagörðum Sesúan-dals í vesturhluta Kína, langt frá helstu byggðakjörnum, hafa nokkur gömul kjarnorkumannvirki á síðustu árum fengið endurnýjun lífdaga í nánast algjörri leynd. Loftmyndir af leynilegum kjarnorkustöðvum varpa ljósi á það hvernig stjórnvöld í Peking hafa reynt að stækka vopnabúr sitt. Erlent 16. febrúar 2026 00:16
Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki. Erlent 14. febrúar 2026 22:36
Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. Erlent 14. febrúar 2026 14:59
„Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir auknum þrýstingi á Rússa. Það sé besta leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu og segir hann að ráðamenn í Rússlandi virði ekkert nema styrk. Hann sagði árásir Rússa á óbreytta borgara í Úkraínu vera gífurlega umfangsmiklar. Rússar hefðu notað sex þúsund sjálfsprengidróna í janúar. Erlent 14. febrúar 2026 13:12
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Rétt tæp fjögur ár eru liðin frá því Rússar hófu allsherjarinnrásina í Úkraínu, eftir margra ára átök milli ríkjanna og tengdra sveita í austurhluta landsins. Harðir bardagar geysa víða í Úkraínu og er mannfall sagt mikið. Rússar hafa þó náð tiltölulega litlum árangri í landvinningum sínum og leggja mikla áherslu á árásir á borgaralega innviði. Erlent 14. febrúar 2026 07:33
„Þá er Ísland kannski næsti biti“ Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. Innlent 13. febrúar 2026 20:47
Kann sjö tungumál, með fimm háskólagráður og kennir dönsku Í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöld mætti Tómas Arnar í Garðaskóla til að kynnast einum áhugaverðasta dönskukennara landsins sem er jafnframt doktor í kennslufræði. Lífið 13. febrúar 2026 11:01