
Undarlegt að „stórhættulegir menn“ gangi lausir
Talskona Stígamóta segir undarlegt að þrír menn sem eru sakaðir um tvær hópnauðganir gangi lausir. Umræða um þjóðerni mannanna sé afvegaleiðing, það sem máli skiptir sé að tryggja öryggi kvenna gegn kynferðisbrotum.