Viðskipti innlent

Norðursigling fékk Landstólpann

Freyr Bjarnason skrifar
Landstólpinn var afhentur í fjórða sinn fyrir skömmu.
Landstólpinn var afhentur í fjórða sinn fyrir skömmu. Mynd/Aðsend
Fyrirtækið Norðursigling á Húsavík er handhafi Landstólpans 2014, samfélagsviðurkenningar Byggðastofnunar, sem var afhent í fjórða sinn á ársfundi stofnunarinnar í Miðgarði í Skagafirði.

Saga Norðursiglingar hófst árið 1994 þegar bræðurnir Hörður og Árni Sigurbjarnarsynir keyptu 20 tonna eikarbát, m/b Knörrinn og létu gera hann upp. Sumarið 1995 tók Knörrinn að sigla með farþega á Skjálfandaflóa í náttúru- og hvalaskoðun.

„Með tilkomu Norðursiglingar og þeirra framkvæmda sem hún hefur staðið fyrir hefur ásýnd og ímynd Húsavíkur breyst verulega,“ segir í tilkynningu frá Byggðastofnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×