Samkvæmislífið

Samkvæmislífið

Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Fréttamynd

Stjörnum prýtt fimm­tugs­af­mæli Ragnars Jónas­sonar

„Ég er óendanlega þakklátur,“ segir rithöfundurinn Ragnar Jónasson sem verður fimmtugur næsta mánudag og tók forskot á afmælissæluna með glæsilegri veislu í Hvammsvík á föstudag. Tímamótin fara vel í Ragnar sem elskar veisluhöld og hefur nánast verið í starfi viðburðastjóra við undirbúninginn. Hann ætlar svo að fagna deginum sjálfum í ensku sveitinni með annarri veislu.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Innipúkunum fjölgar enn

Elín Hall, Ízleifur, GDRN og Joey Christ eru meðal þeirra sem hafa bæst við hóp listamannanna sem koma fram á Innipúkanum í Austurbæjarbíói um verslunarmannahelgina. Tónlistarhátíðin stendur yfir í þrjá daga líkt og vanalega en hún hefur verið haldin árlega síðan 2002 að undanskildum tveimur „mögrum kóvid-árum“.

Tónlist
Fréttamynd

Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari

Tónlistarmaðurinn Elvar hélt útgáfupartý með Nova á SkýBar síðasta fimmtudag þar sem hann frumflutti nýja ábreiðu af súperhittaranum „Hlið við hlið“ eftir Friðrik Dór. Stemmingin var við völd og gíraðir gestir sötruðu á svalandi veigum.

Tónlist
Fréttamynd

Svona er stemningin á Þing­völlum í dag

Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna.

Lífið
Fréttamynd

Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak

Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku.

Menning
Fréttamynd

Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö

Áhrifavaldar, tónlistarstjörnur og fyrirsætur snæddu saman kvöldverð í gær í óhefðbundnu þema þar sem dramatíkin var í fyrirrúmi. Meðal gesta voru raunveruleikastjarnan Birgitta Líf, fyrirsætan Helga Þóra, djamm-drottningin Gugga í gúmmíbát og tónlistarkonan Kolfreyja. 

Lífið
Fréttamynd

Tuttugu gellur á einu kvöldi

Gugga í gúmmíbát ræddi við nýútskrifaða stúdenta og vel gíraða djammara í nýjasta þætti Gugga fer á djammið. Gugga spurði viðmælendur sína út í bólfélagafjölda, lagði fyrir þá krefjandi kynlífsspurningar og gróf gamla stríðsexi síðan úr æsku. 

Lífið
Fréttamynd

Jakob Frí­mann stal senunni í hátískuskyrtu

Þakið ætlaði að rifna af Háskólabíói um helgina þegar sýningin Með allt á hreinu var frumsýnd. Gamlir Stuðmenn létu sig ekki vanta og meðal þeirra var Jakob Frímann sem rokkaði silkiskyrtu frá tískuhúsinu Paul Smith. 

Lífið
Fréttamynd

Þor­gerður Katrín og Sól­veig Anna í þrumustuði í Þulu

Myndlistarkonan Kristín Morthens opnaði nýverið sýninguna Að teygja tvílýsið í Þulu gallerý í Marshall-húsinu. Sýningin fjallar um það að staldra við í óvissu og stendur yfir til 28. júní. Fjöldi góðra gesta mætti á sýningaropnunina, þar með talið verkalýðsleiðtogi og utanríkisráðherra.

Menning
Fréttamynd

Stjörnufans í eins árs af­mæli

Það var líf og fjör í Vesturbænum á dögunum þegar nýsköpunarstofan Studioek fagnaði eins árs afmæli sínu með teiti á skrifstofu sinni. Meðal gesta voru Benedikt Bjarnason, Marteinn Högni og Eva Einarsdóttir.

Lífið
Fréttamynd

Ás­laug býður í partý

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er á leið aftur til Íslands eftir tæpa ársdvöl í Bandaríkjunum. Hún býður vinum og vandamönnum í léttan fögnuð við heimkomuna. 

Lífið
Fréttamynd

Buxur með opið klof vöktu at­hygli

„Þessar buxur eru magnaðar því þær eru með opið í klofinu og yfir rassinn. Þetta hylur allt nema það sem buxur eiga að hylja,“ segir leikstjórinn Egill Andra sem vakti athygli fyrir klæðaburð sinn á Grímunni í vikunni. Egill er 24 ára gamall og tók við verðlaunum fyrir hönd leikarans Árna Péturs sem var staddur á Spáni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stjörnufans í matar­boði Loga Pedro

Ungstirnið Elvar Orri, rapparinn Jóhann Kristófer, fyrirsætan Nadía Áróra og raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime voru meðal gesta í glæsilegu boði listamannsins Loga Pedro í Ásmundarsal á dögunum. Þar gæddu margar af stjörnum landsins sér á dýrindis veitingum og fögnuðu sýningu Loga sem ber heitið Heimur.

Lífið
Fréttamynd

Þá var kátt í höllinni

Það var gríðarleg stemning í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið þegar rapparinn Árni Páll, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, steig á svið fyrir framan þúsundir manna. 

Tónlist
Fréttamynd

Aðalpæjur landsins komu saman

Fullt hús var í Ásmundarsal um liðna helgi þegar gestir mættu í hönnunarpartý til að fagna þremur opnunum; einkasýningu Loga Pedro, Heimur, ásamt sýningunum Daydreaming eftir Sóleyju Jóhannsdóttur og 1160° eftir Auði Gná Ingvarsdóttur.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stjörnufans hjá Birni á Edition

Sannkölluð tónlistarveisla tók yfir skemmtistaðinn ROOF í síðastliðinni viku þegar Birnir stóð fyrir tónleikum. Ásamt honum þeytti Benni B-ruff skífum og stjörnurnar Flóni og Tatjana komu fram.

Tónlist
Fréttamynd

Gusugleði í Vesturbæjarlaug

Gusugleðin var við völd í Vesturbæjarlaug á laugardag þegar hönnunarmerkið Salún bauð í sundveislu og kynnti samtímis nýja línu sem heitir Gárur. Gusumeistarinn Saga Klose hélt utan um gusulotur og DJ Karítas þeytti skífum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fögnuðu sjö­tíu árum og heiðruðu fé­laga

Íþróttafréttamenn fögnuðu sjötíu ára afmæli Samtaka íþróttafréttamanna í sal á efri hæð Parliament Hotel við Austurvöll í gær. Gamlir haukar voru heiðraðir með silfur- og gullmerkjum, kollegar báru saman bækur sína og Ari Eldjárn skemmti mannskapnum.

Lífið