Fleiri fréttir

Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands

Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri.

Lánalenging Landsbanka skref í rétta átt

Forstöðumaður efnahagssviðs SA segir að samningur milli gamla og nýja Landsbankans færi okkur nær því að losa höftin. Undanþágur frá gjaldeyrislögum eru skilyrði en seðlabankastjóri segir of snemmt að álykta um hvort þær verði veittar.

Tjónið sagt nema 67 milljörðum

Óheimilar lánveitingar þriggja fyrrverandi stjórnenda Kaupþings eru sagðar hafa valdið Kaupþing banka fjártjóni upp á ríflega 67 milljarða króna að því er fram kemur í ákæru sérstaks saksóknara á hendur þeim. Þeir eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi verði þeir sakfelldir.

Stórt skref í afnámi fjármagnshafta

Landsbankinn og slitastjórn gamla Landsbankans hafa komist að samkomulagi um breytingar á uppgjörsskuldabréfum, en eftirstöðvar þeirra eru um 226 milljarðar króna.

Dregst um nokkra daga

„Það getur farið svo að það tefjist um einhverja daga, viku eða svo, að fólk geti sótt um skuldaleiðréttingar. Það breytir hins vegar engu um að niðurstöður aðgerðanna munu liggja fyrir eftir fyrsta september,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnisstjóri skuldaniðurfellinga ríkistjórnarinnar.

Alvogen hefur keypt Portfarma

Alvogen undirbýr nú skráningu og sölu fjölmargra samheitalyfja hér á landi en Portfarma hefur starfað á íslenskum lyfjamarkaði frá árinu 2005. Fyrirtækið hefur á þeim tíma markaðssett um 50 lyf ásamt heilsutengdum vöru, samkvæmt tilkynningu Alvogen.

Gjöld á áfengi og bensín lækka of lítið og of seint

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gagnrýnir seinagang við afgreiðslu frumvarps um gjaldskrárlækkanir. Pétur H. Blöndal alþingismaður segir gjöldin ekki lækka nógu mikið. Frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok.

FleXicut vél Marel slær í gegn í Brussel

Forstjóri Marel segir sjávarútvegssýninguna í Brussel sjaldan hafa verið eins sterka fyrir fyrirtækið og í ár. Íslendingar taka þátt á sýningunni í 22. annað sinn.

Þurfti leyfi Seðlabankans til að borga 1800 króna bók

Kristján E. Guðmundsson frá Akranesi óraði ekki fyrir því að hann þyrfti að sækja um leyfi til Seðlabankans þegar hann keypti sér bók frá sænskri fornbókasölu. "En þannig var það nú samt,“ segir hann hlæjandi.

Deilt um réttarfarssekt lögmanna

Aðalmeðferð fór fram í máli ákæruvaldsins gegn lögmönnunum Gesti Jónssyni og Ragnari Hall í dag en þeir voru dæmdir til að greiða eina milljón í réttarfarssekt fyrir að segja sig frá Al-Thani málinu í apríl í fyrra af tilefnislausu.

Þrítugur maður opnar vinnslustöð í Borgarnesi

„Við vorum fyrst mest í makrílnum en höfum síðan beint kastljósi okkar að krabba- og skelfiskveiðum og erum bara nokkuð efnilegir í því." Ásamt vinnslustöðinni verða tvö frumkvöðlasetur opnuð í Borgarnesi í dag.

Framkvæmdastjóri hjá Wow air sagði upp

Linda Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs WOW air, hefur sagt upp störfum hjá flugfélaginu. Hún hafði starfað hjá félaginu frá árinu 2012.

Segir nýja stefnu lykilinn að bættri afkomu

Nýherji ­skilaði 56 milljóna króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi en tapaði 149 milljónum á sama tíma 2013. Applicon-­félögin í Danmörku seld í mars. Ekkert óeðlilegt við fjárfestingar Nýherja í útlöndum árin fyrir hrun, segir Finnur.

Segir landið eins og fyrirtæki í slitameðferð

Tíminn til að setja fram öfluga og trúverðuga efnahagsstefnu er naumur, að mati Þorkels Sigurlaugssonar. Nýti stjórnvöld ekki sumarið til þess þurfi aðrir að taka við keflinu. Óróleiki og vantrú aukist þegar fólk átti sig á skertri greiðslugetu.

Hagskýrsla OECD í samræmi við hagspár

OECD spáir hækkandi hagvexti hér á landi næstu tvö ár. Óvissa skapast þó af minnkandi eftirspurn eftir áli í heiminum, gjaldeyrishöftum og málaferlum vegna þrotabúa bankanna og Icesave.

Umhverfisrask fylgir öllum leiðum

Landsnet kynnti í gær kerfisáætlun fyrir árin 2014 til 2023. Um leið voru kynnt drög að umhverfisskýrslu. Veruleg umhverfisáhrif og rask er samfara öllum kostum sem fyrir liggja í framtíðaruppbyggingu og styrkingu flutningskerfis raforku hér á landi.

Norðursigling fékk Landstólpann

Fyrirtækið Norðursigling á Húsavík er handhafi Landstólpans 2014, samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar, sem var afhent í fjórða sinn á ársfundi stofnunarinnar í Miðgarði í Skagafirði.

Hvetja bankana til að stofna húsnæðislánafélög

Nýjar tillögur sem verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála kynnti í gær miða að því að bankar og lífeyrissjóðir stofni húsnæðislánafélög til að einfalda rekstur sinn. Skipta á Íbúðalánasjóði í tvennt og stofna opinbert lánafélag.

Skattar á íbúðaleigu lækki um helming

Fjármagnstekjuskattur á tekjur af útleigu íbúðarhúsnæðis utan atvinnurekstrar og á grundvelli langtímaleigusamningar verður lækkaður úr tuttugu prósentum í tíu prósent, sem þýðir helmingslækkun frá því sem áður var.

Nokkur halli á rekstri Landspítala

Fjárheimildir og sértekjur Landspítala árið 2013 námu 43.809 milljónum króna og heildargjöld um 45.293 milljónum króna. Á milli áranna 2012 og 2013 hækkuðu heildarrekstrargjöld spítalans um 11,3% á verðlagi hvors árs.

Sjá næstu 50 fréttir