Atvinnulíf

„Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Morgunrútínan heima hjá Hauki Hinrikssyni, framkvæmdastjóra Knattspyrnufélagsins Víkings, er farin að ganga nokkuð vel; búið um rúmin áður en farið er í eldhúsið og fleira. Haukur gerir þó ráð fyrir að rútínan raskist með haustinu, þegar enn eitt barnið bætist við í fjölskylduna. 
Morgunrútínan heima hjá Hauki Hinrikssyni, framkvæmdastjóra Knattspyrnufélagsins Víkings, er farin að ganga nokkuð vel; búið um rúmin áður en farið er í eldhúsið og fleira. Haukur gerir þó ráð fyrir að rútínan raskist með haustinu, þegar enn eitt barnið bætist við í fjölskylduna.  Vísir/Anton Brink

Haukur Hinriksson, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings, væri alveg til í að geta spilað á gítar undir laginu Fram á nótt með Nýdönsk og horfir öfundaraugum til þeirra sem kunna að draga fram hljóðfæri í útilegum. Haukur smitast fljótt í söng og stemningu.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Vekjaraklukkan er stillt á 7:10. Í framhaldi snooza ég yfirleitt einu sinni eða tvisvar en stend svo upp og vek restina af fjölskyldunni. Vekjaraklukkan reynist þó reglulega óþörf þar sem dætur okkar tvær sjá alfarið um það sjálfar að vakna og vekja okkur í framhaldi.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég er svo lukkulegur að mín fjölskylda er orðin samstíga í sinni rútínu. Ég vakna, fer í sturtu og klæði mig. Þar á eftir höfum við stelpurnar okkar til, klæðum þær og búum um rúmin. Aðeins þá - ekki fyrr - förum við upp í eldhús og fáum okkur morgunmat, burstum tennur og förum út úr húsi.

Þessi rútína gengur orðið mjög vel en það líður ekki langur tími frá því við vöknum og þar til við yfirgefum húsið og inni í daginn. Ég geri þó ráð fyrir að rútínan raskist verulega bráðlega þar sem von er á einu barni til viðbótar í september.“

Ertu einn af þeim sem kannt að taka lagið í útilegum?

Ég viðurkenni að hafa horft öfundaraugum á þá sem kunna að draga fram hljóðfæri í útilegum og spila undir lögum. 

Þegar ég hugsa til þess, þá kemur Fram á nótt með Nýdönsk strax upp í hugann en ég hef oft óskað þess að geta spilað á gítar undir því lagi. 

Ég hef ofboðslega gaman af tónlist, sér í lagi íslenskri tónlist. Það þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu en leynt og ljóst vonast ég til þess að börnin mín smitist af því og verði eins. Mér finnst ég strax sjá skýr merki þess.“

Haukur nýtir sér möguleika Outlook til að halda utan um skipulagið og gleyma engu. Merkir verkefni með lokafresti inn í dagatalið og það sem er óleyst flokkar hann með því að merkja það sem ólesinn tölvupóst. Hauki finnst best að byrja snemma að vinna á morgnana, þá afkastar hann mest.Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Það er blanda af stærri og minni verkefnum. Knattspyrnufélagið Víkingur er stórhuga og metnaðarfullt sama hvar stigið er niður. Það er keppikefli alla daga að berjast fyrir bættri aðstöðu fyrir alla okkar hagsmunaaðila; börn, unglinga, afreksfólk, þjálfara, sjálfboðaliða, starfsfólk og aðra. Það þarf stöðugt að standa vaktina á þeim vettvangi því við sem félag viljum veita framúrskarandi íþróttaþjónustu og umgjörð fyrir allt fólk innan hverfa Víkings, unga sem aldna. Því fylgir mikil ábyrgð sem við tökum alvarlega en félagið leitar sífellt leiða til að gera gott starf enn betra. Við viljum einnig starfrækja fyrsta flokks afreksstarf til að vera leiðandi félag í keppni hér á landi og gera þannig alla Víkinga stolta óháð því hvar þeir búa. 

Akkúrat þessa dagana er ég að ganga frá uppgjöri og undirbúningi fyrir aðalfund félagsins í næstu viku. Við erum þessa stundina að útbúa nýtt verklag í kringum bókhald og fjármál félagsins. 

Þá gengum við í vikunni frá ráðningu á nýjum íþróttafulltrúa Víkings í Safamýri. Knattspyrnusumarið er í fullum gangi í yngri og eldri flokkum sem og íþróttanámskeið félagsins. 

Nú styttist í Evrópukeppni hjá meistaraflokki karla og að mörgu sem þarf að huga að í undirbúningi fyrir þá leiki.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Mér finnst rosalega gott að vera kominn ekki seinna en klukkan 8.30 í vinnu. Afköstin eru mest á morgnana og næðið í okkar húsum er best fyrri part dags. 

Ég vil síður eyða heilum degi á fundum og reyni því að halda þeim í lágmarki eða eins og kostur er hverju sinni. Þannig losa ég um tíma til að sinna meiri vinnu á hefðbundnum vinnutíma. Mér finnst ekki síður mikilvægt að halda lausum tíma, 30-60 mínútur sirka þrisvar í viku, til að hreyfa mig í hádeginu. Það gerist oft að ég færi fundi sem eiga að vera í hádeginu yfir á aðra tíma dagsins til að komast í hreyfingu. 

Til að halda utan um verkefni þá notast ég mest við þá möguleika sem Outlook býður upp á. 

Ég merki verkefni og lokafresti inn í dagatal og þau verkefni sem ég á eftir óleyst þau flokka ég og merki sem ólesinn tölvupóst. 

Þessar aðferðir nota ég fyrst og fremst til að gleyma engu og svara á endanum öllu. Með þessu móti nægir mér að skoða dagatalið og renna yfir ólesna tölvupósta til að sjá hvaða verkefni eru ýmist í farvegi eða ég ekki byrjaður á.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Kvöldrútínan miðast öll við að ég sé kominn í rúmið klukkan 11 til að ná helst inn átta tíma svefni. Það er allur gangur á því hvenær mér tekst að sofna. 

Almennt er það þannig að ef mér hefur ekki tekist að hreinsa hugann frá vinnu eða námi vel áður en ég leggst á koddann, þá sofna ég seint.“


Tengdar fréttir

Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli

Sigþrúður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Forlagsins, viðurkennir að eiga erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli. En almennt telur hún sig tapsára í meðallagi. Sigþrúður stillir ekki vekjaraklukku heldur vaknar bara þegar hún vaknar.

„Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“

Tíu mánaða dóttirin sér um að vekja foreldrana heima hjá dellukallinum Elmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra félaganna Vettvangur og Apparatus. Eins og margir þekkja, reyna foreldrarnir þá að skipta á milli sín fyrstu vaktinni svo hitt geti kúrað aðeins lengur.

„Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““

Það er engin lognmolla á morgnana heima hjá Elísu Dögg Moraitis Björnsdóttur, framkvæmdastjóra TVG-Zimsen. Enda mikið um að vera að koma öllum í skóla og leikskóla. Elísa gerir þó oft grín að sjálfri sér því hún er svo skipulögð að nánast allt fer í excel.

Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa

Rósa Dögg Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Reon, fer alltof seint að sofa og er sannfærð um að besti svefninn sinn séu þær níu mínútur sem hún nær á milli snúsa. Rósa segir það visst áhyggjuefni hvernig þriggja ára sonurinn er hættur að vekja foreldrana á skikkanlegum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×