Gjöld á áfengi og bensín lækka of lítið og of seint Haraldur Guðmundsson skrifar 8. maí 2014 08:32 Áfengis- og tóbaksgjöld lækka um eitt prósent í frumvarpinu. Vísir/GVA „
Þetta mál er búið að vera í þessum dæmalausa tómagangi og áhugaleysi ríkisstjórnar og þingnefndar að ljúka þessu máli er eftirtektarvert,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Gylfi gagnrýnir að frumvarp fjármálaráðherra sem á að lækka gjöld á áfengi, tóbak og eldsneyti hefur ekki enn verið afgreitt á Alþingi. Ríkisstjórnin samdi við aðila vinnumarkaðarins um lækkanirnar við gerð kjarasamninga í desember. Þá hafði verið tilkynnt um þriggja prósenta hækkun á gjöldunum frá áramótum en í frumvarpinu hækka þau einungis um tvö prósent. Breytingarnar áttu upphaflega að taka gildi 1. febrúar en málið hefur tafist og nú er stefnt að gildistöku 1. júní næstkomandi. „Þetta hefur tekið fleiri fleiri mánuði og þessi seinkun er að rýra þessar aðgerðir verulega því það gefur augaleið að almenningur í landinu er ekki enn farin að njóta lægri gjalda. Hins vegar var það okkar tillaga í upphafi að nota þessa fjármuni til að lækka gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu sem er farin að taka út yfir allan þjófabálk,“ segir Gylfi.Pétur H. Blöndal, alþingismaður og framsögumaður meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar í málinu, segist viss um að frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok 16. maí. Hann segir málið hafa fengið of langa umfjöllun í þinginu miðað við umfang aðgerðanna. „Ég er alltaf sammála öllum skattalækkunum. Hins vegar er ég með efasemdir um hvað þetta er lítið því ef þetta á að virka þarf að lækka gjöld talsvert svo þau hafi áhrif á verðlag. En þetta er hluti af kjarasamningum og sumir aðilar vinnumarkaðarins líta stíft á svona smáskammtalækningar,“ segir Pétur. Hann bætir við að verðbólga hér á landi hafi verið undir 2,5 prósentum frá áramótum þó að til gjaldskrárlækkananna hafi ekki komið. Pétur segir aðgerðirnar koma til með að lækka skatta um tvö til þrjú hundruð milljónir króna. Erfitt verði að fylgjast með því hvort lækkanirnar skili sér út í verðlagið. „Það er ekki nokkur lifandi vegur að fylgjast með því. Þú ert með frjálsa álagningu til dæmis á bensíni og þegar menn fá tilboð um afslátt af bensíni upp á tíkall á lítra þá hverfur þetta gjörsamlega.“
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira