Fréttir

Fréttamynd

Sjíar leggja áherslu á íslam

Þegar aðeins dagur er til stefnu fyrir íraska stjórnmálaleiðtoga að semja uppkast til stjórnarskrár virðist sem fyrr allt í hnút.

Erlent
Fréttamynd

Hélt upp á 108 ára afmælið

Sólveig Pétursdóttir fyrrverandi húsfreyja í Svínafelli í Öræfum hélt upp á 108 ára afmæli sitt í gær á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þar sem hún dvelur. Hún er næstelst allra Íslendinga. Að sögn starfsfólks er Sólveig við nokkuð góða heilsu þótt sjón og heyrn séu farin að dvína. </font />

Innlent
Fréttamynd

Lést af völdum hnífsstungu

Tvítugur karlmaður lést af völdum hnífsstungu í húsi í Hverfisgötu 58 í Reykjavík í morgun. Fernt er í haldi lögreglu vegna málsins og verður ákveðið síðar í dag hvort gæsluvarðhalds verður krafist yfir einhverjum fjórmenninganna. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar var maðurinn stunginn í hjartastað og er talið að hann hafi látist samstundis.

Innlent
Fréttamynd

Hirtu þrjú tonn af kókaíni af báti

Sjóherinn á Frönsku Gvæjana lagði á sunnudaginn hald á þrjú tonn af kókaíni af fiskibáti frá Venesúela. Frá þessu greindu yfirvöld á staðnum í dag. Eftir ábendingu frá bandarísku strandgæslunni fylgdust frönsk yfirvöld með bátnum og létu loks til skarar skríða á fransk-gvæjönsku hafsvæði.

Erlent
Fréttamynd

Á þriðja hundrað viðburða

Menningarnótt Reykjavíkur er haldin í dag, í tíunda sinn. Hátíðin hófst með maraþonhlaupi í morgun og síðan rekur hver atburðurinn annan.

Innlent
Fréttamynd

Vegagerð í friðland kærð

Vegarslóði frá Unaðsdal á Snæfjallaströnd upp á Dalsheiði hefur nú verið gerður jeppafær ofan í Leirufjörð í Jökulfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Batt, pyntaði og myrti

Dómstóll í Sedgwick-sýslu í Kansas dæmdi á fimmtudaginn Dennis Rader, betur þekktan sem BTK, í tífalt lífstíðarfangelsi. Þar með er endi bundinn á harmleik sem rekur sig þrjátíu ár aftur í tímann.

Erlent
Fréttamynd

Systkin í sviðsljósinu

Íslenskar systur unnu maraþon og hálfmaraþon kvenna í Reykjavíkur-maraþoninu meðan sænskir bræður voru jafn sigursælir í maraþoni og hálfmaraþoni karla.

Innlent
Fréttamynd

Tugþúsundir í miðbænum í dag

Tugþúsundir manna arka nú um miðbæ Reykjavíkur og fylgjast með fjölbreyttri dagskrá Menningarnætur. Gert er ráð fyrir allt að hundrað þúsund manns í miðbænum í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Handrit Einsteins fundið

Handrit að ritgerð sem Albert Einstein birti árið 1925 fannst í skjalasafni Leiden-háskóla í Hollandi á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglumenn vegnir í Dagestan

Að minnsta kosti þrír lögreglumenn létust og fjórir særðust þegar bílsprengja sprakk í Dagestan í Rússlandi í dag. Interfax-fréttastofan greinir frá því að bíll, sem var hlaðinn sprengiefni, hafi sprungið við eina aðalumferðaræðina í Makhachkala, höfuðborg Dagestans, í þann mund sem lögregla ók þar fram hjá í eftirlitsferð.

Erlent
Fréttamynd

Dæmdar bætur vegna áhrifa lyfs

Kviðdómur í Texas dæmdi í gær ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx 253 milljónir bandaríkjadala í bætur. Það jafngildir 16,5 milljörðum króna. Búist er við að þessi upphæð lækki verulega við áfrýjun en hlutabréf í Merck's, sem framleiðir Vioxx, féllu skarpt þegar fréttirnar bárust.

