Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafnar alfarið handtökuskipun á hendur sér sem aðalsaksóknari hins Alþjóðlega sakamáladómstóls hefur farið fram á. Aðalsaksóknarinn sakar Netanjahú, Yoav Gallant varnarmálaráðherra og þrjá leiðtoga Hamas um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísraels sem staðið hafa yfir í um sjö mánuði. Erlent 20. maí 2024 21:59
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar. Innlent 20. maí 2024 18:09
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Aðalsaksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins hefur farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant, varnarmálaráðherra landsins og þriggja leiðtoga Hamas. Allir eru sakaðir um aðild að stríðsglæpum í mannskæðum átökum Hamas og Ísrael sem hafa staðið yfir í um sjö mánuði. Erlent 20. maí 2024 11:20
Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, hefur hótað að segja sig úr stríðsráði Ísraels samþykki Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels ekki áætlun um enduruppbyggingu á Gasa að stríði loknu. Erlent 18. maí 2024 22:18
„Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Fyrrverandi fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í blaki fordæmir ákvörðun landsliðsins um að keppa við ísraelska landsliðið í CEV Silver deildinni sem fer fram í Digranesi í Kópavogi um helgina. Hann hvetur liðið til að mæta ekki á leikinn. Sport 18. maí 2024 17:48
Fremstu blakarar Ísraels leika listir sínar í Digranesi Karla- og kvennalandslið Íslands í blaki taka í fyrsta sinn þátt í CEV Silver deildinni um helgina. Keppt er í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi og er karlalandslið Ísraels á meðal gesta. Hávær krafa hefur verið hjá hluta Íslendinga að sniðganga allar keppnir þar sem Ísrael er á meðal keppenda. Sport 17. maí 2024 11:32
Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Lögregla á Frakklandi skaut mann til bana í dag sem er sagður hafa freistað þess að kveikja í bænahúsi gyðinga í borginni Rouen. Maðurinn var vopnaður eggvopni og var skotinn þegar hann færði sig í átt að lögreglu. Erlent 17. maí 2024 07:00
Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Stjórnvöld á Spáni hafa neitað skipi um leyfi til að leggja að bryggju þar sem um borð eru vopn á leið til Ísrael. Utanríkisráðherra landsins segir þetta í samræmi við afstöðu Spánar. Erlent 17. maí 2024 06:39
Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Sundrung innan ríkisstjórnar Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, virðist nú vera að brjótast upp á yfirborðið en varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefur kallað eftir svörum um framtíð Gasa. Erlent 16. maí 2024 07:52
Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Ísraelsmenn halda áfram að sækja inn í Rafah og hafa skriðdrekar þeirra nú náð inn í íbúðahverfi í borginni. Áætlað er að 360 til 500 þúsund manns hafi yfirgefið borgina eftir að þeir voru hvattir til að rýma ákveðin svæði. Erlent 15. maí 2024 06:57
Réttlætingar og lygar Ísraels Það er sorglegt að fylgjast með því hversu langt íslensk stjórnvöld leyfa Ísrael að draga sig á asnaeyrunum. Ísrael fjöldaframleiðir lygar til að réttlæta árásir sínar á innviði Gaza og Ísland hefur hingað til tekið orð Ísraels undantekningarlaust sem sannleika og án neinnar gagnrýnnar hugsunar. Skoðun 14. maí 2024 08:00
Fjöldi látinna á Gasa á reiki Sameinuðu þjóðirnar hafa neitað því að áætlaður fjöldi látinna á Gasa hafi minnkað eftir að nýjar tölur voru birtar á vefsvæði samtakanna. Þar stendur nú að 24.686 hafi látist, ekki 35.000 eins og áður hafði verið gefið út. Erlent 14. maí 2024 06:34
Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Einni umdeildustu Eurovision-keppni sögunnar lauk um helgina. Fararstjóri íslenska hópsins segir augljóst að þátttaka Ísraelsmanna hafi haft neikvæð áhrif á keppnina. Lífið 13. maí 2024 20:31
Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Til bardaga kom milli Ísraelshers og sveita Hamas í norðurhluta Gasa yfir helgina, á meðan þúsundir flúðu Rafah af ótta við yfirvofandi áhlaup Ísraelsmanna. Erlent 13. maí 2024 07:18
Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Króatíska framlagið var í uppáhaldi hjá íslenskum áhorfendum á Eurovision sem haldið var í Malmö í kvöld. Það franska hlaut 10 stig og Ísrael fékk 8 stig frá íslenskum áhorfendum. Lífið 11. maí 2024 23:15
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. Erlent 11. maí 2024 18:05
Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni Bambi Thug, sem flytur lag Írlands í Evrópsku söngvakeppninni í kvöld, hefur lagt fram kvörtun til stjórnenda keppninnar. Hán vill að Ísraelum verði vísað úr keppninni vegna orðræðu um atriði háns í undankeppninni á þriðjudagskvöldið. Lífið 11. maí 2024 14:29
Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Bandaríkjastjórn telur líklegt að ísraelsk stjórnvöld hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög með notkun sinni á bandarískum vopnum í hernaði sínum á Gasa. Ekki hafi þó verið hægt að staðfesta það og hún trúi fullyrðingum Ísraela um að þeir fari að lögum. Erlent 10. maí 2024 22:27
Spáir Ísrael sigri í Eurovision Eden Golan frá Ísrael er skyndilega talin næstlíklegust til að bera sigur úr býtum í Eurovision í ár með laginu Hurricane. Eurovision-aðdáandi segir þetta ekki koma á óvart og telur raunar að keppnin verði haldin í Tel Aviv að ári. Lífið 10. maí 2024 21:01
Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Bashar Murad sendir í dag frá sér smáskífuna, Stone, af væntanlegri plötu sem hann er að vinna með Einari Stef. Lagið er endurgerð af lagi sem hljómsveit föður hans gaf út. Lífið 10. maí 2024 08:45
Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Hópurinn Háskólafólk fyrir Palestínu krefst þess að Háskóli Íslands beiti sér fyrir friði á Gasa og taki skýra afstöðu gegn þjóðarmorði og stríðsglæpum. Hópurinn vill að HÍ beiti sér með sama hætti og hann gerði þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Rektor segir árásirnar ekki sambærilegar. Innlent 10. maí 2024 06:47
Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna „Ég ávarpa óvini Ísrael og einnig okkar bestu vini og segi; Ísraelsríki verður ekki haldið niðri,“ sagði Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, eftir að greint var frá því að Bandaríkjamenn hygðust láta af vopnasendingum til landsins. Erlent 10. maí 2024 06:21
Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Hin tvítuga Eden Golan frá Ísrael er talin næstlíklegust til að standa uppi sem sigurvegari í Eurovision í ár með laginu Hurrycane. Ísrael rauk upp í veðbönkum í kvöld eftir að framlagið tryggði sér sæti á úrslitakvöldinu á laugardag. Lífið 10. maí 2024 00:08
Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Hótanir hafa borist ísraelska Eurovision-teyminu og keppandinn hefur varla yfirgefið hótelherbergi sitt vegna þessa. Baulað var á hana á æfingu í gær en hún stígur á svið í Malmö í kvöld, á síðara undanúrslitakvöldi keppninnar. Lífið 9. maí 2024 16:30
Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Reyk lagði yfir landamæraborgina Rafah á Gasaströndinni og sprengingar heyrðust í morgun eftir að Ísraelsher gerði árás á austurhluta borgarinnar. Heilbrigðisstarfsmenn í borginni segja þrjá hafa verið skotna til bana í skriðdrekaárás við mosku í morgun. Erlent 9. maí 2024 13:37
Siðferðileg heilindi Háskóla Íslands á tímum þjóðarmorðs Alda stúdentamótmæla hefur brotist út um allan heim og hafa stúdentar slegið upp tjaldbúðum og skipulagt mótmæli til að vekja athygli á þjóðarmorði Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni. Kennarar og stúdentar hafa verið handteknir, m.a. við Colombia háskóla í New York og Science Po í París. Skoðun 9. maí 2024 10:00
Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Forseti Bandaríkjanna lýsti því yfir í gær að hann muni stöðva vopnasendingar á sprengjum og skotvopum til Ísrael ef forsætisráðherra Ísrael Benjamin Netanyahu fyrirskipar árás inn á Rafah. Það sagði Biden í viðtali við CNN í gær. Hann sagði Bandaríkin enn munu styðja Ísrael með öðrum hætti. Erlent 9. maí 2024 08:02
Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Joe Biden Bandaríkjaforseti stöðvaði vopnasendingu til Ísraelsmanna í síðustu viku til að koma í veg fyrir að innihaldið, um 3.500 sprengjur, yrðu notaðar á Rafah. Erlent 8. maí 2024 06:30
Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Ísraelsher sendi eldsnemma í morgun skriðdreka inn í Rafah-borg og tugir létust í loftárásum þeirra. Alþjóðastjórnmálafræðingur er svartsýn á að vopnahlé sé í nánd þrátt fyrir yfirstandandi viðræður. Innlent 7. maí 2024 19:49
Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að gera þurfi þá kröfu á ráðamenn í Bandaríkjunum að þeir beiti ríkisstjórn Ísraels mun meiri þrýstingi um að leggja niður vopn. Það sé besta leiðin til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Erlent 7. maí 2024 16:28