Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 31. október 2026 08:02 Móðursystir Hrafnhildar, Sigurlaug Hrafnsdóttir, rifjar upp atburðarásina, áhrif morðsins á fjölskylduna og greinir frá nýjum upplýsingum sem nýlega hafa komið fram í málinu. Samsett „Staðan er eiginlega bara þannig að fjölskyldan er bara að loka þessu máli, hver á sinn hátt,“ segir Sigurlaug Hrafnsdóttir, móðursystir Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur.
Hrafnhildur Lilja var vinamörg og ævintýragjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í landinu var hún myrt á hrottafenginn hátt. Eftir stendur fjölskylda Hrafnhildar Lilju í sárum öllum þessum árum síðar og ótal stórum spurningum er enn ósvarað. Þrátt fyrir að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins var það talið óupplýst í 18 ár. Fjallað er um morðið í nýjasta þætti Eftirmála í umsjón Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnar Yaghi. Þar ræðir Sigurlaug um systurdóttur sína, rannsókn málsins og áhrifin á fjölskylduna og greinir jafnframt frá upplýsingum sem henni bárust nýlega frá íslenskum lögregluyfirvöldum um mann sem sagður er grunaður um morðið. „Draumar hennar voru alltaf stórir“ Hrafnhildur ólst upp á Ólafsfirði og stundaði nám í tölvunarfræði við Háskólann á Akureyri. Hún hafði starfað sem rekstrarstjóri hjá Sporthúsinu í Kópavogi en var jafnframt ævintýragjörn og ferðaðist mikið. Sigurlaug lýsir henni sem greindri, forvitinni og metnaðarfullri frá unga aldri. „Hrafnhildur var alveg einstök manneskja. Bara strax og hún fæddist þá var hún með mikinn karakter,“ segir hún og rifjar upp að Hrafnhildur hafi verið rólegur en skemmtilegur og spyrull krakki. Hún var bara eldklár og draumar hennar voru alltaf stórir, bara alla tíð. Hrafnhildur var mikið í íþróttum, meðal annars á skíðum og í fótbolta, og dreymdi um að kenna dans á skemmtiferðaskipi. Sigurlaug minnist þess þegar hún lagði undir sig þvottahús fjölbýlishússins þar sem hún bjó til að æfa zumba. Henni hafi verið mikið í mun að prófa nýja hluti og fylgja hugmyndum sínum eftir. Síðasta ferðalag Hrafnhildar var heimsreisa þar sem hún kom meðal annars við í New York, Dúbaí og Ástralíu. Hún endaði í strandbænum Cabarete í Dóminíska lýðveldinu, þar sem hún fékk starf á hóteli fyrir brimbrettafólk. Hún vann sig fljótt upp í stjórnunarstöðu og tók á endanum við rekstri hótelsins. Þrátt fyrir fjarlægðina hélt Hrafnhildur nánu sambandi við fjölskylduna, ekki síst ömmu sína, sem hún ræddi reglulega við á netinu. Að sögn Sigurlaugar leið henni vel og ekkert benti til þess að hún væri í hættu. „Hún var bara að njóta lífsins og það var bara allt skemmtilegt og gaman.“ Fannst látin á hótelherbergi Þann 23. september 2008 var greint frá því að íslensk kona á þrítugsaldri hefði fundist látin á hóteli í Dóminíska lýðveldinu daginn áður. Fljótlega kom í ljós að þar var Hrafnhildur á ferð, aðeins 29 ára gömul, og að andlát hennar væri rannsakað sem morð. Í frétt Vísis 24. september kom fram að lögregla í Puerto Plata hefði handtekið fjóra einstaklinga vegna málsins, þrjá karla og eina konu. Tveir höfðu starfað á hótelinu en hinir tveir voru kunningjar Hrafnhildar. Einn var grunaður um morðið sjálft en hinir taldir geta veitt upplýsingar. Krufning leiddi í ljós að Hrafnhildur hafði látist af völdum þungs höfuðhöggs. Hún var