Viðskipti innlent

Stefán nýr forstjóri Vodafone

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
"Það er mikill fengur fyrir Vodafone í Stefáni Sigurðssyni og hann mun leiða félagið inn í spennandi framtíð.“
"Það er mikill fengur fyrir Vodafone í Stefáni Sigurðssyni og hann mun leiða félagið inn í spennandi framtíð.“
Stefán Sigurðsson hefur verið ráðinn í starf forstjóra Vodafone af stjórn félagsins. Ómar Svavarsson lætur um leið af störfum hjá Vodafone en hann hefur gengt starfinu frá 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Stefán hefur frá október 2008 gegnt starfi framkvæmdastjóra eignastýringar Íslandsbanka. Hann hefur mikla reynslu af rekstri, stefnumótun og innleiðingu, uppbyggingu sölu og þjónustu til einstaklinga og fagfjárfesta að því er fram kemur í tilkynningunni.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun segir Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Vodafone:

„Miklar og örar breytingar eiga sér nú stað á fjarskiptamarkaði. Vodafone er leiðandi á markaðnum og ætlar að vera það áfram, með sérstaka áherslu á góða þjónustu, alþjóðlegt vöruframboð og þarfir viðskiptavina. 

Það er mikill fengur fyrir Vodafone í Stefáni Sigurðssyni og hann mun leiða félagið inn í spennandi framtíð. Ég vil þakka Ómari Svavarssyni fyrir gott, óeigingjarnt og dugmikið starf fyrir félagið, starfsfólk þess og eigendur á miklum umrótartímum.“ 

“Vodafone er sterkt og gott fyrirtæki. Það starfar á spennandi markaði og starfsfólk hefur skapað einstakan vinnustað, þar sem fagmennska og metnaður er ríkjandi.  Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum við áframhaldandi uppbyggingu félagsins á næstu árum,” sagði Stefán. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×