Ungfrú Ísland

Fréttamynd

Mesta á­skorunin að greinast með hrygg­skekkju

„Mesta áskorunin sem ég hef þurft að takast á við er að greinast með hryggskekkju þegar ég var fimmtán ára. Ég hef komið mér í gegnum það með því að halda áfram með lífið þrátt fyrir að það sé aðeins erfiðara og hugsað jákvætt í stað þess að vorkenna sjálfri mér,“ segir Dagbjört Fjóla Elísdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. 

Lífið
Fréttamynd

Neyðarlegast að handleggsbrjóta vin­konu á sviði

„Þegar ég var yngri var ég gagnrýnd fyrir útlit mitt og það gekk á í mörg ár. Mig langar að sýna yngri krökkum að sama hvað aðrir segja, þá byrjar fegurðin innra með þér. Sem keppandi í Ungfrú Ísland finnst mér það vera mitt verkefni að hvetja þau yngri,“ segir Emma Guðrún Davíðsdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Mildari og þolin­móðari við sjálfa sig eftir greininguna

„Fyrir rúmlega ári síðan greindist ég með sjaldgæfan sjálfsofnæmissjúkdóm sem hefur stundum gert daglegt líf og vinnu erfiðari. Þrátt fyrir það var ákveðinn léttir að fá loksins skýringu á því sem ég hafði verið að ganga í gegnum. Það gaf mér tækifæri til að skilja líkamann minn betur og læra að takast á við einkennin,“ segir Elinborg Jóhanna Hrannarsdóttir, sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir al­var­leg veikindi

„Það sem hefur mótað mig mest er að hafa veikst alvarlega fyrir þremur árum. Þá þurfti ég í raun að hefja lífið mitt upp á nýtt og læra að lifa lífinu sem ég hélt að ég hefði þurft að kveðja, Sú reynsla kenndi mér að meta litlu hlutina og vera þakklát fyrir hvern dag. Ég lít á það sem annað tækifæri sem Guð gaf mér og þess vegna leyfi ég ekki gagnrýni annarra að stoppa mig frá því að elta draumana mína,“ segir Sólveig Bech sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Skilnaður for­eldranna mótað hana einna mest

„Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég á og allt sem hefur mætt mér á lífsleiðinni. En það var mikil gæfa að fá höfnun sem lét mig leggja harðar af mér frekar en að gefast upp þegar ég komst ekki inn í draumaskólann og missti ljósið mitt,“ segir Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind

„Að eiga bróður með Downs heilkenni hefur mótað mig mest. Hann hefur kennt mér að horfa á lífið á annan hátt, vera þakklát fyrir litlu hlutina og sýna meiri skilning og kærleika í garð annarra,“ segir hin nítján ára gamla Bjarkey Rós Þormóðsdóttir, sem er meðal keppenda í Ungfrú Ísland í ár.

Lífið
Fréttamynd

„Við erum öll nóg“

„Fólk heldur oft að það sé verið að heilaþvo okkur en það er svo langt frá sannleikanum,“ segir hin 21 árs gamla Embla Sól Laxdal Guðmundsdóttir, sem er meðal þátttakenda í Ungfrú Ísland.

Lífið
Fréttamynd

„Sjálfsvinna er ævi­starf“

„Mín gæfa í lífinu er þolinmæði og viljinn til að vaxa,“ segir hin tvítuga Aníta Mist Davíðsdóttir sem er meðal keppenda í Ungfrú Ísland í ár. Aníta er fædd árið 2005 og starfar sem þjónustufulltrúi hjá Arionbanka.

Lífið
Fréttamynd

„Ég ræð ferðinni“

„Fyrir mig hefur þetta tækifæri verið stórkostlegt, að stíga út fyrir þægindarammann kemur manni á framfæri,“ segir hin 23 ára gamla Guðlaug Birta Sigmarsdóttir sem er þátttakandi í Ungfrú Ísland keppninni í ár.

Lífið
Fréttamynd

„Fegurð er miklu meira en bara út­lit“

„Mistök eru hluti af því að læra og vaxa, en eftirsjá yfir því að hafa aldrei reynt getur fylgt manni alla ævi. Þess vegna reyni ég alltaf að stíga út fyrir þægindarammann minn og elta markmiðin mín,“ segir Lilja Guðjónsdóttir sem er meðal keppenda í Ungfrú Ísland í ár.

Lífið
Fréttamynd

„Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“

„Ég hef alltaf þurft að takast á við fordóma gagnvart húðlitnum mínum. Oftast öráreitni, en líka rasískar hótanir á netinu og í persónu. Þetta hafði gríðarleg áhrif á líf mitt, sjálfstraustið mitt og vellíðan. Ég vissi samt snemma að eina leiðin sem ég get barist gegn kynþáttafordóma er að nota mína rödd og gera eitthvað gott úr því,“ segir Klara Wanjiru Sindradóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026.