einnig með áverka víða um líkamann, meðal annars eftir hníf, og var talin hafa verið látin í um 15 klukkustundir þegar hún fannst. Morðið var framið á Extreme-hótelinu þar sem hún bjó og starfaði. Næstu daga beindi lögreglan sjónum sínum að mönnum sem Hrafnhildur hafði mögulega átt í ástarsambandi við. Í frétt Vísis 25. september var Frederick Franklin Genao nafngreindur sem grunaður um morðið. Kelvin Corniel Fermín, sem talinn var fyrrverandi kærasti hennar, og Paola Jimenez Rodriguez, starfsmaður hótelsins, voru einnig í haldi. Rannsakað var hvort þau síðarnefndu hefðu verið í vitorði með hinum grunaða og lögreglan taldi afbrýðisemi mögulegt tilefni morðsins. Engin staðfest niðurstaða fékkst þó um þá kenningu. Sögðu að hún hefði tekið eigið líf Fljótlega vöknuðu alvarlegar spurningar um rannsókn lögreglunnar. Í frétt á Vísi 26. september var haft eftir Junior Enrique, rannsóknarblaðamanni dagblaðsins El Nuevo Norte í Cabarete, að lögreglan hefði upphaflega sagt fjölmiðlum að Hrafnhildur hefði tekið eigið líf. Blaðamanninum höfðu borist ljósmyndir af líki Hrafnhildar sem sýndu að hún hafði hlotið mikla áverka. Hann birti myndirnar og sagði það hafa orðið til þess að lögreglan rannsakaði málið af meiri alvöru. Þegar íslensk fréttastofa leitaði svara hjá lögreglunni afsakaði lögreglan fyrstu upplýsingarnar og staðfesti að málið væri rannsakað sem morð. Á sama tíma var þeim þremur einstaklingum sem enn voru í haldi sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Sigurlaug segir að fjölskyldan hafi frá upphafi verið mjög ósátt við hvernig staðið var að rannsókninni og telur meðal annars að mikilvægum sönnunargögnum hafi ekki verið safnað. Til að mynda voru ekki tekin DNA-sýni af nöglum Hrafnhildar eða varnaráverkum hennar. Óvissa og sorg Í þættinum rifjar Sigurlaug upp daginn sem hún frétti af andláti Hrafnhildar. „Ég var búin að vera hjá mömmu hennar og pabba um kvöldið, fór svo bara heim að sofa og svo komu þau klukkan fimm um morguninn og vöktu mig til að segja mér þetta.“ Hún segir að næstu dagar hafi verið hræðilegir og sérstaklega erfitt að þurfa að segja ömmu Hrafnhildar frá því sem gerst hafði. Fjölskyldan þurfti jafnframt að koma líki Hrafnhildar heim til Íslands. Sigurlaug segir að heimflutningurinn hafi tafist og að biðin hafi að hennar minni verið um tíu dagar. Áverkarnir voru svo miklir að aðeins var hægt að sjá hluta af andliti Hrafnhildar við kistulagninguna. Hrafnhildur var jarðsungin í Ólafsfjarðarkirkju 4. október 2008. Í minningargreinum var henni lýst sem brosmildri, sjálfstæðri, lífsglaðri og vinamargri konu. Sigurlaug segir að morðið hafi komið sérstaklega illa við samfélagið á Ólafsfirði þar sem Hrafnhildur var vel þekkt. Hún rifjar upp að allir hafi sýnt fjölskyldunni mikla samkennd en á sama tíma hafi hún þurft að takast á við ýmis verkefni og ákvarðanir sem enginn er undirbúinn fyrir. Hún segir að fyrstu dagarnir hafi liðið í óvissu og sorg og að það hafi verið erfitt að átta sig á því hvernig hægt væri að halda áfram. Rannsókninni hætt án niðurstöðu Mánuðirnir liðu án þess að nokkur væri ákærður fyrir morðið. Í frétt Vísis í maí árið 2009 kom fram að formlegri rannsókn dóminískra lögregluyfirvalda hefði verið hætt án niðurstöðu. Þrír höfðu þó enn réttarstöðu grunaðra samkvæmt lögregluskýrslu sem faðir Hrafnhildar, Georg