Erlent
Fréttamynd

Gripnir með marijúana

Þrír menn voru handteknir í nótt á Reykjanesbraut þar sem lítilræði af marijúana fannst við leit í bíl þeirra. Mennirnir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu. Þá var tilkynnt um minni háttar líkamsárás í heimahúsi í Grindavík í nótt, en hún hefur ekki verið kærð.

Innlent
Fréttamynd

Ráðist á flokksskrifstofur í Írak

Byssumenn réðust á skrifstofur Lýðræðisflokks Kúrdistans í Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag og særðu þrjá menn sem stóðu vörð um skrifstofurnar. Árásin kom í kjölfar mótmæla í borginni á vegum arabískra stjórnmálamanna sem eru andvígir því að Írak verði sambandsríki. Þeir telja að með því muni Kúrdar ná völdum í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Íslam verði meginuppspretta laga

Íslam verður „meginuppspretta“ íraskra laga og þingið mun starfa eftir reglum trúarinnar. Þetta eru nýjustu boð samningamanna sem sitja við gerð írösku stjórnarskrárinnar. Þeir eru nú þegar komnir fram yfir þann frest sem þeir gáfu sér í upphafi til að ljúka við fyrstu drög og ef þetta gengur í gegn er greinilegt að sjítar eru farnir að gefa eftir, en þeir hafa verið sammála megináherslu Bandaríkjastjórnar um að aðalatriði stjórnarskrárinnar eigi að snúast um lýðræði og mannréttindi.

Erlent
Fréttamynd

Teknir í Kópavogslaug í nótt

Lögreglan í Kópavogi stöðvaði sundleikfimi tveggja rúmlega tvítugra pilta í Kópavogslauginni í nótt, en þeir höfðu brotist þar inn og farið í laugina. Sundferðin hjá piltunum verður þó nokkuð kostnaðarsöm því kalla þurfti sundlaugarvörðinn út sem þurfti að hreinsa til eftir piltana.

Innlent
Fréttamynd

Skorar á múslima að sýna samstöðu

Á fundi með múslimaleiðtogum í Köln í Þýskalandi í gær fordæmdi Benedikt páfi XVI "grimma öfgahyggju" hryðjuverkamanna og skoraði á múslima að taka höndum saman með kristnum mönum í baráttunni gegn þeim.

Erlent
Fréttamynd

Hlupu til styrktar sykursjúkum

Yfir tvö hundruð Kanadamenn tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Fólkið var í líflegum búningum en hópurinn hleypur til styrktar rannsóknum á sykursýki í Kanada.

Innlent
Fréttamynd

Vilja starfa nafnlausir í fangelsi

Norskir fangaverðir eru farnir að krefjast þess að starfa nafnlausir af ótta við hefndaraðgerðir fanga. Verðirnir vilja fá að skrifa nafnlausar skýrslur og sömuleiðis að bera vitni án þess að nafn þeirra komi fram. Verðirnir segja að fangarnir hóti þeim iðulega og því ættu þeir öryggisins vegna að fá að starfa nafnlaust eða undir dulnefni.

Erlent
Fréttamynd

Flóð valda usla í Rúmeníu

Flóð halda áfram að valda usla í Rúmeníu, en síðustu fjóra daga hafa 14 manns látist og 1200 þurft að yfirgefa heimili sín vegna þeirra. Alls hafa 200 hús eyðilagst og 5.500 skemmst í flóðunum, að sögn innanríkisráðherra Rúmeníu, og þá eru 88 þorp án rafmagns.

Erlent
Fréttamynd

Kosið í Palestínu 25. janúar

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, greindi frá því í dag að þingkosningar í landinu færu fram 25. janúar á næsta ári. Upphaflega áttu þær að fara fram í júlí síðastliðnum en yfirvöld í Palestínu frestuðu þeim og báru við vandræðum með kosningalöggjöf og brottflutningi Ísraela frá landnemabyggðum á Gasa og Vesturbakkanum.

