Manstu eftir Nagorno-Karabakh? Árið 2020 fór ég til Nagorno-Karabakh sem þingmaður þegar stríðið geisaði og sá með eigin augum þær hörmulegu afleiðleiðingar sem stríðsrekstur hefur á almenna borgara. Skoðun 12.11.2025 12:32
Gengst við því að hafa grandað farþegaþotunni Vladímír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi þátt rússneskra loftvarna í hrapi aserskrar farþegaþotu í lofthelgi Rússlands í desember á síðasta ári. Þrátíu og átta fórust með flugvélinni. Erlent 10.10.2025 19:59
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20.8.2025 13:01
„Árleg æfing í vonbrigðum“ Guðmundur Steingrímsson varaformaður Landverndar segir að loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sé árleg æfing í vonbrigðum. Hann segir að skaðinn sem loftslagsbreytingar séu að valda í þróunarríkjum sé gríðarlegur. Innlent 24. nóvember 2024 23:54
„Þetta var mjög skrýtin stemning“ Fulltrúi Ungra umhverfissinna á COP29, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, segir samkomulag sem skrifað var undir í nótt ekki ganga nærri því nógu langt. Dramatík hafi einkennt undirskriftina, eins og ráðstefnuna sjálfa daginn á undan. Erlent 24. nóvember 2024 13:39
Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna Cop 29, sem fer nú fram í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, er í uppnámi og á hættu að verða frestað eða aflýst eftir að fulltrúar frá smáum eyjaþjóðum strunsuðu út af lykilfundi ráðstefnunnar. Erlent 23. nóvember 2024 14:22
Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Sérfræðingar og baráttufólk í loftslagsmálum segja loftslagsráðstefnur Sameinuðu þjóðanna (Cop) ekki lengur þjóna tilgangi sínum. Kalla þeir eftir því að ráðstefnurnar verði aðeins haldnar í ríkjum sem styðja aðgerðir í loftlagsmálu. Erlent 15. nóvember 2024 06:55
Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Framkvæmdastjóri skipulags COP29, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í Aserbaídsjan í næstu viku, er sagður hafa reynt að nýta sér stöðu sína til að koma á samningi um kaup á jarðefnaeldsneyti. Erlent 8. nóvember 2024 08:06
Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu Í hátt í fimmtíu manna sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu í Aserbaídsjan verður enginn kjörinn fulltrúi, hvorki ráðherra, þingmaður né sveitarstjórnarmaður. Ráðstefnunni lýkur átta dögum fyrir alþingiskosningar. Innlent 4. nóvember 2024 09:17
Þau verða fulltrúar Íslands á COP29 í Aserbaídsjan Næsta loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP29, fer fram í Baku í Aserbaídsjan dagana 11. til 22. nóvember. Skráðir þátttakendur frá Íslandi eru 44 að þessu sinni. Innlent 1. nóvember 2024 18:41
FIA tók fyrir kvörtun Red Bull og hefur kveðið upp dóm sinn Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hefur úrskurðað afturvænginn, sem bíll McLaren skartaði um síðastliðnu helgi í Azerbaijan, löglegan eftir að keppinautar breska liðsins í Formúlu 1 kröfðust þess að vængurinn yrði skoðaður nánar. Formúla 1 19. september 2024 16:01
Nagorno-Karabakh heyrir sögunni til Samvel Shahramanyan, forseti sjálfstjórnarsvæðisins Nagorno-Karabakh, hefur skrifað undir tilskipun að sjálfstjórnin verði felld niður. Þar með hefur hann staðfest uppgjöf héraðsins fyrir Aserbaídsjan eftir 32 ára baráttu fyrir sjálfstæði, stríð og átök. Erlent 28. september 2023 08:46
