Fleiri fréttir

Eyþór ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Japan

Dr. Eyþór Eyjólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Japan. Hann tekur við starfinu af Jónasi Engilbertssyni sem mun flytja heim til Íslands og taka við starfi framkvæmdastjóra Innkaupa Icelandic Group. Breytingarnar taka gildi 1. ágúst nk. Að því er segir í tilkynningu um málið.

AGS stoltur af árangri Íslands, ráðgjöf áfram í boði

Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), segir sjóðinn stoltan af þeim árangri sem náðst hefði á Íslandi og bætti við að Íslendingar mættu sjálfir vera stoltir enda hafi þeir lagt á sig erfiðið. Jafnframt er sérfræðiráðgjöf frá AGS enn í boði fyrir Íslendinga.

Markmiðið að laða fólk í tölvuleikjanám

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP mun næstu fimm ár kosta stöðu prófessors í tölvuleikjagerð við Háskólann í Reykjavík (HR). Prófessorinn mun bæði sinna rannsóknum og kennslu sem tengjast tölvuleikjagerð.

Katrín ræddi afnám fjármagnshafta við fulltrúa AGS

Katrín Júlíusdóttir fundaði með þeim Dariu Zakharovu, yfirmanni sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi og Julie Kozack, deildarstjóra í Evrópudeild Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í tengslum við vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans sem haldinn er í Washington þessa dagana. Losun fjármagnshafta var eitt aðalefni fundar þeirra Dariu og Katrínar, að því er fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins.

Fá svör í skýrslu sérfræðingahópsins

Greining Arion banka segir að skýrsla starfshóps um framtíðarhorfur og framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs, sem var birt á þriðjudag, svari litlu um hvernig lagfæra skuli vanda Íbúðalánasjóðs, sem er helst uppgreiðsluáhætta, útlánaáhætta og rekstraráhætta. Það hafi þó verið hlutverk hópsins að gera tillögur með það að markmiði að rekstur sjóðsins geti staðið undir sér. Þá sárvanti meiri talnagreiningu og efnislegan rökstuðning í skýrsluna.

Gerviverktaka hjá Þjóðskrá Íslands stöðvuð

Þjóðskrá Íslands (áður Fasteignaskrá Íslands) hefur með formlegum hætti brugðist við ábendingum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010. Ábendingarnar vörðuðu verktakagreiðslur til einkahlutafélags sem falið var að stýra tölvudeild Fasteignaskrár. Ríkisendurskoðun taldi að um gerviverktöku væri að ræða.

Hvetja Seðlabankann til gjaldeyriskaupa á millibankamarkaðinum

Greining Íslandsbanka hvetur Seðlabankann til að hefja að nýju gjaldeyriskaup á millibankamarkaðinum með gjaldeyri. Nú sé lag til þess í ljósi mikillar styrkingar á gengi krónunnar frá áramótum. Greining Arion banka hefur hvatt til þess sama í Markaðspunktum sínum þar sem spurt var nýlega hvort Seðlabankinn væri sofandi fyrir þessum möguleika.

Viðsnúningur til hins betra í rekstri Ísafjarðarbæjar

Verulegur viðsnúningur hefur orðið á rekstri Ísafjarðarbæjar og skilaði hann í fyrra 46 milljóna kr. afgangi en árið áður var halli á rekstrinum upp ríflega 300 milljónir kr. Skuldir voru greiddar niður um tæplega 200 milljónir kr. á sama tíma og fjárfest var fyrir rúmlega 200 milljónir kr.

Lög binda hendur Bankasýslu ríkisins

Fráfarandi formaður bankaráðs Landsbankans kvartaði í kveðjuræðu undan afskiptum Bankasýslu ríkisins. Sömu reglur og sjónarmið hafi átt að gilda um banka í ríkiseigu og banka í einkaeigu. Forstjóri Bankasýslunnar segi

Átján fyrirtæki eru með í saltfiskverkefninu

Átján fyrirtæki hafa þegar gengið til liðs við markaðsverkefnið um að efla sölu á íslenskum saltfisk í Suður Evrópu. Alls verður 50 milljónum króna varið til þessa verkefnis í ár.

Besta rekstrarár í sögu Auðar Capital

Kristín Pétursdóttir lætur af störfum forstjóra Auðar Capital og Hannes Frímann Hrólfsson tekur við sem forstjóri félagsins. Þetta var tilkynnt á aðalfundi félagsins í gær, þar sem jafnframt var kosin ný stjórn. Kristín er nýr stjórnarformaður. Félagið skilaði 162 milljóna króna hagnaði í fyrra.

Grillið á Hótel Sögu opnar aftur í dag

Grillið á Hótel Sögu opnar formlega að nýju í dag eftir gagngerar endurbætur á húsnæði og salarkynnum veitingastaðarins. Endurbæturnar hafa staðið yfir frá áramótum.

Varar sterklega við upptöku á eignum þrotabúa bankanna

Hagfræðingurinn Lars Christensen segir að erlendir fjárfestar yrðu lítt hrifnir ef hugmyndir um upptöku ríkisins á hluta eigna þrotabúa bankanna raungerðust. Gæti seinkað afnámi hafta og eyðilagt fyrir fjárfestingu.

Hagfræðideild Landsbankans segir ómögulegt að efna kosningaloforðin

Staða ríkissjóðs býður ekki upp á að hægt verði að standa við loforð flokka og framboða fyrir kosningarnar í næstu viku, sem ýmist eða bæði lofa skattalækkunum og auknum útgjöldum. Ari Skúlason hagfræðingur hjá landsbankanum segir stöðu ríkissjóðs nú verri en áætlanir gerðu ráð fyrir við gerð fjárlaga og því muni hann ekki standa undir loforðalistanum.