Erlent
Fréttamynd

Tvítugur maður stunginn til bana

Tvítugur Reykvíkingur var stunginn til bana í kjallaraíbúð við Hverfisgötu 58 í gærmorgun. 23 ára karlmaður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um að hafa stungið hinn látna í vinstra brjóstholið. Þeir voru saman í samkvæmi í húsinu ásamt húsráðendum, karli og konu á fimmtugsaldri, og karlmanni um tvítugt.

Innlent
Fréttamynd

Stöðugur straumur í miðborgina

Stöðugur straumur er nú niður í miðborg Reykjavíkur þar sem Menningarnótt er í algleymingi. Að sögn lögreglu hefur allt gengið vel hingað til og býst hún við fólki haldi áfram að fjölga í miðbænum enda veður betra en spár gerðu ráð fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Flugvél brotlenti í Frakklandi

Flugmaður slökkviliðsflugvélar lést þegar vélin brotlenti í Ardeche-héraði í Suðaustur-Frakklandi í dag. Að sögn flugmálayfirvalda tók vélin þátt í slökkvistarfi á svæðinu en þar loga nú skógareldar. Yfirvöld segja annan mann hafa verið í flugvélinni en hann er ófundinn. Orsök slyssins er ókunn.

Erlent
Fréttamynd

Kosningadagur ákveðinn

Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar gaf út tilskipun í gær sem kveður á um að landið þar sem byggðir Ísraela á Gaza stóðu áður yrðu almenningseign. Auk þess tilkynnti hann að þingkosningar yrðu haldnar 25. janúar næstkomandi.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir Breta í mál við Merck

Búast má við því þúsundir Breta leiti réttar síns gagnvart lyfjafyrirtækinu Merck eftir að kviðdómur í Texas úrskurðaði í gær að ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx skyldu dæmdar bætur. Merck er gefið að sök að hafa leynt vitneskju um hættuleg aukaáhrif lyfsins, sem notað var gegn gigt, en rannsóknir sýndu að sá sem tók það í meira en átján mánuði var í tvöfalt meiri hættu að fá hjartaáfall.

Erlent
Fréttamynd

Fólk noti strætisvagna meira

Mikill mannfjöldi er nú í miðborg Reykjavíkur þar sem Menningarnótt er haldin hátíðleg í blíðskaparveðri. Að sögn lögreglu mikill straumur af gangandi fólki á leið niður í bæ og þá streyma bílar vestur eftir Sæbrautinni og er umferð allmikil. Vill lögregla benda fólki sem er á leið niður í bæ að nýta sér almenningssamgöngur, en strætisvagnar á leið í miðbæinn stoppa á móts við Hljómskálann en vagnar á leið út úr miðborginni fara frá biðstöðinni við Ráðhúsið í Vonarstræti.

Innlent
Fréttamynd

Mugabe með „hreinsunarátak“

Ríkisstjórn Roberts Mugabes heldur áfram svokölluðu „hreinsunarátaki" í kringum borgir landsins með því að sópa þúsundum manna sem búa í neyðarbúðum upp í bíla í skjóli myrkurs og skilja þær eftir vítt og breitt upp til sveita án nokkurrar aðstoðar. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa smyglað út myndum af ástandinu og segja það skelfilegt.

Erlent
Fréttamynd

Konur betri á hlutabréfamarkaði

Konur eru betri fjárfestar en karlar og standa sig betur á hlutabréfamarkaði. Þetta sýnir ný, umfangsmikil rannsókn norska hlutabréfasambandsins, AksjeNorge, sem nær yfir síðustu tíu ár. Á árunum 1995-2000 var hlutabréfasamsetningin hjá körlunum betri en svo sprakk netbólan og þá tóku konurnar forystuna og hafa haldið henni síðan.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nýnasistar marséra í Kolding

Um eitt hundrað danskir, sænskir og þýskir nýnasistar gengu um bæinn Kolding í Danmörku í dag til þess að minnast dánardægurs Rudolfs Hess. Þá mótmæltu nýnasistarnir því að þýsk stjórnvöld hefðu bannað samsvarandi göngu þar í landi í síðasta mánuði. Lögregla í Kolding fylgdist vel með hópnum og lagði hald á nokkur barefli sem fundust á mönnunum en hópurinn fékk ganga um höfn bæjarins.

Erlent