Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Birgir Olgeirsson skrifar 21. október 2026 15:01 Diljá Mist telur innanflokksátök tefja ríkisstjórnina en Guðmundur Ari segir góðan árangur síðasta vors skýra fá mál á dagskrá. Sigurður Ingi hefur gagnrýnt lítinn tíma í löggjafarstörf á Alþingi. Vísir Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir fá mál á dagskrá Alþingis skýrast af því hversu mörg mál kláruðust síðasta vor. Diljá Mist Einarsdóttir segir skýringuna hjákátlega og telur innanflokksátök tefja ríkisstjórnina.
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá mál á dagskrá hafa sætt gagnrýni stjórnarandstöðunnar. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir í samtali við Vísi að 120 mál hafi verið afgreidd síðasta vor. Venjulega séu mál sem klárist ekki að vori lögð fram aftur um haustið. Nú hafi færri slík mál beðið þingsins vegna þess hversu vel hafi gengið að afgreiða þau. Guðmundur Ari segir 120 mál hafa verið afgreidd síðasta vor og því hafi færri mál beðið Alþingis í haust.Vísir/Einar Hann segir stöðuna því ekki skýrast af erfiðleikum við að koma málum í gegnum ríkisstjórnarflokkana. Slíkir erfiðleikar hafi einkennt síðustu ríkisstjórn og Sigurður Ingi Jóhannsson sé hugsanlega vanur því frá sínum tíma í stjórn. Nú sé skýringin fremur góður árangur síðasta vors og stjórnarþingmenn hlakki til að fá ný mál til umfjöllunar. „Við erum frekar fórnarlömb velgengni síðasta vors.“ Segir skýringuna vandræðalega Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur lítið fyrir þessa skýringu. Hún segir óvenjulítið hafa hreyfst á þinginu í vetur, þótt hún telji það fagnaðarefni í ljósi áherslna ríkisstjórnarinnar. Diljá Mist kallar skýringu Guðmundar Ara hjákátlega og segir aldrei markmið ríkisstjórnar að vera í hlutlausum gír hálfan þingvetur.Vísir/Vilhelm „Þessi stjórn lifir auðvitað bara eftir því mottói að það sem hún segir sé raunveruleikinn. Ég var hins vegar ekki að byrja í gær – það er aldrei markmið hjá ríkisstjórn að vera í hlutlausum gír hálfan þingvetur. Þetta er hjákátleg útskýring og í raun örlítið vandræðaleg fyrir hina meintu og sjálfnefndu verkstjórn.“ Hún telur fréttaflutning af stjórnarþingmönnum og stemninguna á Alþingi benda til þess að innanflokksátök ráði miklu um stöðuna. „Alþingi er reyndar loksins orðinn fjölskylduvænn vinnustaður, en það kemur til af því sem allir hljóta að sjá: ríkisstjórnin nær engum málum út vegna innanflokksátaka.“ Níu tíma umræða vegur þungt Þingfundir dagana 5. til 19. október voru átta og stóðu samtals í tæpar 36 klukkustundir, eða um fjórar og hálfa klukkustund að meðaltali. Þar vegur einn fundur þungt. Fundurinn 6. október stóð í tæpar tíu klukkustundir og fóru rúmar níu þeirra í fyrstu umræðu um bókun 35. Sé sá umræðutími dreginn frá var meðallengd fundanna um þrjár klukkustundir og tuttugu mínútur. Fundurinn 15. október stóð í tæpar tvær klukkustundir og fundurinn síðastliðinn mánudag í tæpar tvær og hálfa. Þingfundir 5. til 19. október stóðu að meðaltali í um fjórar og hálfa klukkustund. Rúmlega níu tíma umræða um bókun 35 vegur þar þungt.Vísir/Anton Brink Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar og fyrrverandi forsætisráðherra, gerði tímann sem farið hefði í löggjafarstörf sérstaklega að umtalsefni í ræðu á Alþingi í gær. Hann taldi upp fundi þar sem sá hluti hefði tekið innan við eina til þrjár klukkustundir. Þar undanskildi hann meðal annars óundirbúna fyrirspurnatíma, störf þingsins og sérstakar umræður. „Í næstu viku er Norðurlandaráðsþing og ríkisstjórnin, undir hinni miklu verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hæstvirts forsætisráðherra, hefur þar af leiðandi skilað 29 frumvörpum og fimm ályktunum til þingsins þegar nóvember hefst.“ Vilja fá málin tilbúin til þings Guðmundur Ari segir fyrstu mánuði þingvetrarins nú fara í vinnu við ný frumvörp í ráðuneytunum. Stjórnin vilji vanda til verka og meti gæði þingstarfa eftir því hvort málin komi tilbúin til þings fremur en fjölda þeirra. Hann segir svigrúmið jafnframt hafa gefið þingmönnum fleiri tækifæri til að koma eigin málum að. Þingstörf felist einnig í munnlegum fyrirspurnum og fleiri verkefnum en umfjöllun um stjórnarfrumvörp. Sigurður Ingi gagnrýnir hversu lítill tími hafi farið í löggjafarstörf á þingfundum síðustu vikna.Vilhelm Stærsta verkefni haustsins verði hallalaus fjárlög. Þótt færri mál séu í þingsal séu þingnefndir að vinna á fullu. Einnig sé unnið að málum sem tengjast því að tryggja frið á vinnumarkaði, meðal annars leigubremsunni og breytingum á almenna íbúðakerfinu. Spurður hvort hætta sé á að mál safnist upp og afgreiða þurfi þau í tímaþröng fyrir jól segir hann of snemmt að segja til um það. Haldi þingstörfin áfram að ganga jafnvel sjái hann ekki fram á slíka stöðu.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Loka vefsíðum tímabundið í öryggisskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Sjá meira