Páll Kristinsson, hafði fengið í hendur. Sigurlaug segir að fjölskyldan hafi lítið fengið að vita um rannsóknina þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Oft hafi þau frétt af gangi mála í fjölmiðlum frekar en frá yfirvöldum. Hún segir einnig að ýmsar kenningar hafi komið fram um hvers vegna Hrafnhildur var myrt. Ein tilgátan var til dæmis sú að hún hefði verið búin að rétta við reksturinn á þessu hóteli og þá er það bara ekki víst að það sé vinsælt meðal gengja. Tveir lögreglumenn á næsta herbergi Sigurlaug nefnir enn eitt atriði sem hún hefur lengi sett spurningarmerki við. Að hennar sögn dvöldu tveir lögreglumenn á herberginu við hliðina á Hrafnhildi dagana fyrir morðið en þeir hurfu af hótelinu um það leyti sem það kom upp. „Ég veit ekki til þess að þeir hafi verið yfirheyrðir. Þeir hurfu þarna þennan dag, virðist vera.“ „Hún er tekin af lífi og það gerir enginn neitt“ Árið 2022, fjórtán árum eftir morðið, stigu Líney Hrafnsdóttir, móðir Hrafnhildar, og Sigurlaug fram í viðtali við Ísland í dag. „Við gátum ekki, þegar hún var kistulögð, tekið klútinn af henni en ég sá hana, helminginn af andlitinu. Við ákváðum það ég og maðurinn minn að sýna bara hálft andlitið. Svo ætluðum við að sýna hendurnar á henni, þannig að fólk gæti komið við hendurnar á henni, en það var ekki hægt því hún var með svo mikla áverka á höndum líka, varnaráverka. Þannig það var mjög erfitt. Hún var mjög illa farin,“ sagði Líney meðal annars í þættinum. Líney og Sigurlaug gagnrýndu jafnframt íslensk stjórnvöld fyrir að hafa að þeirra mati ekki beitt sér nægilega fyrir því að rannsóknin yrði tekin upp aftur. Líney kvaðst hafa hringt vikulega í um eitt og hálft ár eftir morðið til að kanna stöðu málsins án þess að fá viðunandi svör. Fjölskyldan hefði óskað eftir að tveir íslenskir lögreglumenn yrðu sendir utan til að fara yfir rannsóknargögnin en þeirri beiðni hefði verið hafnað. „Mér finnst bara svo skrítið að íslenskur ríkisborgari sé bara tekinn af lífi og það geri enginn neitt,“ sagði Líney í þættinum. Það hefði verið huggun að senda tvo menn út, er ekki annað eins gert? Mér finnst að fólk eigi rétt á því undir svona kringumstæðum. Ég veit að hún er ekkert eina sem hefur lent í þessu, það eru fleiri fjölskyldur og fleiri sem hafa verið drepnir erlendis. Hún lýsti einnig gríðarlegum áhrifum morðsins á hana og eiginmann hennar. Bæði hefðu þau veikst og fallið út af vinnumarkaði. Við erum bara veik. Þetta er bara drulluerfitt, ef ég á að vera hreinskilin. Lögreglan gerði aðra atlögu Viðtalið vakti mikla athygli og daginn eftir kom fram í frétt á Vísi að ríkislögreglustjóri hygðist óska eftir frekari gögnum frá Dóminíska lýðveldinu. Við yfirferð málsins hafði komið í ljós að ekki hafði verið svarað öllum fyrirspurnum íslenskra yfirvalda á sínum tíma. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hafði samband við Líneyju og tilkynnti henni að málið yrði skoðað aftur. Í fréttinni var tekið fram að íslenska lögreglan gæti ekki rannsakað morðið sjálfstætt án formlegs samstarfs við erlend yfirvöld. