Fréttir
Við öllu búnir í Gleneagle Lögreglan í Edinborg telur að um hundrað manns sem mótmæltu leiðtogafundi G8 ríkjanna í gær, kunni að sæta ákæru vegna málsins. Til harðra átaka hefur komið á milli mótmælenda og óeirðalögreglu. Erlent 13.10.2005 19:28
Skotið að bíl í Bagdad Skotið var að bifreið sendiráðs Rússlands í Írak í dag. Tveir embættismenn voru í bílnum en hvorugan þeirra sakaði. Upplýsingafulltrúi sendiráðsins sagði á fréttamannafundi að skotárásinni hafi ekki verið beint sérstaklega að bifreiðinni, heldur skutu uppreisnarmenn á allt sem hreyfðist. Erlent 13.10.2005 19:28
Kauptilboð í Somerfield í óvissu Einhverjir hinna erlendu aðila sem standa að kauptilboði í stórverslanakeðjuna Somerfield ásamt Baugi hafa hótað að hætta við tilboð sín, ef Baugur dregur sig ekki út úr hópnum, að sögn Financial Times. Ástæðan er ákæran, sem Ríkislögreglustjóri hefur gefið út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs, og fleirum. Innlent 13.10.2005 19:28
Herinn burt Leiðtogar Rússlands, Kína og fyrrum Sovétlýðvelda í Mið-Asíu samþykktu ályktun á fundi sínum í Kasakstan í gær þar sem skorað var á bandarísk stjórnvöld að draga herlið sitt frá Úsbekistan og Kirgisistan eins fljótt og auðið er. Erlent 13.10.2005 19:28
Lánastarfsemi Íbúðalánasjóðs Engin takmörk eru fyrir því hversu mikið Íbúðalánasjóður má lána íslenskum bönkum og sparisjóðum eftir að ný stefna um áhættustýringu tók gildi. Fyrri stefna var aðeins í gildi í nokkra mánuði þar sem höfundar hennar sáu ekki fyrir gríðarlegar uppgreiðslur íbúðalána vegna samkeppni frá bönkunum en sú upphæð nemur eitt hundrað og fimmtíu milljörðum. Innlent 13.10.2005 19:28
Leit að líki í Grafarvogi hætt Leit að líki í Grafarvogi í Reykjavík sem hófst síðdegis í gær bar ekki árangur og var henni hætt upp ur miðnætti. Þá höfðu björgunarsveitarmenn, lögregla og slökkviliðsmenn kafað, siglt um voginn og gengið fjörur auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið. Innlent 13.10.2005 19:28
Sænskt morðmál til lykta leitt Eitt óhugnanlegasta morðmál Svíþjóðar á síðari árum virðist nú hafa verið til lykta leitt. Um er að ræða tvö morð sem framin voru á Skáni í Suður-Svíþjóð árið 1989. Þá var hinni tíu ára gömlu Helén Nilsson rænt og nauðgað á hrottafenginn hátt áður en hún var myrt með barsmíðum. Erlent 13.10.2005 19:28
Bretar æfir vegna ummæla Chiracs Það er ekki hægt að treysta fólki sem eldar óætan mat, segir Jacques Chirac, forseti Frakklands. Yfirlýsingar hans um breska matargerð hafa valdið úlfúð og uppnámi á Bretlandi - og raunar líka Finnlandi, því þar er maturinn ennþá verri að mati Chiracs. Erlent 13.10.2005 19:28
Hamas samtökin hafna aðild Hamas samtökin í Palestínu hafa hafnað tilboði Mahmoud Abbas, leiðtoga landsins, um aðild að ríkisstjórn Palestínu. Abbas bauð forsvarsmönnum samtakanna til viðræðna um hugsanlega þátttöku í samsteypustjórn, en án árangurs. Erlent 13.10.2005 19:28
Viðræður hefjast í dag Viðræður um kostnaðarskiptingu vegna framtíðarvarnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna á Keflavíkurflugvelli hefjast í dag. Viðræðurnar fara fram í Washington. Innlent 13.10.2005 19:28
Baugur enn í Somerfield viðræðum Breskir fjölmiðlar telja að ákærur á hendur forsvarsmönnum Baugs þýði að félagið neyðist til að draga sig út úr hópi fjárfesta sem hyggjast festa kaup á stórverslanakeðjunni Somerfield. Forstjóri Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, reynir nú að draga úr þeim skaða sem Baugsmálið gæti valdið félaginu. Innlent 13.10.2005 19:28
Skotárás í Bagdad Fimm opinberir starfsmenn voru skotnir til bana í Bahgdad, höfuðborg Íraks í morgun. Mennirnir voru á leið til vinnu þegar vopnaðir menn hófu skothríð með fyrrgreindum afleiðingum. Þá sprakk bílsprengja við sendiráð Írans í Írak í morgun, en enginn slasaðist í árásinni. Erlent 13.10.2005 19:28
Mannréttindafulltrúi á Íslandi Mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins, Alvaro Gil-Robles, lauk í gær þriggja daga opinberri heimsókn hér á landi. Innlent 13.10.2005 19:28
Innbrot í ljósmyndavöruverslun Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í austurborginni um klukkan fimm í morgun og þaðan stolið á annan tug dýrra myndavéla. Þjófurinn komst undan og er hans nú leitað. Innlent 13.10.2005 19:28
Endurbætur á kostnað flokksins Endurbætur á húsi Framsóknarflokksins, sem áður var í eigu Kers, voru að fullu á kostnað flokksins sjálfs, segir í tilkynningu frá Framsóknarflokknum. Innlent 13.10.2005 19:28
Persónuvernd vill takmarka aðgang Persónuvernd telur að rafræn sjúkraskrá Landspítalans og heilsugæslunnar sé komin fram úr lögum. Í vor fengu allir læknar Landspítalans aðgang að öllum sjúkraskrám, í svokölluðu Sögukerfi óháð því hvaða kvilla væri verið að meðhöndla. Innlent 13.10.2005 19:28
SÁÁ byggir við Efstaleiti Skóflustunga að nýrri byggingu SÁÁ við Efstaleiti var tekin í fyrradag en stefnt er að því að byggingu hússins verði lokið haustið 2006. Innlent 13.10.2005 19:28
Lögreglan á Hróarskeldu leit undan Danska lögreglan horfði gegnum fingur sér með hassneyslu á útitónleikunum á Hróarskeldu, þótt lög sem sett voru í Danmörku fyrir ári geri ráð fyrir að refsa skuli fyrir jafnvel smæstu fíkniefnabrot. Lögreglan segist ekki bregðast við sé farið fínt í hassreykingarnar, aðeins ef þeim er tranað fram. Erlent 13.10.2005 19:28
Hryðjuverki afstýrt Bosnísk lögregluyfirvöld skýrðu frá því í gær að talsvert magn sprengiefna hefði fundist á minningarreit um fjöldamorðin í Srebrenica en þar fer fjölmenn athöfn fram í næstu viku. Erlent 13.10.2005 19:28
Þristinum flogið aftur til útlanda DC-3 flugvélin Páll Sveinsson heldur í dag af stað í hringflug til Bretlands og Norðurlanda þaðan sem hann snýr aftur til Íslands. Flugið er farið til að minnast þess að í ár eru sextíu ár liðin síðan farþegaflug hófst milli Íslands og annarra landa. Innlent 13.10.2005 19:28
Niðurskurður hjá RÚV Um síðustu mánaðamót var ákveðið að skera niður kostnað hjá Ríkisútvarpinu til að ná jafnvægi í rekstri stofnunarinnar á árinu. Um er að ræða flatan tveggja prósenta niðurskurð sem leggst jafnt á bæði útvarp og sjónvarp og á að spara fimmtíu milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:28
Fleiri við gæslu en að mótmæla Um 200 mótmælendur gengu um götur Kaupmannahafnar í gær og mótmæltu komu George Bush til landsins. Mótmælendurnir voru svartklæddir og gengu um með skilti þar sem Bush var tjáð að hann væri óvelkominn. Einn var handtekinn fyrir að brenna bandaríska fánann. Erlent 13.10.2005 19:28
Hútúar unnu kosningarnar Flokkur uppreisnarmanna virðist hafa unnið meirihluta í þingkosningunum í Afríkuríkinu Búrúndí, þeim fyrstu sem haldnar hafa verið í landinu í tólf ár. Erlent 13.10.2005 19:28
Icelandic Group með afkomuviðvörun Icelandic Group hefur sent frá sér afkomuviðvörun og lækkuðu hlutabréf fyrirtækisins lítillega í morgun. Samþætting rekstrar Icelandic Group hf. og Sjóvíkur ehf. stendur yfir og unnið er að heildarstefnumótun sameinaðs félags en áætlanir og framtíðarsýn sameinaðs fyritækis verða kynntar í lok ágúst. Innlent 13.10.2005 19:28
Uppstilling á R-lista Framsóknarmenn og Vinstri grænir í samráðshópi R-listans segja boltann vera hjá Samfylkingunni hvað varðar framhald viðræðna um uppstillingu á framboðslista. Tillögur sem framsóknarmenn lögðu fram í gær fóru ekki vel í samfylkingarmenn. Innlent 13.10.2005 19:28
Staðsetning ræðst í dag Í dag mun Alþjóðaólympíunefndin greina frá því hvar Ólympíuleikarnir verða haldnir árið 2012. Fundur nefndarinnar fer fram í Singapúr og af því tilefni hefur fjöldi áhrifamanna haldið þangað til að auka möguleika sinna borga. Erlent 13.10.2005 19:28
Möguleiki á að riða breiðist út Brögð eru að því að hestamenn fari illa með fjárréttir og safngirðingar víða um land. Að sögn Ólafs Dýrmundssonar, landnýtingarráðunautar hjá Bændasamtökum Íslands, er þetta mjög áberandi í nágrenni við Reykjavík Innlent 13.10.2005 19:28
Hrefnur skoðaðar og svo skotnar "Það er útlit fyrir að dýrin verði skoðuð á daginn og svo skotin að nóttu," segir Vignir Sigursveinsson skipstjóri á hvalaskoðunarbátnum Eldingunni en hann segist hafa orðið var við hrefnuveiðibáta strax í fyrradag á þeim slóðum þar sem hann er að sigla um með fólk í hvalaskoðun suðvestur af Akranesi og norður með Kjalarnesi. Innlent 13.10.2005 19:28
Fyrsta útskriftin Menntaskólinn Hraðbraut útskrifar fyrstu stúdentana á laugardag en skólinn hóf störf árið 2003 og býður upp á nám til stúdentsprófs á tveimur árum. Innlent 13.10.2005 19:28
Gistinóttum fer fjölgandi Gistinætur á hótelum á landinu í maí síðastliðnum voru fimm prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Þær voru nú tæplega 87 þúsund sem er fjölgun um rúmlega fjögur þúsund. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Innlent 13.10.2005 19:28