Vaxtakrafan á erlendum skuldabréfum ríkisins snarlækkar

Ávöxtunarkrafa á erlendum skuldabréfaútgáfum ríkissjóðs hefur lækkað verulega frá miðju síðasta ári. Endurspeglar sú þróun bæði aukið traust á íslenska ríkinu sem skuldara og einnig minni áhættufælni á erlendum skuldabréfamörkuðum.

Valka hlaut Nýsköpunarverðlaunin í ár

Fyrirtækið Valka hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun, en Valka er hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á tækjum og hugbúnaði fyrir fiskvinnslu. Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku veitti verðlaununum viðtöku.

FME varar við skuldsettum hlutabréfakaupum

Í kjölfar fréttar um vaxandi ásókn fjárfesta í skuldsett hlutabréfakaup sem birtist í Morgunblaðinu þann 16. apríl vill Fjármálaeftirlitið (FME) vekja sérstaka athygli almennra fjárfesta á þeirri áhættu sem fylgir slíkum viðskiptum.

Bréf Samherja: Léttir að málið er komið til sérstaks saksóknara

Þeir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson æðstu stjórnendur Samherja hafa sent starfsfólki sínu bréf í kjölfar þess að Seðlabankinn hefur vísað karfaviðskiptum fyrirtækisins til sérstaks saksónara. Í bréfinu segja þeir Þorsteinn og Kristján að það sé léttir fyrir þá að þetta hafi gerst og vonandi sýni sérstakur meiri fagmennsku en yfirmenn og rannsakendur Seðlabanka Íslands hafa gert.

Þóranna ráðin deildarforseti viðskiptadeildar HR

Dr. Þóranna Jónsdóttir hefur verið ráðin deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Þóranna tekur við starfinu þann 1. maí næstkomandi af Dr. Friðrik Má Baldurssyni sem verður áfram prófessor við deildina.

TVG-Zimsen opnar skrifstofu í Hafnarfirði

TVG-Zimsen hefur opnað skrifstofu í Hafnarfirði. Fyrirtækið keypti á dögunum skipamiðlunina Gáru í Hafnarfirði sem hefur þjónustað skemmtiferðaskip og togara í Hafnarfirði og um allt land undanfarin 20 ár.

Aflaverðmæti jókst um 5,5% milli ára í janúar

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 13,3 milljörðum króna í janúar s.l. samanborið við 12,6 milljarða kr. í janúar í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 696 milljónir kr. eða 5,5% á milli ára.

Leysa þarf snjóhengjuvanda

Er raunhæft að losa gjaldeyrishöftin innan tiltölulega skamms tíma eða er haftalaust samfélag hér á landi einungis fjarlægur draumur? Greiningardeild Arion banka gerði tilraun til þess að svara þessari spurningu á fundi í höfuðstöðvum bankans í gær en í stuttu máli var svarið eins og oft við flóknum spurningum: það veltur á ýmsu.

LSR með 9,1% raunávöxtun

Ávöxtun hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) var með besta móti í fyrra. Nafnávöxtun var 14,2 prósent. Að teknu tilliti til verðbólgu var ávöxtunin 9,1 prósent sem er umtalsvert yfir 3,5 prósenta ávöxtunarkröfu sjóðsins.

Vilja hækka laun Landsbankastjóra

Starfskjör bankastjóra Landsbankans og helstu stjórnenda skulu vera samkeppnishæf við kjör stjórnenda í stærri fyrirtækjum og á fjármálamarkaði, en þó ekki leiðandi. Þetta kemur fram í nýrri starfskjarastefnu Landsbanka Íslands sem samþykkt var á aðalfundi bankans í dag.

Icelandair og Westjet í samstarf

Icelandair og kanadíska flugfélagið WestJet kynntu í dag nýtt samstarf flugfélaganna sem meðal annars felur í sér sölu og farseðlaútgáfu á flugleiðum hvors annars.

Verðmætir ráðstefnugestir koma til landsins á næsta ári

Samtök bandarískra blaðamanna sem sérhæfa sig í skrifum fyrir ferðablöð og tímarit (SATW) hafa staðfest við Meet in Reykjavík (Ráðstefnuborgin Reykjavík) að árleg ráðstefna þeirra verið haldin hér á landi í lok september á næsta ári.

OZ fékk 300 milljónir til vöruþróunar

Hópur fjárfesta hefur lagt 300 milljónir í vöruþróun hjá OZ ehf. hér á landi. OZ ehf. er nýtt sprota- og hugbúnaðarfyrirtæki sem mun brátt bjóða Íslendingum að upplifa sjónvarp á nýjan máta á öflugu dreifikerfi fyrirtækisins.

Ölgerðin veitir 100 milljónum til 100 samfélagsverkefna

Ölgerð Egils Skallagrímssonar fagnar því í dag að 100 ár eru frá því að Tómas Tómasson stofnaði fyrirtækið í kjallara Þórshamars við Templarasund. Á þessum tímamótum mun fyrirtækið veita 100 milljónum króna til 100 samfélagsverkefna.

Búið að úthluta 576 milljónum til ferðamannaverkefna

Í dag var tilkynnt um úthlutun 278 milljóna króna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Þetta er þriðja úthlutun ársins og hefur þá alls rúmum 576 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum á árinu.

Sjá næstu 50 fréttir