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, þáverandi ríkislögreglustjóri, sagði hins vegar að alþjóðlegt lögreglusamstarf hefði þróast og að hægt væri að nýta samskiptaleiðir Interpol til að kalla eftir gögnum sem ekki höfðu borist. Markmiðið væri meðal annars að fá að vita hvað hefði verið rannsakað, hvers vegna málinu væri lokið og hvort einhverjar vísbendingar væru enn til staðar. Í kjölfarið fóru tveir íslenskir lögreglumenn til Dóminíska lýðveldisins. Sigurlaug segir að ferðin hafi ekki skilað afgerandi niðurstöðu en að lögreglan hafi haldið áfram að leita svara. Í desember 2022 greindi Vísir frá því að aðeins ófullnægjandi gögn hefðu borist frá dóminískum yfirvöldum þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Sigurlaug fagnar því að íslenska lögreglan hafi tekið málið til skoðunar en telur að það hafi gerst of seint. Hún segir efnahagshrunið 2008 hafa skyggt á umfjöllun um málið og að árin hafi liðið án þess að fjölskyldan fengi þá aðstoð sem hún óskaði eftir. Nýjar upplýsingar átján árum síðar Líney lést árið 2024 án þess að fá svör við því hver hefði myrt dóttur hennar. Fyrr á þessu ári fékk Sigurlaug hins vegar nýjar upplýsingar frá Karli Steinari Valssyni um mann í Dóminíska lýðveldinu sem sagður var hafa verið sakfelldur fyrir morð. Samkvæmt því sem fram kemur í þætti Eftirmála var maðurinn þegar í fangelsi vegna annars brots þegar hann var sagður hafa hlotið dóm fyrir morðið. Hann hafi hlotið átta ára fangelsisdóm í heildina og setið inni í fimm ár. Fjölskyldan hefur þó ekki fengið að vita hver maðurinn er, hvenær dómurinn féll eða hvernig hann tengdist Hrafnhildi. Þessi óvissa er ekki síst athyglisverð vegna þess að þegar morðið var rannsakað árið 2008 voru nokkrir einstaklingar nafngreindir í fréttum og lögreglan lýsti þá ákveðnum grunsemdum um ástarsambönd. Ekki kemur fram hvort maðurinn sem Sigurlaug fékk nú upplýsingar um sé einhver þeirra eða annar einstaklingur. Einnig er óljóst hvort umrædd átta ára refsing tengist morðinu sjálfu eða öðrum brotum mannsins. „Það eru ekki komnar neinar skýringar á því af hverju hann gerir þetta, hvernig tengslin við hana voru eða neitt slíkt,“ segir Sigurlaug. Þáttastjórnendur höfðu samband við Karl Steinar við vinnslu þáttarins en hann gat ekki veitt frekari upplýsingar. Sigurlaug segir að hann hafi þó haft samband við sig um einum og hálfum mánuði fyrr og staðfest að málið væri enn til skoðunar. „Ég er ekki sár lengur við neinn“ Sigurlaug segir að morðið hafi hvílt þungt á systur hennar allt til æviloka. Líney hafi ekki náð að lifa þær nýju upplýsingar sem fjölskyldunni hafa borist. Hún náttúrulega bara lifði með þetta í hjartanu og átti oft erfitt. Sjálf segist Sigurlaug oft hugsa um hvernig líf Hrafnhildar hefði þróast. Hún ímyndar sér að hún hefði einhvern tímann snúið heim, hugsanlega stofnað fjölskyldu og sinnt danskennslu eða öðrum áhugamálum sínum. Sigurlaug var aðeins átján árum eldri en Hrafnhildur og segir samband þeirra hafa verið bæði eins og milli systra og móður og dóttur. Líney hafði sjálf verið fimmtán ára þegar Hrafnhildur fæddist og Sigurlaug segir fjölskyldurnar hafa verið mjög samheldnar. Börn Líneyjar hafi alltaf verið hennar eigin börn og Hrafnhildur verið stór hluti af lífi hennar frá upphafi. Þótt ótal spurningum sé enn ósvarað hefur Sigurlaug ákveðið að reyna að leggja reiðina frá sér. „Mér finnst erfiðast að hún skuli vera horfin úr lífi mínu.“
Eftirmál Íslensk kona myrt í Dóminíska lýðveldinu Lögreglumál Dóminíska lýðveldið Íslendingar erlendis Ferðalög Mest lesið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið