Innlent

Játaði kynferðisbrot gegn börnum í MSN-spjalli

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Mikil fjölmiðlaumfjöllun að undanförnu um barnaníð hefur lítil eða engin áhrif á þá sem eru með barnagirnd. Karlmaður á sjötugsaldri var gripinn þegar hann taldi sig vera að fara að hitta 12 ára gamla stúlku aðeins örfáum dögum eftir að umfjöllun fjölmiðla um barnaníðinga hafði komist í hámæli.

Maðurinn, sem er á sjötugsaldri, hafði verið í samskiptum við "stúlkuna" á netinu en það sem hann vissi ekki var að stúlkan var í reynd Sölvi Tryggvason, sjónvarpsmaður, en þetta kemur fram í nýjasta þættinum af Málinu á Skjáeinum.

Undir þeim formerkjum að hann væri 12 ára gömul stúlka komst Sölvi í kynni við manninn í gegnum vefsíðuna Einkamál.is . Í kjölfarið hófust svo samskipti þeirra með spjallforritinu MSN-Messenger. Maðurinn sóttist ítrekað eftir samskiptum við "stúlkuna" á MSN þar sem hann játaði meðal annars að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við og þar með brotið gegn öðrum börnum.

Þriðjudaginn 8. janúar sl., daginn eftir umfjöllun Kastljóss um Karl Vigni Þorsteinsson, setti maðurinn sig enn á ný í samband við "stúlkuna." Hinn 15. janúar mælti Sölvi sér mót við manninn, sem taldi sig vera að fara að hitta stúlkuna, við bílaplanið á Kjarvalsstöðum. (Sjá myndskeið með frétt.)

Maðurinn, sem er kvæntur og á börn og barnabörn, samþykkti síðan að veita viðtal daginn eftir gegn því að hann þekktist ekki á mynd. Eins og aðrir í hans stöðu er maðurinn í afneitun og sagðist ekki haldinn barnagirnd heldur afsakaði hegðun sína með vísan til þess að hann væri með "spennufíkn," en í viðtalinu í þættinum Málinu varð manninum mjög tíðrætt um umrædda "spennufíkn" sína og vildi aldrei gangast við barnahneigð af nokkru tagi.

Í MSN-spjalli við Sölva, þegar maðurinn taldi sig vera að að ræða við stúlkubarnið eins og að framan greinir, sendi maðurinn mynd af ungri íslenskri stúlku í kynferðislegum stellingum sem hann hafði fengið hjá vini sínum. Í viðtalinu segir maðurinn að þessi sami vinur hans hafi ítrekað haft kynni af stúlkum á unglingsaldri í Hagaskóla og mögulega brotið gegn þeim kynferðislega.

Þau kynferðisbrot sem maðurinn sjálfur játaði geta varðað allt að sextán ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum og verður lögreglu afhent upptaka af þættinum. thorbjorn@stod2.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×