Lífið
Fréttamynd

Enn ólgar Ung­frú Ís­land: „Ekkert til sem heitir ó­sann­gjarn samningur ef þú skrifar undir hann“

Fegurðardrottningin Kristín Anna Jónasdóttir, sem bar titilinn Miss Cosmo Iceland 2025, hefur sagt skilið við samtökin Ungfrú Ísland og segir farir sínar ekki sléttar. Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri keppninnar, segir yfirlýsingu Kristínar ekki eiga við rök að styðjast, hún hafi fengið töluverðan stuðning og glöð gengist undir samning við keppnina.

Lífið
Fréttamynd

Veikindi eyði­lögðu líka stóru stund Manúelu

Ósætti ríkir milli fegurðardrottningarinnar Helenu Hafþórsdóttur O'Connor og forsvarsmanna Ungfrúar Íslands. Þar stendur orð gegn orði um það hver tók ákvörðun um að skrá Helenu úr keppni í Ungfrú alheimi í nóvember vegna veikinda hennar. En það sem meira er þá lenti Helena í keimlíkum hremmingum og Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri Ungfrúar Íslands, lenti í fyrir 22 árum síðan. 

Lífið
Fréttamynd

Segja Helenu fara með „hreinar rang­færslur“

Aðstandendur samtakanna Miss Universe Iceland segja Helenu Hafþórsdóttur O’Connor, sem afsalaði sér krúnu Ungfrúar Íslands og rauf tengsl við samtökin í gær, fara með rangfærslur. Hún hafi sjálf óskað ítrekað eftir því að vera dregin úr keppni í Ungfrú heimi í Taílandi.

Lífið
Fréttamynd

Ung­frú Ís­land rýfur tengslin við Ung­frú Ís­land

Helena Hafþórsdóttir O'Connor sem ber titilinn Ungfrú Ísland lýsir því nú yfir að hún hafi rofið öll tengsl við keppnina og muni ekki tengjast henni á neinn máta frá og með deginum í dag. Hún segir að hún hafi verið skráð úr keppni í Taílandi í hennar óþökk og fullyrðir að henni hafi verið gert að greiða sekt ætlaði hún sér að halda titlinum.

Lífið
Fréttamynd

Óhuggulegt fall fegurðar­drottningar

Ungfrú Jamaíka fékk harkalegan skell þegar hún datt af sviðinu í undankeppni Ungfrúar alheims í Taílandi í gær. Hún var borin á sjúkrabörum af vettvangi og flutt á sjúkrahús.

Lífið
Fréttamynd

Hættir við keppni í Ung­frú al­heimi

Helena Hafþórsdóttir O'Connor sem hlaut titilinn Ungfrú Ísland fyrr í ár og þar með farseðil á Ungfrú alheim sem fram fer í Taílandi hefur dregið sig úr keppni vegna veikinda.

Lífið
Fréttamynd

Allur til­finninga­skalinn á Ung­frú Ís­land Teen

Það var lifandi og glitrandi stemning í Gamlabíói síðastliðið þriðjudagskvöld þegar fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland Teen fór. Hin átján ára Lovísa Rut Hlynsdóttir bar sigur úr býtum og er fyrsta stúlkan til að hljóta titilinn Ungfrú Ísland Teen.

Lífið
Fréttamynd

Lovísa Rós er Ung­frú Ís­land Teen

Lovísa Rós Hlynsdóttir var krýnd Ungfrú Ísland Teen í Gamla bíói í gærkvöldi. Þrjátíu stúlkur á aldrinum sextán til nítján ára tóku þátt í fegurðarsamkeppninni

Lífið
Fréttamynd

„Er ekki hrædd við að vera ég sjálf“

„Ég tek áskorunum fagnandi, tengist fólki á einlægan hátt og sýni að maður getur treyst á sjálfan sig og stígað út fyrir þægindarammann og náð markmiðum sínum,“ segir Nadia Amrouni ungfrú Sandgerði,

Lífið
Fréttamynd

Hvetur há­vaxnar stelpur til að vera stoltar af hæð sinni

„Ég viðurkenni alveg að ég hef sjálf verið á þeim stað þar sem ég minnkaði mig og var óörugg með hæðina mína en ég vil hvetja allar hávaxnar stelpur til að vera stoltar af hæðinni sinni,“ segir Brynhildur Rut Sigurðardóttir ungfrú Selfoss.

Lífið