Viðskipti innlent

Fyrsta erlenda útgáfan í evrum

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að upphæð 100 milljónir evra sem jafngildir um 15,6 ­milljörðum króna. Bréfin eru fyrsta erlenda útgáfa bankans í evrum.

Skuldabréfið er til tveggja ára og ber 3 prósenta fasta vexti. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 16. maí næstkomandi.

„Skuldabréfaútgáfa í evrum markar tímamót fyrir okkur. Þessi útgáfa að upphæð 100 milljónum evra kemur í kjölfar birtingar á lánshæfismati frá Standard & Poor’s, sem gaf Íslandsbanka BB+/B, sem er góð lánshæfiseinkunn miðað við einkunn ríkisins. Þá lauk Íslandsbanki skuldabréfaútgáfu í sænskum krónum í lok síðasta árs sem var svo stækkuð í mars síðastliðnum,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, í tilkynningu.

Útgáfan er gefin út undir ­Global Medium Terms Notes-útgáfuramma bankans sem gefur honum færi á að gefa út skuldabréf í mismunandi myntum á föstum og fljótandi vöxtum.

„Það er ánægjulegt að sjá að kjörin fara batnandi sem endurspeglar traust fjárfesta til Íslandsbanka og á því uppbyggingarstarfi sem hefur skilað okkur öflugum og ábyrgum banka. Kjarnastarf­semin er að skila stöðugum og jöfnum tekjum, endurskipulagningu er nánast lokið og eiginfjár- og lausafjárstaða bankans er góð,“ segir Birna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×