Um fjórðungur íbúa Nagorno-Karabakh flúinn til Armeníu Næstum fjórðungur íbúa Nagorno-Karabakh hafa flúið til Armeníu eftir að Aserar gerðu árás á svæðið í síðustu viku. Að minnsta kosti 68 létu lífið í sprengingu á eldsneytisstöð á mánudagskvöld. Erlent 27. september 2023 07:08
Tugir látnir eftir sprengingu í Nagorno Karabakh Að minnsta kosti tuttugu létu lífið og tæplega þrjúhundruð særðust í sprengingu sem varð á eldsneytisstöð í Nagorno Karabakh í gærkvöldi. Erlent 26. september 2023 07:52
Færa borgurum Nagorno-Karabakh vistir eftir marga mánaða herkví Leiðtogar aðskilnaðarsinna í Nagorno-Karabakh segja að verið sé að innleiða skilmála vopnahlés við Aserbaídsjan. Á sama tíma vinnur Rauði krossinn að því að færa fólki vistir og flytja særða á brott. Erlent 23. september 2023 22:25
Óttast þjóðernishreinsun og reyna að flýja Nagorno-Karabakh Hersveitir armenskra aðskilnaðarsinna í Nagorno-Karabakh hafa gefist upp fyrir Aserum, sem gerðu atlögu að héraðinu í gær. Þúsundir Armena hafa safnast saman við flugvöll héraðsins og bíða eftir að geta flúið. Erlent 20. september 2023 20:53
Aðskilnaðarsinnar í Nagorno-Karabakh gefast upp Sveitir Armena í Nagorno-Karabakh hafa gefist upp fyrir Aserum, sem gerðu atlögu að héraðinu í gær. Vopnahlé var sett á klukkan níu í morgun, að íslenskum tíma, og eiga viðræður milli Armena í héraðinu og yfirvalda í Aserbaídsjan að eiga sér stað á morgun. Erlent 20. september 2023 09:52
Átök hefjast á ný í Nagorno-Karabakh Ráðamenn í Aserbaídsjan tilkynntu nú fyrir skömmu að her ríkisins væri að reyna að uppræta hryðjuverkamenn í héraðinu Nagorno-Karabakh. Myndbönd eru þegar byrjuð að berast af árásum hersins í héraðinu. Erlent 19. september 2023 10:22
Armenar leita eftir hjálp Yfirvöld í Armeníu segja her Aserbaísjan hafa hernumið hluta landsins í kjölfar umfangsmikilla og mannskæðra árása. Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, hefur biðlað til ráðamanna annarra ríkja sem voru áður á yfirráðasvæði Sovétríkjanna að tryggja fullveldi Armeníu. Erlent 14. september 2022 15:56
Átök brutust út milli Armena og Asera í morgun Átök brutust aftur út milli hersveita Aserbaídsjan og Armeníu í morgun en tæplega hundrað létust í átökum ríkjanna í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá armenska varnarmálaráðuneytinu. Erlent 14. september 2022 08:03
Rússar aðstoða Armena eftir átök í nótt Átök urðu milli Asera og Armena við landamæri landanna í nótt. Einhverjir hermenn Armena liggja í valnum eftir nóttina en Armenar segja Asera vera við það að ráðast inn í landið. Varnarmálaráðherrar Armena og Rússa ræddu saman í dag og samþykktu að minnka átökin og stefna að bættu ástandi. Erlent 13. september 2022 07:39
Íslenska landsliðið í tennis keppir í Aserbaídsjan Íslenska karlalandsliðið í tennis keppir á Davis Cup, heimsmeistaramótinu í tennis, í Aserbaídsjan í þessari viku. Landsliðið féll úr þriðja styrkleikaflokki mótsins niður í þann fjórða á síðasta ári og er nú mikið í húfi fyrir íslensku leikmennina að vinna sig aftur upp um flokk. Sport 25. júlí 2022 13:13
Gagnrýnir valdaleysið og segir af sér sem forseti Armen Sarkissian, forseti Armeníu, sagði af sér embætti gær. Hann gagnrýndi meðal annars valdaleysi embættisins og óánægju með ákvarðanir teknar í tengslum við deilur landsins og Aserbaídsjans. Erlent 24. janúar 2022 10:38
Leirgos líklegasta skýringin á sprengingunni í Kaspíahafi Forsvarsmenn SOCAR, ríkisolíufyrirtækis Aserbaídsjan, segja svokallað leirgos vera líklegustu skýringuna fyrir sprengingunni í Kaspíhafi í gær. Mikið eldhaf lýsti upp himininn á svæðinu og vakti mikla furðu. Erlent 5. júlí 2021 09:41